Apple kynnir stærri iPad og iPhone 6s - Rýnt í orðróminn

Apple heldur sína reglu­legu kynn­ingu á nýjum vörum í San Francisco í dag. Eins og venju­lega gerir áhuga­fólk um tækni ráð fyrir að Tim Cook, for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, kynni til leiks ný tæki eða upp­færslur á eldri vörum banda­ríska tölvuris­ans. En hvers má vænta frá Apple á kom­andi vetri?

Talið er að á þess­ari kynn­ingu muni Apple kynna til leiks næstu kyn­slóð iPhone-síma, týpu 6s og 6s Plus, upp­færslu á spjald­tölv­unni í iPad Pro og nýjan iPad Mini. Þá er talið að nýtt Apple TV muni líta dags­ins ljós þar sem við­skipta­vinum Apple verði boðið að streyma sjón­varp­stöðvum yfir inter­netið. Auk þess er talið að Cook muni kynna nýja týpu Apple-úrs­ins og upp­færslu stýri­kerfa fyrir snjall­tækin um leið.

Aðeins er um orðróma að ræða enda hefur Apple haldið fast um spilin und­an­farin ár; sér­stak­lega eftir að sam­keppnin jókst á snjall­tækja­mark­aði frá stórum tölvu­fyr­ir­tækjum á borð við Samsung. Það sem vakið hefur sér­staka athygli spek­úlanta fyrir kynn­ing­una í dag er kynn­ing­ar­efnið. Það eina sem stendur þar er: „Hey Siri, give us a hint“. Siri er radd­stjórn­aður róbot í stýri­kerf­inu fyrir snjall­tækin og hefur það vakið spurn­ingar um hvort Siri fái upp­færslu í takti við nýlega bylt­ingu Google í lærðri gervi­greind tölva.

Kynn­ingin hefst klukkan 17 að íslenskum tíma og er hægt að fylgj­ast með henni í beinni útsend­ingu á vef Apple. Tækni­varpið mun fjalla um kynn­ing­una og þær nýj­ungar sem verða kynntar í Hlað­varpi Kjarnans á morgun. Á meðan kynn­ingin stendur yfir má fylgj­ast með MacRumors á Twitter draga aðal­at­riðin frá hefð­bund­inni lof­ræðu fyr­ir­les­ar­anna.

Nýjungarnar


Talið er að iPhone 6s og 6s Plus verði kynntir til leiks sem nýjasta kyn­slóð þessa vin­sælasta far­síma í heimi. Símarnir munu líta svipað út og síð­asta kyn­slóð, sem kynnt var fyrir réttu ári síðan, en vera búnir ýmsum tækni­legum nýj­ungum. Spek­úlantar telja sím­ana verða búna nýjum A9 örgörva sem mun gera tækið fljót­ara að vinna úr skip­unum og geta tek­ist á við flókn­ari verk­efni.

https://youtu.be/RNsKsBU5Tf8

Þá er lík­legt að snert­iskjár­inn muni skilja hversu fast not­and­inn ýtir á hann með tækni sem kölluð hefur verið „Force Touch“. Mynda­vél­arnar verða líka upp­færðar og úr 8 og 1,2 milljón punkta mynda­vélum síð­ustu kyn­slóðar í 12 og 5 milljón punkta.

https://youtu.be/_MKcg9uxvyU

Nýtt Apple TV verður mun að öllum lík­indum hafa mun fjöl­breytt­ari notk­un­ar­mögu­leika en síð­asta kyn­slóð og bjóða not­endum að horfa á sjón­varps­út­send­ingar yfir inter­netið, ekki ósvipað þeirri tækni sem við hér á Íslandi finnum í afrugl­urum frá bæði Símanum og Vodafone. Þá verður hugs­an­lega hægt að radd­stýra tæk­inu með Siri.

Sala á spjald­tölvum hefur staðnað nokkuð eftir að stærstu síma­fram­leið­endur hófu að fram­leiða stóra, sex tommu síma á borð við Samsung Galaxy Note 4 og iPhone 6 Plus. Talið er að Apple muni kynna iPad Pro í dag. Síðasti iPad var kynntur í októ­ber í fyrra en þessi nýi verður stærri; heilar 13 tommur. Samkvæmt orðróm­inum fær spjald­tölvan miklar tækni­legar upp­færslur. Víðóma hátal­arar á báðum hliðum, öfl­ugri A9 örgörvi, Force Touch og (reyndar ólík­lega) USB-tengi til þess að fjölga notk­un­ar­mögu­leikum tölv­unar.

https://youtu.be/rMjJeBiuPjI

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár