Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-málið rædd á þingi eftir páska

Tillaga allra stjórn­ar­and­stöðu­flokka, um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu, verður tekin á dag­skrá Alþingis beint eftir páska. Þetta segir Einar K. Guð­finns­son, for­seti þings­ins. Hann segir mál sem borið sé fram af fjórum for­mönnum stjórn­ar­and­stöðu­flokka hafi meiri vigt en almenn þing­manna­mál og því hafi hann ákveðið að málið verði það fyrsta sem verður á dag­skrá eftir páska­frí.

Stjórn­ar­and­staðan gagn­rýndi þetta á þing­inu nú síð­degis, og er ósátt við að málið skuli ekki fara fyrr á dag­skrá þings­ins. Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, vakti máls á þessu og gerði athuga­semd við að málið væri ekki á dag­skrá þings­ins í dag. „Það hlýtur að vekja spurn­ingu um hvað tefji þegar þing­menn fjög­urra flokka af sex hér á þingi, for­menn þess­ara sömu flokka, leggja fram slíka til­lögu. Af hverju fæst hún ekki sett á dag­skrá til umræðu? Er þetta enn ein til­raunin til að halda þing­inu frá umræðu um þessi mál sem hafa verið í umræðu alls staðar ann­ars staðar, liggur við, en í þing­inu að und­an­förnu?“

Einar svar­aði þessu og sagð­ist auð­vitað vera ljóst að á bak við þessa til­lögu standa for­menn allra stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna, „og vildi þess vegna greiða fyrir því að málið færi á dag­skrá. Nið­ur­staða for­seta var sú að þetta mál verður þá tekið fyrir strax að loknu páska­hléi á Alþingi.“

„Mér finnst ekki í lagi að segja við okkur að þetta geti beðið fram yfir páska,“ sagði Katrín Júl­í­us­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, þá. Undir þessar kröfur tóku fleiri stjórn­ar­and­stæð­ingar í kjöl­farið. Guð­mundur Stein­gríms­son, for­maður Bjartrar fram­tíðar, sagði lág­mark að stjórn­ar­and­stöð­unni væri umb­unað fyrir að fara réttar boð­leiðir með ákvörð­un­ar­valdið og málið fari á dag­skrá. Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra hefði ekki farið rétta boð­leið, öfugt við stjórn­ar­and­stöð­una.

Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði það fáheyrt að mál af þessu tagi fáist ekki rætt á þingi. „Þar fyrir utan finnst mér að hérna sé heldur betur verið að und­ir­strika þá gjá sem hefur orðið milli þings og þjóðar þegar við blasir að þetta er mál sem 80% þjóð­ar­innar vilja að nái fram að ganga. Þannig eru síð­ustu skoð­ana­kann­anir.“ Val­gerður Bjarna­dóttir og Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, þing­menn Sam­fylk­ing­ar­innar, tóku í sama streng.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ræddi þetta einnig. Hann sagð­ist hafa heyrt hug­mynd á göngum þings­ins um að tak­marka ætti ræðu­tíma þegar til­lagan verður rædd. Það vill hann ekki. „Ég held að það sé lyk­il­at­riði að við ræðum til­lög­una vel og lengi og notum tæki­færið og hrekjum þær bábiljur og þau rang­indi sem hafa komið fram í þessu máli og ræðum ESB-málið af fullri alvöru.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár