Leggja til að launatekjur undir 300 þúsund verði skattfrjálsar

Flokkur fólks­ins og Mið­flokk­ur­inn leggja fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um 54 millj­arða til­færslu á skatt­byrði, af lág­launa­fólki og yfir á ann­ars vegar hærri laun­aða og eigna­fólk og hins vegar ríkið.

Alþingi
Alþingi Mynd: Bára Huld Beck

Lögð hefur verið fram þings­á­lykt­un­ar­til­laga á Alþingi sem ályktar að fela fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra að beita sér fyrir því að mán­að­ar­tekjur ein­stak­linga undir 300.000 krónum verði und­an­þegnar skatt­greiðslum og gera með laga og reglu­setn­ingu við­eig­andi ráð­staf­anir í því efni fyrir árs­lok 2018.

Flutn­ings­menn til­lög­unnar eru úr Flokki fólks­ins og Mið­flokknum, þau Ólafur Ísleifs­son, Anna Kolbrún Árna­dóttir, Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, Gunnar Bragi Sveins­son, Inga Sæland og Karl Gauti Hjalta­son.

Þings­á­lykt­un­ar­til­lagan felur í sér að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra er falið að gera tíma­setta áætlun um að tekjur ein­stak­linga undir 300.000 krónum verði und­an­þegnar skatti. Þau skatt­frels­is­mörk sam­svara 106.387 króna per­sónu­frá­drætti. Um tvö­földun skatt­leys­is­marka er að ræða. For­sendur útreikn­inga eru í skýrslu Hauks Arn­þórs­sonar.

Vilja jafna skattbyrði milli tekjuhópa

Í grein­ar­gerð til­lög­unnar eru mark­miðin sögð tvö. Annars vegar að jafna skatt­byrði milli tekju­hópa þannig að þátt­taka ríkra og fátækra í rekstri sam­fé­lags­ins verði lík­ari því sem tíðkast ann­ars staðar á Norð­ur­löndum og hins vegar að hlífa þeim sem eru með tekjur undir fram­færslu­mörkum við að greiða sam­fé­lag­inu skatta af þeim tekjum.

„Tillagan stuðlar að til­færslu fjár innan skatt­kerf­is­ins sem kemur fram í lægri skatt­heimtu hjá tekju­lágu fólki og hærri hjá þeim sem hafa háar tekjur. Með til­lög­unni er undið ofan af langvar­andi þróun þar sem skatt­byrði hefur flust frá tekju­háum til tekju­lágra,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Auknar ráðstöfunartekjur 54 milljarðar króna

Kostn­aður rík­is­sjóðs vegna breyt­inga á tekju­skatti yrði lít­ill, sam­kvæmt til­lög­unni. Að mestu leyti yrði um til­færslu milli tekju­hópa að ræða en flutn­ingur skatt­byrði af tekju­skatti frá hærra laun­uðum til þeirra lægra laun­aðra yrði um 22 millj­arðar króna.

Hins vegar yrði kostn­að­ar­auki sveit­ar­fé­laga nálægt 31,4 millj­örðum króna. Auknar ráð­stöf­un­ar­tekjur lág­launa­fólks yrðu allt að 54 millj­arðar króna árlega. Segir í grein­ar­gerð­inni að til greina kæmi að ríkið tæki á sig meira eða minna af kostn­aði við þessa skatt­breyt­ingu. En ef stefnt væri að því að skattar hækki ekki í krónu­tölu hjá neinum skatt­greið­anda þá gæti kostn­aður af breyt­ing­unni orðið há upp­hæð.

„Skipting per­sónu­frá­drátt­ar­ins milli aðila gerir það að verkum að ein­vörð­ungu er greitt útsvar af tekju­bil­inu 152 til 250 þús­und krónur, sam­tals um 13 millj­arðar króna á árinu 2017 og á tekju­bil­inu 250 til 300 þús­und króna taka sveit­ar­fé­lögin aðra 13 millj­arða króna, meðan rík­is­sjóður tekur 3,5 millj­arða króna í tekju­skatt á því tekju­bili. Þetta er athygl­is­vert af því að sveit­ar­fé­lögin gætu end­ur­greitt skatt­greið­endum með lágar tekjur útsvarið og gæti ríkið ekki skatt­lagt þær sömu tekjur ef um end­ur­greiðslu væri að ræða,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár