Ríkissaksóknari skoðar mál Danske bank

Mál Danske bank um meint pen­inga­þvætti í Eist­landi er komið upp á borð rík­is­sak­sókn­ara Dan­merkur í efna­hags­málum.

Húsnæði Danske bank hjá Holmens Kanal í Kaupmannahöfn.
Húsnæði Danske bank hjá Holmens Kanal í Kaup­manna­höfn. Mynd: kjarninn_myndir

Rík­is­sak­sókn­ari Dan­merkur í efna­hags-og alþjóða­af­brota­málum hefur hafið form­lega rann­sókn á Danske bank vegna mögu­legra brota á lögum um pen­inga­þvætti. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá emb­ætti rík­is­sak­sókn­ar­ans sem birt­ist í gær.

Kjarninn hefur áður fjallað um meint brot Danske bank, en bank­inn er ásak­aður um að hafa stundað pen­inga­þvætti fyrir u.þ.b. 890 millj­arða íslenskra króna í gegnum úti­búið sitt í Eist­landi. Bankinn hóf eigin rann­sókn á mál­inu árið 2015, en stuttu seinna rann­sök­uðu frönsk yfir­völd og fjár­mála­eft­ir­lit Dan­merkur einnig málið. [adspot]

Samkvæmt Morten Niels Jakobsen, efna­hags­rík­is­sak­sókn­ara Dan­merkur, er rann­sóknin vel á veg komin. „Við höfum eðli máls­ins sam­kvæmt fylgt mál­inu í gegnum lengri tíma, en af góðum ástæðum höfum við haldið spil­unum þétt að okkur. Nú erum við komin það langt að ég get stað­fest að við hjá emb­ætt­inu höfum hafið rann­sókn í þeim til­gangi að skoða hvort við í Danmörku getum höfðað saka­mál gegn Danske bank fyrir brot á pen­inga­þvætt­is­lög­unum,“ segir Morten í til­kynn­ingu emb­ættis síns.

Hverjum steini velt við

Einnig bætir Morten við að emb­ættið sé stað­ráðið að velta við hverjum steini í mál­inu. Of fljótt sé að segja hvort saka­mál verði höfðað gegn bank­anum, en fari svo gæti hann átt yfir höfði sér þungar fjár­hags­legar refs­ingar.

[links]Afleið­ingar máls­ins hafa nú þegar verið tölu­verðar innan Danske bank, en Lars Mørch, rekstr­ar­stjóri alþjóða­við­skipta bank­ans, sagði af sér árið 2015 vegna þess og mán­uði seinna barst opin­ber afsök­un­ar­beiðni á starf­sem­inni frá fram­kvæmda­stjór­anum.

Fyrir mán­uði síðan birti svo Berl­ingske frétt þar sem upp­hæð pen­inga­þvætt­is­ins er sögð hafa numið um 890 millj­örðum íslenskra króna, en það er tvö­falt það sem áður var talið. Í kjöl­far þeirra frétta lækk­aði hluta­bréfa­verð bank­ans tölu­vert og ýmsir hættu við­skiptum við hann, þar á meðal frum­kvöð­ull­inn Davíð Helgason.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár