Vígbúnaður Rússa og NATO eykst

Rússar höfðu mun fjöl­menn­ara her­lið í löndum sem hafa landa­mæri við lönd Atl­ants­hafs­banda­lags­ins (NATO) en NATO hafði handan landamær­anna, sam­kvæmt töl­fræði hern­arn­að­ar­banda­lags­ins vest­ræna. Stjórn­völd í Rúss­landi hafa ítrekað haldið því fram að NATO hafi stöðugt aukið víg­búnað sinn sem mót­vægi við Rússa.

Samkvæmt töl­fræð­inni, sem birt­ist á vef Atlantic Council, hafði NATO her­lið í þremur löndum sem eiga aðild að banda­lag­inu áður en Rússar réð­ust inn á Krím­skaga. Það eru Litháen, Ung­verja­land og Pólland. Samtals 200 manna her­sveitir auk fjög­urra her­þota.

NATO telur hins vegar að Rússar hafi haft 33.200 manna her­lið í sjö löndum handan landamæra NATO. Herlið Rússa var stað­sett í Úkraínu (á Krím­skaga), Georgíu (Abkasíu og Suður-Ossetíu), Tadsjikistan, Armeníu, Moldóvu (Transní­stríu), Kyrgistan og Hvíta-Rúss­landi. Auk her­liðs­ins telur NATO nokkrar flota­hafnir og her­þotur í þessum löndum.

NATO hefur hins vegar aukið við her­lið sitt síðan Rússar inn­lim­uðu Krím­skaga í fyrra. Í febr­úar til­kynnti Jens Stol­ten­berg, fram­kvæmda­stjóri NATO, að banda­lagið myndi koma fyrir 5.000 manna her­liði sér­stakra útkalls­sveita í sex löndum á landa­mærum við áhrifa­svæði Rússa. Það eru Eystra­salts­löndin þrjú, Eistland, Lettland og Litháen, Pólland, Rúmenía og Búlgaría. Í öllum þessum löndum hefur verið komið upp stjórn­stöðvum fyrir her­deild­irnar.

Samtals, sam­kvæmt frétt The Guardian um málið, eru 30.000 manna her­deildir NATO nú stað­settar á aust­ari landa­mærum banda­lags­ins. „Ef krísa á sér stað geta her­deild­irnar tryggt að með­limir NATO geti brugð­ist við um leið,“ sagði Stol­ten­berg í febr­úar þegar þetta var til­kynnt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár