Fjöldi greindra COVID-19 smita eykst hratt í nokkrum ríkjum Bandaríkjanna

Um 2,1 milljón hafa smit­ast af COVID-19 í Banda­ríkj­unum. Gestir á kosn­inga­fundi Donalds Trumps, sem hald­inn verður á laug­ar­dag, munu þurfa að skrifa undir sam­komu­lag þess efnis að lög­sækja ekki fram­boð Trumps ef þeir veikj­ast í kjöl­far fund­ar­ins.

Sums staðar þarf ekki einu sinni að fara út úr bílnum fyrir skimun.
Sums staðar þarf ekki einu sinni að fara út úr bílnum fyrir skimun. Mynd: EPA

Mörg ríki Banda­ríkj­anna glíma nú við met­fjölda í nýgreindum smitum af COVID-19. Þau ríki sem glíma við mestan hlut­falls­legan vöxt í útbreiðslu veirunnar eru: Alabama, Alaska, Arizona, Arkansas, Kali­fornía, Flórída, Norður Karólína, Oklahoma og Suður Karólína. Þetta kemur fram í frétt Reuters um málið. Á síð­ustu dögum hefur smitum einnig fjölgað hratt í Flórída og Texas.

Ótti við að önnur bylgja sé við það að skella á í land­inu hefur gert það að verkum að þar­lend heil­brigð­is­yf­ir­völd biðla nú til almenn­ings um að nota and­lits­grímur og forð­ast stórar sam­komur. Heild­ar­fjöldi greindra smita í land­inu er kom­inn upp í 2,1 milljón.

[adspot]

Heil­brigð­is­yf­ir­völd í ríkjum Banda­ríkj­anna grunar að aukn­ing í smitum megi að ein­hverju leyti rekja til sam­koma sem haldnar voru á minn­ing­ar­degi fall­inna her­manna (e. Memorial Day). Að und­an­förnu hafa ríki Banda­ríkj­anna þar að auki verið að opna á ný, það er aflétta sam­komu­tak­mörk­unum og leyfa fyr­ir­tækjum sem þurftu að hætta starf­semi vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins að taka aftur til starfa.

Dr. Nahid Bhadelia, pró­fessor við Boston-háskóla og yfir­maður smit­sjúk­dóma­deildar Boston Medical Center, gerð það að umtals­efni í Meet the Press á sjón­varps­stöð­inni NBC í gær að mögu­lega hefðu ríki í suður- og vest­ur­hluta Banda­ríkj­anna opnað of snemma. Þá hefur hún áhyggjur af því hve hátt hlut­fall sjúkra­rúma sé í notkun í sumum ríkjum. Staðan sé einna verst í Arizona en þar eru 84 pró­sent sjúkra­rúma í notkun. Að hennar mati sé hætta á að sú aukn­ing í smitum sem nú á sér stað geti reynst heil­brigð­is­kerf­inu víða ofviða.

Líkur á að samkomutakmarkanir verði hertar að nýju

Andrew Cuomo, rík­is­stjóri New York ríkis, sagði á blaða­manna­fundi í gær að mikið hefði verið kvartað undan fyr­ir­tækjum í rík­inu sem færu ekki eftir til­mælum stjórn­valda nú þegar verið er að vinda ofan af sam­komu­tak­mörk­unum. Hann sagði að ef fyr­ir­tæki gætu ekki farið eftir þessum til­mælum gætu yfir­völd þurft að stöðva fram­gang opn­ana og grípa til hertra sam­komu­tak­mark­ana á ný. Fleiri hafa greinst með kór­ónu­veiruna í New York ríki heldur en í nokkru öðru ríki Banda­ríkj­anna.

Svipuð staða er uppi á ten­ingnum víðar í Banda­ríkj­unum. Hægt og rólega hefur lífið verið að kom­ast í samt lag í Houston og aflétt­ing tak­mark­ana staðið yfir síð­ustu vikur. Í frétt CBS segir að nú gæti hins vegar verið að þar þurfi aftur að skella í lás. Yfirvöld eru auk þess að skoða þann mögu­leika að koma upp bráða­birgða­spít­ala fyrir COVID-19 sjúk­linga á ruðn­ings­leik­vangi þar í borg.

Öflug skimun veldur háum tölum at mati Trumps

Enn stendur til að Donald Trump haldi kosn­inga­fund sinn í Tulsa í Oklahoma þann 20. júní næst­kom­andi, en Oklahoma er eitt af þeim ríkjum sem glíma við hraðan vöxt greindra smita. Gestir fund­ar­ins munu þurfa að skrifa undir sam­komu­lag þess efnis að þeir munu ekki lög­sækja fram­boð Trumps ef þeir veikj­ast í kjöl­far fund­ar­ins.

For­set­inn tísti fyrr í dag um fjölda greindra smita í land­inu sem hann sagði orsakast af öfl­ugri skimun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár