Ekki liggur fyrir hvað launahækkanir opinberra starfsmanna muni kosta

Stórir hópar opinberra starfsmanna hafa lengi haft lægri laun en samanburðarhópar á almennum vinnumarkaði en betri lífeyrisréttindi. Nú á að jafna þessa stöðu.
Stórir hópar opin­berra starfs­manna hafa lengi haft lægri laun en sam­an­burð­ar­hópar á almennum vinnu­mark­aði en betri líf­eyr­is­rétt­indi. Nú á að jafna þessa stöðu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Laun opin­berra starfs­manna eru um það bil 16 pró­sent lægri en starfs­manna á almennum vinnu­mark­aði. Með sam­komu­lagi sem ríkið gerði á mánu­dag um að sam­ræma líf­eyr­is­kerfi lands­manna skuld­batt það sig til að jafna þennan mun á innan við ára­tug. Laun opin­berra starfs­manna þurfa því að hækka um 16 pró­sent umfram allar almennar launa­hækk­anir á næstu tíu árum til að tak­markið náist. Þetta kemur fram í svari fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið. Nið­ur­staðan byggir á sam­an­burði Hagstofu Íslands á launa­mun opin­berra starfs­manna og þeirra sem starfa á almennum mark­aði.

Í svar­inu er þó gerður sá fyr­ir­vari að launa­sam­an­burður milli opin­bera og almenna mark­að­ar­ins sé ill­mögu­legur vegna þess að mark­að­irnir séu ólíkir á ýmsan hátt. Af þeim sökum töldu aðilar sam­komu­lags­ins sig ekki geta byggt frek­ari vinnu um launa­sam­an­burð á grunni nið­ur­stöðu Hag­stof­unnar. Því varð ofan á að byggja þyrfti vinn­una „á betri for­sendum og ræð­ast frekar á milli aðila.“

Eitt lífeyriskerfi fyrir alla

Lyk­il­at­riði í sam­komu­lagi sem und­ir­ritað var á mánu­dag um að sam­ræma opin­bera og almenna líf­eyr­is­kerfið, með þeim hætti að opin­berir starfs­menn njóti ekki lengur betri líf­eyr­is­rétt­inda en þeir sem starfa á einka­mark­aði, var að launa­kjör opin­berra starfs­manna yrðu jöfnuð við þau sem tíðkast á almennum mark­aði. Samkvæmt sam­komu­lag­inu á launa­jöfn­unin að nást innan ára­tugar.

Á móti eiga opin­berir starfs­menn að sam­þykkja stór­tækar breyt­ingar á líf­eyr­is­rétt­inda­vinnslu sinni. Stærstu breyt­ing­arnar eru þær að líf­eyr­i­s­töku­aldur verður hækk­aður úr 65 í 67 ár, sjóðs­söfnun mun byggja á föstum iðgjöldum og ávinnsla rétt­inda verður ald­urstengd. Það þýðir að rétt­indi verða skert eða aukin eftir afkomu sjóð­anna og því yngri sem fólk er þegar það byrjar að greiða, því verð­mæt­ari verða rétt­indi þeirra. Sam­hliða verður ábyrgð launa­greið­enda, ríkis og sveit­ar­fé­laga, á sjóð­unum afnumin.

Samráðshópur á meta launamun

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um hvort að unnin hefði verið grein­ing á því hvað það muni kosta ríki og sveit­ar­fé­lög að ná launa­jöfnun á næstu tíu árum. Í svari ráðu­neyt­is­ins segir til standi að setja á fót sam­ráðs­hóp opin­berra launa­greið­enda og heild­ar­sam­taka opin­berra starfs­manna og er honum ætlað að setja fram áætlun um hvernig mark­miði um jöfnun launa milli mark­aða skuli náð. 

Í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans segir einnig að eitt helsta verk­efni hans verði að greina launa­mun milli mark­aða og þróa aðferð­ar­fræði til að meta hann og „skil­greina við­mið um hvenær beri að leið­rétta launa­mun ein­stakra hópa.“

Verður mjög kostnaðarsamt

Það þýðir þó ekki að vís­bend­ingar liggi ekki fyrir um hversu háar fjár­hæðir sé um að ræða. Alls greiða um 35 þús­und manns í opin­bera líf­eyr­is­sjóði og því er um að ræða risa­stóran hluta íslensks vinnu­mark­aðar.

Starfs­hópur sem vann að sam­komu­lag­inu um breytt fyr­ir­komu­lag líf­eyr­is­mála fjall­aði sér­stak­lega um launa­mun á milli almenna og opin­bera vinnu­mark­að­ar­ins og fékk Hag­stof­una til liðs við sig við það verk­efni. Nið­ur­staða sam­an­burðar Hag­stof­unnar var að heild­ar­laun opin­berra starfs­manna væru um það bil 16 pró­sent lægri en starfs­manna á almennum mark­aði. Því er ljóst að árlegur launa­kostn­aður ríkis og sveit­ar­fé­laga þarf að hækka um marga millj­arða króna umfram allar almennar launa­hækk­anir til að launa­jöfnun verði náð innan næsta ára­tugar. 

Í svari fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans eru þó settir umtals­verðir fyr­ir­varar við þessa hlut­falls­legu tölu. Þar segir: „Þess ber þó að geta að Hag­stofan benti ítrekað á að launa­sam­an­burður milli opin­bera og almenna mark­að­ar­ins væri ill­mögu­legur þar sem þessir mark­aðir væru ólíkir m.t.t. starfs­stétta/stétt­ar­fé­laga, mennt­unar og fleiri þátta. Þá eru ýmsar starfs­stéttir sem vinna nær ein­göngu á öðrum hvorum mark­að­inum. Einnig er mik­ill munur innan opin­bera mark­að­ar­ins, þ.e. milli ríkis og sveit­ar­fé­laga, sem skýrist meðal ann­ars af ólíku mennt­un­ar­stigi. Af þessum sökum töldu aðilar sig ekki geta byggt frek­ari vinnu um launa­sam­an­burð á þessum grunni og því varð nið­ur­staðan sú að þetta þyrfti bæði að byggja á betri for­sendum og ræð­ast frekar milli aðila.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár