Öryggið verður ekki metið til fjár

Hjónin Maríana og Jesús fluttu til Íslands frá Mexíkó í leit að öryggi og bjartri framtíð fyrir samkyn­hneigðan unglingsson sinn og tvær dætur. Þau koll­vörpuðu lífi sínu, lifa við talsvert þrengri kost en áður en hafa fundið sinn stað í tilverunni hér á landi.

Alsæl með gjörbreytt líf
Alsæl með gjör­breytt líf Emilio, Maríanna, Jesús, Sara og Dóra eru öll sam­mála um að þau hafi tekið rétta ákvörðun þegar þau ákváðu að flytja frá Mexíkó til Íslands. Mynd: Heiða Helgadóttir

Aðeins fáeinum dögum eftir að hin mexíkósk-íslenska Maríana Sveins­dóttir, eigin­maður hennar, Jesús Zarate, og börnin þeirra þrjú höfðu tekið undir sig stökk og flutt alla leið frá Mexíkó til Íslands, lýsti sonur þeirra, Emilio, því yfir á samfélags­miðlum að hann hefði orðið fyrir kynferðis­legu ofbeldi. Að hann skyldi hafa hugrekki til að opna sig á þann hátt sannfærði hjónin um að þau hefðu breytt rétt þegar þau tóku ákvörðun um að kollvarpa lífi þeirra allra, svo sonur þeirra fengi að lifa óáreittur. Skömmu síðar tók fjöl­skyldan öll formlega þátt í gleði­göngunni á Íslandi til að styðja við Emilio og lýsa því sem stórkostlegri stund.

Í gleði­göng­unniFjöl­skyldan tók þátt í gleði­göng­unni skömmu eftir kom­una til Íslands. Það kom þeim á óvart að hún sner­ist raun­veru­lega um gleði og fögnuð hér, en ekki átök eins og á þeirra heima­slóðum.

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár