Af hverju er sumardagurinn fyrsti hátíðisdagur?

Síð­ast­lið­inn fimmtu­dag var sum­ar­dag­ur­inn fyrsti. Menn virð­ast hafa litið á fyrsta dag sum­ars sem upp­haf árs­ins hér áður fyrr. Það sést á því að aldur manna var jafnan tal­inn í vetrum og því hafi dag­ur­inn verið hald­inn hátíð­legur.

Sum­ar­dag­ur­inn fyrsti var á fimmtu­dag. Dagurinn er tal­inn annar fimmtu­dagur eftir Leon­is­dag, sem er 11. apríl ár hver, eða með öðrum orðum, fyrsti fimmtu­dagur eftir þann 18. apríl. Sum­ar­dag­ur­inn fyrsti er því aldrei fyrr en í fyrsta lagi 19. apríl og eigi síðar en 25. apríl.

Vís­inda­vef­ur­inn segir, að þrátt fyrir að það sé hvergi sagt berum orðum í lögum, þá hafi menn virst hafa litið á fyrsta dag sum­ars sem upp­haf árs­ins. Það sjá­ist á því að aldur manna var jafnan tal­inn í vetrum og því hafi dag­ur­inn verið hald­inn hátíð­legur.

Sum­ar­gjafir voru gefnar að minnsta kosti fjórum öldum áður en jóla­gjafir fóru að tíðkast. Þá var haldin mat­ar­viesla sem þótti ganga næst jól­unum. Fyrsti dagur sum­ars var líka frí­dagur frá vinnu og börn fengu að fara á milli bæja til að leika sér við nágranna. Þá var hann einnig helg­aður ungum stúlkum og nefndur yng­is­meyja­dagur. Piltar máttu þá gefa í skyn hverja þeim leist á. Þetta var sam­bæri­legt við bónda­dag­inn og konu­dag­inn á fyrsta degi þorra og góu.

Á Vís­inda­vefnum kemur fram að dag­ur­inn sé hluti af miss­er­ist­al­inu sem tíðkast hafi hér á landi frá land­námi. „Árinu er þar skipt í tvo nærri jafn­langa helm­inga: Sum­ar­helm­ing og vetr­ar­helm­ing. Þó svalt sé oft í veðri á þessum árs­tíma er dag­ur­inn vel val­inn af for­feðr­unum því sum­arið ‒ frá sum­ar­deg­inum fyrsta og til fyrsta vetr­ar­dags á haustin ‒ er einmitt hlýrri helm­ingur árs­ins, en vet­ur­inn sá kald­ari. Sömu­leiðis verða á þessum tíma árviss fjör­brot vetr­ar­ins í háloft­unum yfir land­inu og sum­arið tekur við, þá dregur að jafn­aði mjög úr afli veð­ur­kerfa.“

Áður en róm­verska tíma­talið barst hingað með kirkj­unni höfðu Íslend­ingar komið sér upp eigin tíma­tali sem ekki virð­ist hafa verið til ann­ars staðar. Senni­lega hefur Íslend­ingum þótt nauð­syn­legt að hafa eitt­hvert sam­eig­in­legt tíma­við­mið eftir að þeir settu sér eigin sam­fé­lags­reglur með stofnun Alþingis snemma á 10. öld. Róm­verska tíma­talið varð virkt eftir að föst skipan komst á kirkj­una með stofnun bisk­ups­stóls eftir miðja 11. öld. Íslend­ingar köst­uðu samt gamla tíma­tal­inu ekki fyrir róða heldur lög­uðu það til svo að það lifði góðu lífi við hlið hins kirkju­lega tíma­tals og gerir enn í vönd­uðum almanökum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár