Norður-Kórea og stórveldin tvö

Stjórn­völd í Norður-Kóreu halda því fram að landið hafi náð merkum áfanga í þróun eld­flauga sem drífa lengra og gætu hæft skot­mörk í bæði Japan og Banda­ríkj­unum. Þessi öra þróun ger­ist sam­hliða gagn­rýni rík­is­stjórnar Trump á Kína fyrir að ekki gera nóg.

Donald Trump og Xi Jinping.
Donald Trump og Xi Jinping. Mynd: EPA

Þegar Rex Tiller­son, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, fór í opin­bera heim­sókn til Kína í þar síð­ustu viku fékk hann tíst í vega­nesti frá for­seta sínum, Donald Trump. Aðspurður af eina blaða­mann­inum sem Tiller­son hafði leyft að fylgja sér í ferð­inni, frá íhalds­sama frétta­miðl­inum Independent Journal Review, hvort tístið hefði flækt heim­sókn­ina, tjáði Tiller­son að hann hefði ekki vitað að Trump myndi tísta en að það ætti hins vegar ekki að koma kín­verskum stjórn­völdum á óvart að skoðun rík­is­stjórnar Trump væri að Kína hefði ekki nýtt áhrifa­vald sitt eins vel og það gæti til að sporna við kjarn­orku­vopna­þróun Norður-Kóreu. Eftir því sem aðal­mark­mið ferð­ar­innar var að skipu­leggja heim­sókn Xi Jinping, for­seta Kína, til golf­klúbbs Donald Trump í Mar-a-Lago í Flórída var því ljóst að umræðan um Norður-Kóreu gaf ferð­inni nýja vídd.

[links]Utan­rík­is­ráð­herra Kína, Wang Yi, hafn­aði gagn­rýni banda­rískra stjórn­valda og sagði að aðgerðir Kína gagn­vart Norður-Kóreu væru mik­il­vægar og aug­ljósar en að öðru leyti virt­ist Norður-Kórea ekki koma mikið við sögu á meðan á heim­sókn Tiller­son stóð. Það vakti athygli að í yfir­lýs­ingu Tiller­son að heim­sókn­inni lok­inni not­aði hann lýs­ingu Xi Jinping um sam­band Banda­ríkj­anna og Kína þegar hann sagði að sam­bandið ætti að byggja á gagn­kvæmri virð­ingu. Rík­is­stjórn Barack Obama hafði ítrekað ekki viljað nota hug­takið eftir því sem það gefur í skyn að löndin tvö ættu að virða kjarna­hags­muni hvors ann­ars sem fyrir Kína einnig felur í sér hags­muni lands­ins í Suður-Kínahafi. Það gæti verið að þetta tákni breyt­ingar í stjórn­mála­sam­bandi Banda­ríkj­anna og Kína ef hug­takið er hluti af samn­inga­tækni rík­is­stjórnar Trump til að hugs­an­lega gefa eftir í Suður-Kínahafi gegn því að Kína gefi eftir í öðrum málum, mögu­lega gagn­vart Norður-Kóreu.

[adspot]

Kjarnavopn og tilvist einræðis

Samkvæmt suð­ur­kóreskum stjórn­völdum sýndu prufur Norður-Kóreu á eld­flauga­véla­bún­aði fyrir skömmu að landið hefði tekið „þýð­ing­ar­miklum fram­förum“ í þróun öfl­ugra eld­flauga. Norður-Kórea hefur fram­kvæmt fjöl­margar eld­flaugaprufur und­an­farið og til­kynnti leið­togi lands­ins, Kim Jong-un, í nýárs­ræðu sinni að landið væri á loka­stigi í þróun svo­kallað ICBM-eld­flaug (Inter-Continental Ballistic Missile) sem gætu hæft skot­mörk í Banda­ríkj­unum.

Asíuferð Tiller­son sam­an­stóð einnig af heim­sóknum til Japans og Suður-Kóreu þar sem hann lagði drög að nýrri stefnu gagn­vart Norður-Kóreu þar sem hann tjáði að það væru „engin úrræði sem væru ekki á borð­inu“ og að stefna Obama sem ein­kennd­ist af „her­kænsku­legri þol­in­mæði“ hafði runnið sitt skeið. Með öðrum orðum gaf Tiller­son í skyn að hern­að­ar­leg úrræði væru ekki úti­lokuð. Banda­ríkin hefur nú þegar haf­ist handa með bygg­ingu nýs eld­flauga­varn­ar­kerfis í Suður-Kóreu. Stjórn­völd í Norður-Kóreu hafa til­kynnt að þau séu ekki hrædd við mögu­lega inn­rás Banda­ríkj­anna en ljóst er að hern­að­ar­leg lausn á póli­tísku vanda­máli myndi vera gíf­ur­lega kostn­að­ar­söm fyrir alla aðila.

Stjórn­völd í Norður-Kóreu eru vön því vernda hags­muni sína með kerf­is­bund­inni notkun á ógn­unum í tengslum sínum við Banda­ríkin og Suður-Kóreu en hin arf­genga ein­ræð­is­stjórn sem er við lífi í Norður-Kóreu er til komin vegna Kóreu-stríðs­ins þar sem um tvær og hálf milljón manns misstu lífið í stríði þar sem Banda­ríkin og Kína, og að hluta til Sov­ét­ríkin, studdu við bakið á sitt hvorri fylk­ing­unni eftir að Japanir drógu sig til baka frá Kóreu-skaga í kjöl­far seinni heims­styrj­aldar og end­aði í klofn­ingu sem er enn við lífi í dag. Þróun kjarna­vopna er kjarn­inn í örygg­is­stefnu norð­ur­kóreskra stjórn­valda sem bæði not­færa sér, og mögu­lega sækj­ast eftir, utan­að­kom­andi ógnir frá Banda­ríkj­unum sem rétt­læt­ingu fyrir til­vist sína. Það sem er hins vegar nýtt í þess­ari dýnamík er hugs­an­leg þróun Norður-Kóreu á eld­flauga­tækni sem gæti gert þeim kleift að byggja kjarna­vopn sem geta hæft Banda­ríkin. Þó sækj­ast stjórn­völd í Norður-Kóreu ekki endi­lega eftir stríði, enda átta þau sig á lík­urnar á ósigri eru miklar, en þróun slíkra vopna er mik­il­vægt skref í að tryggja stöðu hins ríkj­andi ein­ræðis.

Áhættustjórnun kínverskra stjórnvalda

Tengsl Kína við Norður-Kóreu í valda­tíð Xi Jinping hafa verið til­tölu­lega stirð og til­kynntu kín­versk stjórn­völd í lok febr­úar að þau myndu hætta inn­flutn­ingi á kolum frá Norður-Kóreu í kjöl­far eld­flaugaprufu og til­ræði gegn Kim Jong Nam, bróðir Kim Jong-Un, undir und­ar­legum kring­um­stæðum á flug­velli í Malasíu. Kína hefur lengi verið eins konar mis­vilj­ugur bak­hjarl Norður-Kóreu en tengsl land­anna tveggja eru náin og flókin, sér­stak­lega í ljósi hlut­verks Kína í Kóreu­stríð­inu. Hluti af þessum stuðn­ingi stafar af því að kín­versk stjórn­völd hafa lít­inn áhuga á að sjá sam­ein­aða Kóreu undir sterkum áhrifum Banda­ríkj­anna enda myndi það hugs­an­lega þýða að banda­rískar her­stöðvar yrðu stað­settar með fram landa­mærum Kína.

Mögulega líta kín­versk stjórn­völd á við­brögð banda­rískra stjórn­valda sem stærri ógn en hót­anir Norður-Kóreu enda er ekki ólík­legt að hern­að­ar­að­gerðir Banda­ríkj­anna gætu leitt til stríðs sem Kína yrði sogað inn í með einum eða öðrum hætti. Stefna Kína hefur lengi verið að hvetja Banda­ríkin til að setj­ast við samn­inga­borðið en erfitt er að segja hvort sú stefna eigi jafn­vel við í ljósi fram­fara Norður-Kóreu í þróun kjarna­vopna og til­koma ófyr­ir­sjá­an­legrar rík­is­stjórnar Donald Trump í Banda­ríkj­unum. Þá er sá skortur á trausti á milli Kína og Banda­ríkj­anna hvað varðar örygg­is­mál stærsta hindr­unin fyrir stjórn­völd land­anna tveggja að geta mótað sér nokkurn veg­inn sam­stíga stefnu gagn­vart Norður-Kóreu.

Óvissan á Kóreu­skaga hefur ríkt í tæp­lega sjö­tíu ár en það er ekki ólík­legt að afdrifa­ríkar þró­anir munu eiga sér stað í valda­tíð Donald Trump og ljóst er að það mun reyna mikið á utan­rík­is­teymi hans á næstu árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár