Fullbólusettir: 10.554

Það er aðeins ein tala á covid.is sem við hlökkum til að sjá hækka: Hversu margir hafa fengið bólu­setn­ingu. Nú er 10 þús­und manna múr­inn rof­inn – 10.554 eru full­bólu­settir og tæp­lega 7.000 til við­bótar hafa fengið fyrri skammt bólu­efnis.

Um 3 prósent landsmanna eru nú fullbólusettir.
Um 3 pró­sent lands­manna eru nú full­bólu­settir. Mynd: EPA

Miðað við þær dreif­inga­á­ætl­anir bólu­efnis sem fram­leið­endur þeirra hafa gefið út megum við eiga von á því að um 45 þús­und manns hafi fengið bólu­setn­ingu í lok mars. Enn liggja áætl­anir fyrir fram­haldið ekki fyrir en bjart­sýn­ustu spár, sem m.a. birt­ast í nýju bólu­setn­inga­daga­tali stjórn­valda, gera ráð fyrir að allir full­orðnir ein­stak­lingar hér á landi verði búnir að fá bólu­setn­ingu fyrir lok júní.

Í morgun, þriðju­dag­inn 23. febr­úar, höfðu 10.554 ein­stak­lingar fengið báða skammta bólu­efnis og eru því full­bólu­settir. 6.825 til við­bótar hafa fengið fyrri skammt­inn. Þetta þýðir að um 3 pró­sent af íbúum Íslands eru full­bólu­settir og um 3,8 pró­sent full­orð­inna. Gert er ráð fyrir að bólu­setja alla, sem það vilja, yfir sextán ára aldri.

[adspot]

Þau þrjú bólu­efni sem fengið hafa mark­aðs­leyfi hér á landi þarf öll að gefa í tveimur skömmtum. Þetta eru bólu­efni Pfizer, AstraZeneca og Moderna. Fyrir liggur stað­fest áætlun um afhend­ingu þess­ara lyfja til loka mars. Þá liggur einnig fyrir að þessir fram­leið­endur áforma að hafa fyrir lok júní afhent bólu­efni fyrir sam­tals 190.000 ein­stak­linga.

Á grund­velli Evr­ópu­sam­starfs hefur Ísland til við­bótar gert samn­inga um kaup á bólu­efnum Curavac og Janssen. Þá er Evr­ópu­sam­bandið að ljúka samn­ingi um bólu­efni Novavax sem Ísland fær hlut­deild í. Öll þessi lyf eru komin í áfanga­mat hjá Evrópsku lyfja­stofn­un­inni og þess vænst að þau fái mark­aðs­leyfi innan tíðar. Í samn­ingum um þessi bólu­efni kemur fram hve mikið fram­leið­endur þeirra áætla að geta afhent á öðrum árs­fjórð­ungi, þ.e. fyrir lok júní. Bólu­setn­ing­ar­daga­talið tekur mið af þessum upp­lýs­ingum.

Á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í gær fór Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir yfir stöðu bólu­setn­inga næstu vikur. Enn er verið að bólu­setja 90 ára og eldri og er nú meira en helm­ingur þess ald­urs­hóps full­bólu­settur.

Fjórð­ungur fólks á níræð­is­aldri (80-89 ára) hefur þegar verið full­bólu­settur. Fyrir mars­lok gera áætl­anir í sam­ræmi við dreif­ing­ar­á­ætl­anir bólu­efna­fyr­ir­tækj­anna­ráð að allir 80 ára og eldri verði búnir að fá að bólu­setn­ingu og tæp­lega helm­ingur fólks yfir sjö­tugu búinn að fá að fyrri skammt bólu­efn­is­ins.

Bólu­setn­ing­ar­daga­talið er svar við ákalli um ein­hvern fyr­ir­sjá­an­leika, sagði sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fund­inum í gær. Það er þó óvissu háð. Þó að von­ast sé til að bólu­efnin verði afhent hraðar á næsta árs­fjórð­ungi en hingað til hefur verið búist við er það alls ekki víst „og við þurfum að vera við öllu búin, líka því að dreif­ingin verði hæg­ari en við vildum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár