Danske bank ásakaður um peningaþvætti sem nemur 890 milljörðum

Meint pen­inga­þvætti Danske bank er metið á um 890 millj­arða íslenskra króna, en það er tvö­falt meira en áður var talið.

Húsnæði Danske bank hjá Holmens Kanal í Kaupmannahöfn.
Húsnæði Danske bank hjá Holmens Kanal í Kaup­manna­höfn. Mynd: kjarninn_myndir

Danske bank er ásak­aður um að hafa stundað pen­inga­þvætti fyrir u.þ.b. 890 millj­arða íslenskra króna í gegnum úti­búið sitt í Eist­landi. Þetta kom fram í frétt Berl­ingske í gær, en Bloomberg fjallar einnig um málið.

Ásökunin, sem teng­ist hinu svo­kall­aða Magnit­skij-máli, snýr að starf­semi úti­bús Danske bank í Eist­landi. Útibúið átti að hafa tekið á móti stórum fjár­hæðum frá erlendum við­skipta­vinum, mörgum hverjum frá löndum sem hafa veikar varnir gegn pen­inga­þvætti, líkt og Rúss­landi, Moldóvu og Azerbaijan.

Bankinn bauð upp á þjón­ustu til erlendra við­skipta­vina allt til árs­ins 2015, en byrj­aði að draga úr starf­sem­inni tveimur árum fyrr eftir að grun­semdir vökn­uðu í kjöl­far skýrslu frá inn­an­búð­ar­mönnum árið 2013. Stuttu seinna hóf bank­inn eigin rann­sókn á mál­inu. Eftir tölu­verða fjöl­miðlaum­fjöllun um málið jók bank­inn umfang rann­sókn­ar­innar síð­ast­lið­inn sept­em­ber og skoð­aði færslur við­skipta­vina frá árinu 2007.

Rannsókn, uppsögn og afsökunarbeiðni

Mánuði seinna hófst form­leg rann­sókn franskra yfir­valda á Danske bank, sem lauk síð­ast­lið­inn jan­úar. Í apríl sagði svo Lars Mørch, rekstr­ar­stjóri alþjóða­við­skipta bank­ans frá 2012, af sér og mán­uði seinna baðst fram­kvæmda­stjór­inn Thomas Borgen opin­ber­lega afsök­unar á starf­sem­inni.

Á svip­uðum tíma gerði fjár­mála­eft­ir­lit Dan­merkur einnig athuga­semdir við svifa­seinum aðgerðum Danske bank vegna óeðli­lega mik­ils gróða frá erlendum við­skipta­vinum, en eft­ir­litið gaf átta til­mæli sem bank­inn átti að fram­fylgja. Þó sagði Jesper Berg, for­stjóri fjár­mála­eft­ir­lits­ins, að ekki væru næg sönn­un­ar­gögn til staðar til þess að hefja form­lega rann­sókn.

Í gær­kvöldi birti svo Berl­ingske frétt þar sem upp­hæð pen­inga­þvætt­is­ins er sögð hafa numið um 53 millj­arða danskra króna, sem jafn­gildir u.þ.b. 890 millj­örðum íslenskra króna. Þetta er tvö­föld upp­hæð frá því sem áður var talið. Fréttin virð­ist hafa veikt traust hlut­hafa í garð Danske bank, en hluta­bréfa­verð bank­ans féll í gær um 3% eftir birt­ingu hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár