Öngstræti Mueller-rannsóknarinnar

Fyrir rúmri viku síðan, fimmtudaginn 18. apríl, birti dómsmála­ráðuneyti Banda­ríkjanna stytta og ritskoðaða útgáfu af skýrslu Robert Mueller. Þar með kom skýslan, eða hluti hennar í það minnsta, fyrir augu almennings í fyrsta sinn, því það eina sem hafði birst fram að því var fjögurra blaðsíðna endursögn Willaim Barr á helstu niður­stöðum skýrslunnar.

Vilja sjá skýrsluna alla
Vilja sjá skýrsl­una alla Hópar fólks söfn­uð­ust saman í fjölda borga í Banda­ríkj­unum fyrr í mán­uð­inum og kröfð­ust þess að skýrslan Robert Mueller verði öll gerð opin­ber. Fyrir rúmri viku birti dóms­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna stytta og rit­skoð­aða útgáfu af skýrsl­unni. Mynd: Shutterstock

Það er löng hefð að birta slæmar fréttir í vikulokin, og enn betra að grafa fréttir með því að birta þær fyrir langa helgi eins og páska­helgina. Það er hins vegar engin hætta á að Mueller-skýrslan hverfi úr fjöl­miðlum í bráð, því Demó­kratar hafa krafist þess að þingið fá aðgengi að allri skýrslunni og undir­liggjandi gögnum. Repúblíkanar hafa fyrir sitt leyti lofað rann­sóknum á rann­sókninni og Hvíta húsið hefur lýst yfir að það muni berjast gegn öllum tilraunum þingsins til að stefna gögnum eða vitnum rann­sóknarinnar.

Rússarannsóknin sem öngstræti

Það er varla ofsögum sagt að fáum skýrslum hafi verið beðið eftir af jafn mikilli eftir­væntingu og skýrslu Mueller. Margir andstæðingar forsetans voru sann­færðir um að skýrslan myndi sýna að Vladimir Putin hefði rænt kosningunum 2016 fyrir Trump. Forsetinn væri þannig afhjúpaður sem strengja­brúða Putin og myndi í kjölfarið hrökklast úr embætti. 

Umfjöllun um rann­sóknina fékk þannig oft …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár