Norður-Kórea þróar langdrægari flugskeyti

Geim­ferða­stof­unun Norður-Kóreu er að byggja nýja gervi­hnetti og und­ir­búa geim­skot, að sögn rík­is­fjöl­miðla þar í landi. Þetta er mögu­lega vís­bend­ing um að Norður-Kóreu­menn hafi náð fram­förum í smíði eld­flauga og að þær séu nú lang­drægn­ari og geti borið þyngri farm en áður. Reuters er meðal þeirra sem greina frá þessu.

Gert er ráð fyrir að Norður-Kórea sendi af stað lang­dregna flaug 10. októ­ber á stofndegi komm­ún­ista­flokks­ins sem öllu ræður þar í landi. Slíkt skot mun að öllum lík­indum brjóta gegn alþjóða­sam­þykktum. Haft var eftir yfir­manni geim­ferða­stofn­un­ar­innar að nú væri síð­asta skrefið hafið í þróun gervi­hnattar sem getur kannað yfir­borð jarðar.

Bæði Suður-Kórea og Banda­ríkin hafa brugð­ist við yfir­lýs­ingum norð­an­manna og sagt allar til­raunir þeirra með lang­dregnar flaugar brjóta gegn sam­þykktum Örygg­is­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna. Eftirlit þess­ara þjóða með grun­sam­legum stöðum í Norður-Kóreu hefur ekki leitt í ljós neitt óvenju­legt og því óvíst hvort full­yrð­ing­arnar séu sannar.

Shin In-kyun, yfir­maður óháðu stofn­un­inni Örygg­is­net Kóreu (e. Korea Defence Network), segir að til­raunir Norður-Kóreu með eld­flaugar miði annað hvort að því að gera þær lang­dregn­ari eða bera meiri þyngd, hvort sem það er með vopn eða geim­búnað. „Það yrði ekki góðs viti ef flaugar þeirra geta borið kjarn­orku­vopn, um það bil 1,3 tonn, því það setur vest­ur­strönd Banda­ríkj­anna í skotsviðið,“ sagði Shin.

Stjórn­völd í Norður-Kóreu þver­taka fyrir það að vera að útbúa lang­drægar skot­flaugar til nota í hern­aði. Heldur sé verið að und­ir­búa lög­mæta geim­ferða­á­ætlun sem miðar að því að því að koma gervi­tunglum á braut um jörðu. Banda­ríksk og suður-kóresk yfir­völd telja hins vegar að þetta teng­ist kjarn­orku­til­raunum norðan landamær­anna á Kóreu­skaga.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Jimmy Carter, fyrr­ver­andi for­seti Banda­ríkj­anna, heim­sótti Pjongj­ang árið 1994 og ræddi við Kim il-Sung. Í kjöl­farið hætti Norður-Kórea kjarn­orku­til­raunum í átta ár.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár