Bankaráð gerir ekki athugasemd við þagnarskyldu

Bankaráð Seðla­banka Íslands hefur sömu afstöðu og stjórn­endur bank­ans gagn­vart því að upp­lýsa um hverjir nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið bank­ans. Um það ríki þagn­ar­skylda. Engar til­kynn­ingar um pen­inga­þvætti voru sendar vegna þeirra sem nýttu sér leið­ina.

Bankaráð Seðla­banka Íslands gerir ekki athuga­semd við þá afstöðu stjórn­enda bank­ans að veita ekki upp­lýs­ingar um hverjir það eru sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands til að flytja fé inn í íslenskt hag­kerfi. Stjórn­endur Seðla­bank­ans hafa alla tíð neitað að veita upp­lýs­ingar um þá sem nýttu sér leið­ina og vísað í 35. grein laga um bank­ann um þagn­ar­skyldu því til stuðn­ings. Þar segir að banka­ráðs­menn, stjórn­endur og aðrir starfs­menn Seðla­banka Íslands séu bundnir þagn­ar­skyldu „um allt það sem varðar hagi við­skipta­manna bank­ans og mál­efni bank­ans sjálfs.“

Kjarninn hefur ítrekað óskað eftir upp­lýs­ingum um hverjir það voru sem nýttu sér leið­ina en ávallt fengið neitun byggða á ofan­greindum rökum. Í kjöl­far birt­ingar á skýrslu sem kort­lagði aflands­fé­laga­eignir og skattaund­an­skot Íslend­inga, þar sem fjallað var sér­stak­lega um fjár­fest­inga­leið­ina, var sú beiðni lögð frá á ný og þess sér­stak­lega óskað að banka­ráð Seðla­banka Íslands tæki afstöðu til hennar.

Fyr­ir­spurnin lögð fyrir á fundi banka­ráðs 19. jan­úar 2017 og sam­kvæmt svörum Seðla­banka Íslands hafði banka­ráðið engu við fyrri svör að bæta. „Í þessu felst að banka­ráðið gerði ekki athuga­semd við svar bank­ans hvað þetta til­tekna atriði varðar,“ segir enn fremur í svar­inu.

Fjárfestingarleiðin til umfjöllunar í skýrslu um aflandseignir

Alls fóru fram 21 útboð eftir fjár­fest­inga­leið­inni frá því í febr­úar 2012 til febr­úar 2015, þegar síð­asta útboðið fór fram. Í gegnum þau komu um 1.100 millj­ónir evra til lands­ins, sem sam­svarar um 206 millj­örðum króna. Ef þeir sem komu með þennan gjald­eyri til Íslands hefðu skipt þeim á opin­beru gengi Seðla­bank­ans, líkt og venju­legt fólk þarf að gera, hefðu þeir fengið um 157 millj­arða króna fyrir hann. Virð­is­aukn­ingin sem fjár­fest­inga­leiðin færði eig­endur gjald­eyr­is­ins í íslenskum krónum var því 48,7 millj­arðar króna.

794 inn­lendir aðilar komu með pen­inga inn í íslenskt hag­kerfi í gegnum útboð fjár­fest­ing­ar­leiðar Seðla­banka Íslands. Pen­ingar þeirra námu 35 pró­sent þeirrar fjár­hæðar sem alls komu inn í landið með þess­ari leið, en hún tryggði um 20 pró­sent afslátt á eignum sem keyptar voru fyrir pen­ing­anna á Íslandi. Alls fengu þessir aðilar 72 millj­arða króna fyrir þann gjald­eyri sem þeir skiptu í íslenskar krónur sam­kvæmt skil­málum útboða fjár­fest­ing­ar­leið­ar­inn­ar. Afslátt­ur­inn, eða virð­is­aukn­ing­in, sem þeir fengu með þessu umfram það ef þeir hefðu skipt gjald­eyr­inum á skráðu gengi Seðla­bank­ans er um 17 millj­arðar króna.

Í skýrslu starfs­hóps um eignir Íslend­inga á aflands­­svæð­um, sem birt var í byrjun jan­úar, er fjallað um fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands og því meðal ann­ars velt upp hvort hún hafi orðið til þess að hluti af fjár­magn­inu frá aflands­svæð­um, sem orðið hafi til með ólög­mætum hætti, hafi skilað sér Íslands með geng­is­af­slætti í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið­ina.

Orð­rétt segir í skýrsl­unni: „Miðlun upp­lýs­inga um fjár­magns­flæði inn og út úr land­inu, t.d. aflandskrónur sem fluttar hafa verið til lands­ins og eins þátt­taka í fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­bank­ans er ekki til stað­ar. Sér í lagi hefur skatt­yf­ir­völdum ekki verið gert við­vart af hálfu Seðla­bank­ans þegar um grun­sam­legar fjár­magnstil­færslur er að ræða. Æski­legt má telja að sam­starf væri um miðlun upp­lýs­inga á milli þess­ara stofn­ana.“

Engar tilkynningar sendar

Í kjöl­farið spurð­ist Kjarninn fyrir um það hjá Seðla­banka Íslands og við­skipta­bönk­unum fjórum um hvort ein­hverjar til­kynn­ingar hefðu verið sendar til pen­inga­þvætt­is­skrif­stofu (Financial Intelligence Unit). Seðla­bank­inn sagði að það væri ekki í verka­hring hans að gera slíkt heldur ættu við­skipta­bank­arnir að stað­festa áreið­an­leika sinna við­skipta­manna áður en þeir fengu að nýta fjár­fest­inga­leið­ina.

Þrír bank­anna: Íslands­banki, Arion banki og Lands­banki Íslands, vildu ekki svara því hvort þeir hefðu sent ein­hverjar til­kynn­ingar til pen­inga­þvætt­is­skrif­stof­unnar vegna gruns um að ein­hverjir úr við­skipta­manna­hópi þeirra hafi þvættað pen­inga með því að nýta sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina. Kvika banki sagð­ist ekki hafa sent neinar slíkt til­kynn­ingar.

Embætti hér­aðs­sak­sókn­ara, en pen­inga­þvætt­is­skrif­stofan heyrir undir það, sagði í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans að eftir því sem næst verður kom­ist þá hafi ekki borist neinar til­kynn­ingar frá fjár­mála­fyr­ir­tækjum vegna fjár­festa sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár