„Eiginmaður minn hefur aldrei átt eignarhlut í Skeljungi“

Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í borg­ar­stjórn, fjall­aði ítrekað um samn­inga sem vörð­uðu lóðir bens­ín­stöðva þrátt fyrir að eig­in­maður hennar stýrði móð­ur­fé­lagi Skelj­ungs. Lóðir bens­ín­stöðva Skelj­ungs hafa síðan verið seldar til tengdra félaga fyrir vel á annan millj­arð króna. Hún segir hæfi sitt aldrei hafa komið til álita.

Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks, tók þátt í afgreiðslu mála sem vörð­uðu Skeljung á þremur fundum borg­ar­ráðs þar sem rætt var um samn­ings­mark­mið vegna bens­ín­stöðva­lóða í Reykja­vík. Maður Hildar fór á þeim tíma fyrir stærsta eig­anda Skelj­ungs, sem hefur síðan selt þær lóðir sem samið var um fyrir tæpa 1,4 millj­arða króna.

Hildur segir í svari við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar vegna máls­ins að hæfi hennar hafi aldrei komið til álita. Hún hafi verið í minni­hluta í borg­ar­stjórn og gagn­rýnin á samn­ing­ana um bens­ín­stöðva­lóð­irnar. Skýrsla innri end­ur­skoð­unar Reykja­vík­ur­borgar (IER) vegna máls­ins hafi verið unnin að hennar beiðni.

Jón Skafta­son, eig­in­maður Hildar, hefur verið náinn sam­starfs­maður hjón­anna Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og Ingi­bjargar Pálma­dóttur um ára­bil.

Árið 2019 var Jón fram­kvæmda­stjóri fjár­fest­inga hjá 365 hf., félagi Ingi­bjargar. Í apríl það ár varð 365 stærsti ein­staki hlut­hafi Skelj­ungs með 10 pró­sent hlut.

Þann 9. maí það ár tók Hildur þátt í …

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MB
    Magnús Bjarnason skrifaði
    Athygisvert.
    0
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Oft kemur margt í ljós þegar betur er að gáð að er ekki til fyrirmyndar. Augljóslega er Hildur vanhæf að sitja fundi á vegum borgarstjórnar sem varða hagsmunamál sem tengjast eiginmanni hennar.
    Hildur hefur verið ötul við að gagnrýna en ætti að sjá sóma sinn að gæta betur hófs.
    Aldrei hefur þótt skynsamlegt að kasta grjóti úr glerhúsi.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár