Spyr hvernig markaðssetning landsins og harðari aðgerðir á landamærum fara saman

Þing­maður Við­reisnar er „ringlaður“ því rík­is­stjórn boðar hertar aðgerðir á landa­mærum á sama tíma og gosið í Geld­inga­dölum er aug­lýst á Times Square. Hægt sé að taka á móti bólu­settu ferða­fólki án þess að fórna sótt­vörnum segir ferða­mála­ráð­herra.

„Ég er að velta fyrir mér hvernig fer þetta saman eða getur þetta farið saman að hvetja ferða­menn til að koma í auknum mæli til lands­ins og að herða á sama tíma eft­ir­lit á landa­mær­unum?“ spurði Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar, Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfa­dóttur, nýsköp­unar-, iðn­aðar- og ferða­mála­ráð­herra, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag.

Jón sagð­ist vera örlítið ringlaður eftir gær­dag­inn og vís­aði þar til blaða­manna­fundar sem hald­inn var í Hörpu „þar sem var verið að boða frum­varp sem var lagt fram í gær­kvöldi um hertar sótt­varnir á landa­mærum og á sama tíma sá maður í fjöl­miðlum að gosið í Geld­inga­dölum var tekið að falla niður hús­veggi á Times Square þar sem var verið að hvetja ferða­menn erlenda til að sækja Ísland heim.“

Jón vitn­aði í grein­ar­gerð umrædds frum­varps þar sem segir að reynslan sýndi að ein­ungis þyrfti einn ein­stak­ling sem ekki virti sótt­kví eftir kom­una til lands­ins til að hrinda af stað hóp­sýk­ingu og jafn­vel nýrri bylgju far­ald­urs. Því næst spurði hann ráð­herra hvort hún ótt­að­ist ekki að gloppur og bað hana að skýra hvernig þetta tvennt færi saman, harð­ari tak­mark­anir á landa­mærum og mark­aðs­setn­ing lands­ins.

Vilja tryggja að fólk skoði Ísland sem áfangastað

Þórdís byrj­aði á að árétta að aug­lýs­ingin á Times Square væri aug­lýs­ing Icelandair. Hún sagði að fjár­munir hefðu verið teknir frá til þess að setja í mark­aðs­sókn. Þeir fjár­munir hefðu til dæmis verið nýttir til að kanna áhuga og ferða­vilja fólks. „Við erum í ákveð­inni her­ferð til að tryggja að Ísland sé í und­ir­með­vit­und fólks og fólk sé að skoða Ísland sem mögu­legan áfanga­stað,“ sagði Þórdís.

Hún sagði að nú væri sótt á Banda­ríkja­markað vegna þess að þar hafi bólu­setn­ingar gengið vel og að fólk þar sé til­búið til að ferð­ast með bólu­setn­ing­ar­vott­orð. „Nýjar aðgerðir og breyt­ingar sem eru áform­aðar á landa­mærum snerta ekk­ert það fyr­ir­komu­lag sem við erum með varð­andi bólu­setn­ing­ar­vott­orð og vott­orð um mótefni. Þar er sú regla að það er ein­föld skimun á landa­mærum. Það hefur gengið vel og ekk­ert smit komið þar upp það sem af er þeim tíma.“

Næstu vikur yrðu vænt­an­lega rólegar en Þórdís sagð­ist vona að sum­arið yrði gott bæði fyrir Íslend­inga á ferða­lögum sem og fyrir ákveð­inn hóp ferða­manna.

Spyr hversu mikið innviðirnir þola

„Ég skil það þannig að Icelandair njóti þá ekki neinna fjár­muna frá íslenska rík­inu til að aug­lýsa þarna og að Íslands­stofa sé ekki í sér­stakri mark­aðs­her­ferð erlendis til að laða að erlenda ferða­menn á þess­ari stundu. Ég kýs að skilja það þannig. Hæst­virtur ráð­herra leið­réttir mig þá ef það er ekki rétt,“ sagði Jón Steindór þegar hann steig í pontu öðru sinni.

Jón Steindór sagði vel heppn­aðar mark­aðs­her­ferðir leiða til þess að áhugi ykist svo til­gangur her­ferðar hlyti því að vera að laða hingað að ferða­menn í stórum stíl. Hann spurði því hversu und­ir­búin við værum til þess að taka við slíkum fjölda.

„Þá er spurn­ingin um inn­við­ina og hvernig þeir geta tekið við. Þá er ég fyrst og fremst að vísa til þess hvernig menn ætla að taka sýni úr öllum þessum ferða­mönnum, hvernig menn ætla að halda þeim við sótt­kví í sex klukku­tíma og hvernig menn ætla að halda því til streitu að þeir kom­ist ekki út í sam­fé­lagið, því að dæmin sanna að jafn­vel bólu­sett fólk getur borið með sér veiruna og dreift henni,“ sagði Jón Steindór og spurði hvort búið væri að hugsa þetta til enda.

Það borgi sig að taka á móti bólusettum

Þórdís Kolbrún sagði til skýr­ingar að Íslands­stofa væri að nýta fjár­muni til að mark­aðs­setja landið og hafi gert það að und­an­förnu. Enn væru þó tölu­verðar fjár­hæðir eftir sem yrðu vænt­an­lega nýttir þegar fleiri hafa verið bólu­settir hér á landi. „En við notum þá fjár­muni með mark­vissum hætti til þess bæði að mæla ferða­vilja, sjá hvar helstu tæki­færin eru og aug­lýsa Ísland meðal fólks víða um heim.“

Hægt sé að fá hingað ferða­menn án þess að það sé gert á kostnað sótt­varna að mati Þórdísar. „Skimun­ar­getan hefur stór­auk­ist og það er staða sem við þurfum á hverjum tíma að vera örugg um að geta sinnt. En það er þá líka fjár­fest­ing sem myndi borga sig mjög hratt til að geta tekið á móti bólu­settu fólki, og eins og ég nefndi hefur eng­inn hingað til komið bólu­settur í gegnum skimun og greinst jákvæður þar. Þetta er við­leitni til að gera það sem við getum til að auka umsvif og tekjur rík­is­ins og íslensks atvinnu­lífs án þess að það sé á nokkurn hátt á kostnað sótt­varna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár