Nýtt námslánakerfi fjármagnað að mestu með vöxtum og á að auka skatttekjur

Samkvæmt nýju frum­varpi fá íslenskir náms­menn í fyrsta sinn beina styrki sem dreifast jafnt á alla. Á móti verða settar hömlur á lán­töku og vextir hækk­aðir. Til­gang­ur­inn er að ná fram millj­arða­aukn­ingu á þjóð­ar­fram­leiðslu.

Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, kynnti frumvarpið fyrir helgi.
Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, kynnti frum­varpið fyrir helgi. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Nýtt náms­lána/náms­styrkja­kerfi var kynnt fyrir helgi og búið er að afgreiða frum­varp vegna þess úr rík­is­stjórn og þing­flokkum beggja stjórn­ar­flokka. Um er að ræða algjöra bylt­ingu á aðkomu rík­is­ins að fjár­mögnun nem­enda á meðan að á láns­hæfu námi stendur. Tekið verður upp styrkja­kerfi, láns­hæf­is­tími styttur og full fram­færsla verður í boði. Á móti verða vextir náms­lána hækk­aðir, alls kyns þök sett á náms­lána- og náms­styrkja­töku og eldra fólk og dokt­or­snemar munu ekki lengur fá styrki eða lán frá Lána­sjóði íslenskra náms­manna (LÍN).

Ljóst er að breyt­ing­arnar verða umdeildar. Það sést strax á þeim umræðum sem orðið hafa um málið í kjöl­far þess að Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, kynnti það fyrir helgi.

Illugi er raunar ekki óvanur því að áherslur hans í þeim við­kvæma mála­flokki sem mennta­mál eru séu umdeildar. Flestar eiga til­lögur hans þar það sam­eig­in­legt að stefna að auknum þjóð­hags­legum ávinn­ingi fyrir sam­fé­lagið. Og LÍN-breyt­ing­arnar eru einn liður í mun stærri áformum hans til að ná slíkum. Aðrar mik­il­vægar breytur í þeirri veg­ferð eru t.d. raf­ræn sam­ræmd próf, sem þreytt verða frá og með næsta hausti, sem gera góðum nem­endum kleift að fara beint úr níunda bekk inn í fram­halds­skóla, kjósi þeir svo. Þá hefur fram­halds­skóla­námið verið stytt niður í þrjú ár í nær öllum fram­halds­skólum lands­ins í stjórn­ar­tíð Illuga og nú á breyt­ingin á LÍN að búa til sterka fjár­hags­lega hvata til að klára háskóla­nám sem fyrst.

Nið­ur­staðan á að verða sú, ef áætlun Illuga gengur upp, að íslenska mennta­kerfið skili háskóla­mennt­uðu fólki inn á vinnu­mark­að­inn mun yngra en nú er. Í nýja kerf­inu er enda mögu­leiki á því að fara í fram­halds­skóla 15 ára, í háskóla 18 ára og útskrif­ast þaðan með BA eða BS-gráðu 20-21 árs.

Samkvæmt útreikn­ingum mennta- og menn­inga­mála­ráð­herra eiga þessar kerf­is­breyt­ingar að skila auk­inni þjóð­ar­fram­leiðslu upp á 23 millj­arða króna árlega. Stytting fram­halds­skóla­náms á að skila 15,5 millj­örðum króna og blandað náms­styrkja­kerfi 7,5 millj­örðum króna.Sú auknign á þjóð­ar­fram­leiðslu á síðan að skila um níu millj­örðum krónum árlega í hærri skatt­tekjum.

Í þessum útreikn­ingum er reyndar gert ráð fyrir að allir þeir sem skila sér út á vinnu­mark­að­inn fyrr muni fá með­al­laun. Ekki liggur fyrir að svo verði, og í raun er það ólík­legt sem stendur. Nær öll ný störf sem verða til á Íslandi í dag eru enda lág­launa­störf í ferða­þjón­ustu eða tengdum greinum. Fólkið sem sinnir þeim störfum er að miklu leyti flutt inn, enda ekki um störfin sem íslenska mennta­kerfið er að mennta Íslend­inga til að sinna að ræða.

Beinir styrkir fyrir alla í stað óbeinna styrkja fyrir suma

Frumvarp til laga um náms­lán og og náms­styrki var birt á vef Alþingis í gær. Stærstu breyt­ing­arnar sem sam­þykkt þess mun hafa í för með sér eru þær að tekið verður upp styrkja­kerfi. Samkvæmt því munu allir í háskóla­námi eða sem stunda iðn- og verk­nám, geta fengið 65 þús­und krónur greiddar í styrk á mán­uði níu mán­uði árs­ins fyrir að vera í skóla. Styrk­ur­inn er ekki tekju­tengdur og því geta þeir sem hann þiggja unnið með skóla án þess að það skerði greiðslu á styrknum.

Til að fá styrk­inn þarf að sýna 73 pró­sent náms­fram­vindu. Þ.e. það þarf að ná 73 pró­sent þeirra ein­inga sem telj­ast til fulls náms á hverri önn til að fá hann greiddan. Hægt er að fá styrk­inn greiddan í 45 mán­uði, eða í gegnum fimm skólaár. Ef nem­andi lýkur BA- eða BS-gráðu og tekur síðan tvö ár í masters­nám þá á hann rétt á styrknum allan þann tíma. Sú greiðsla sem íslenskra ríkið greiðir við­kom­andi í styrk, nýti hann sér styrk­inn allan þann tíma sem hann má, verður þá rétt tæp­lega þrjár millj­ónir króna.

Í kynn­ingu sinni á mál­inu hefur Illugi Gunn­ars­son ítrekað sagt að það sé rétt­læt­is­mál að jafna þær upp­hæðir sem greiddar eru út sem styrkir úr náms­fjár­mögn­un­ar­kerf­inu. Það kann að hljóma skökk full­yrð­ing í eyrum sumra, enda beinir styrkir ekki verið hluti af því kerfi hingað til.

Það hefur hins vegar verið þannig að fólk hefur getað komið sér í gríð­ar­legar náms­lána­skuldir sem aldrei fást greiddar, ein­fald­lega vegna þess að fólki end­ist ekki ævin til að greiða þær til­baka. Eins og staðan er í dag fá um 20 pró­sent lán­þega um 75 pró­sent „rík­is­styrkja“. Þannig fengu t.d. þeir sem tóku 20 hæstu lánin hjá LÍN alls 661 milljón krónur lán­aðar. Áætlanir LÍN gera ráð fyrir að þeir muni ná að greiða til baka 81 milljón króna. Það þýðir að „styrkur“ til þessa 20 manna hóps er upp á 580 millj­ónir króna.

Hærri vextir borga að mestu fyrir styrki

Frumvarp Illuga á að koma í veg fyrir að svona mikil láns­söfnun á nið­ur­greiddum vöxtum sé mögu­leg. Þótt áfram verði lánað, og nú upp að fullri fram­færslu (188 þús­und krónur á mán­uði) í stað 90 pró­sent áður, þá verður í mesta lagi hægt að fá lánað í sjö ár og ekki meira en 15 millj­ónir króna. Óljóst er hversu mikið áhrif þetta mun hafa.

Í kynn­ingum mennta- og menn­inga­mála­ráðu­neyt­is­ins segir að 99 pró­sent þeirra sem séu með náms­lán taki undir 18 millj­ónum króna í lán. Því hefðu 0,5 pró­sent náms­lána­taka, auk þeirra sem eru með heild­ar­lán upp á 15-18 millj­ónir króna, lent í vand­ræðum ef nýja kerfið væri við lýði. Þeir hefðu þá þurft að sækja sín við­bót­ar­lán á einka­markað, til dæmis til Fram­tíð­ar­innar, náms­lána­sjóðs sem rek­inn er af sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu GAMMA og lánar nemum allt að þrettán millj­ónir króna á 8,25 pró­sent verð­tryggðum vöxtum eða 11,25 pró­sent óverð­tryggðum vöxtum.

Vextir á verð­tryggðum lánum sem LÍN veitir verða hins vegar þrjú pró­sent. Þótt vissu­lega sé um betri kjör að ræða en bjóð­ast á einka­mark­aði þá munu vext­irnir hækka umtals­vert frá því sem nú er. Raunar munu þeir þre­fald­ast. Auk þess verða settar ýmsar skorður gagn­vart lán­töku hjá LÍN sem ekki eru til staðar í dag. Hámarks­ára­fjöldi sem lán eru veitt verður styttur niður í sjö ár. Náms­að­stoð mun skerð­ast eftir 50 ára aldur og verður ekki veitt eftir 60 ára aldur. End­ur­greiðslur lána munu hefj­ast einu ári eftir náms­lok í stað tveggja eins og nú er. Eina und­an­tekn­ingin frá þessu verður heim­ild til að fresta helm­ingi hvers gjald­daga náms­lána vegna kaupa á fyrsta íbúð­ar­hús­næði í allt að 60 mán­uði. End­ur­greiðslu allra náms­lána á síðan að vera lokið fyrir 67 ára aldur. Þá verður tekju­teng­ing afborg­anna felld út. Þessar breyt­ingar eiga að tryggja betri heimtir náms­lána.

Slíkt mun enda verða nauð­syn­legt ef styrkja­kerfið á að ganga upp. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu verður við­bót­ar­kostn­aður rík­is­ins vegna þess umfangs­mikla styrkja­kerfis sem nú er verið að taka upp ein­ungis vera um einn millj­arður króna á ári. Sú upp­hæð getur hækkað eða lækkað ef eft­ir­spurn eftir styrkjum verður meiri eða minni en áætl­anir gera ráð fyrir. Afgang­ur­inn af kostn­að­inum til að reka kerfið kemur frá skerð­ingum á náms­lánum sem fást ekki greidd og með því að rukka þrefalt hærri vexti en gert er í dag.

Frumvarpið gagnrýnt

Þótt frum­varp­inu hafi almennt verið fagnað, sér­stak­lega þeirri breyt­ingu að koma á föstum styrkt­ar­greiðslum til þeirra sem stunda háskóla­nám, þá hefur það einnig verið gagn­rýnt.

Sú gagn­rýni hefur sér­stak­lega snúið að tvennu: ann­ars vegar afnámi tekju­teng­ingar á end­ur­greiðslum og hins vegar vegna þess að nýja kerfið mun gera t.d. dokt­or­snemum og öðrum sem af ein­hverjum ástæðum taka lengri tíma en sjö ár í háskóla­nám nær ókleift að fá náms­lán síð­ustu náms­árin.

Afnám tekju­teng­ingar gerir það að verkum að allir þurfa að borga það sama til baka af lán­unum óháð tekjum sínum. End­ur­greiðsl­urnar ákvarð­ast af höf­uð­stól láns, láns­tíma og vöxtum, líkt og á venju­legum banka­lánum. Það þýðir að tekju­lágir ein­stak­lingar, t.d. sem mennta sig til starfa sem eru ólík­legri til að skila háum tekjum, þurfa að greiða mun hærri greiðslur á ári en þeir hafa gert hingað til. Á sama tíma hefur láns­tími verið styttur frá því sem nú er. Hið félags­lega hlut­verk LÍN verður því minnkað með breyt­ing­unum.

Á meðal þeirra sem þetta hafa gagn­rýnt er Agnar Freyr Helgason,hag­fræð­ingur og doktor í stjórn­mála­fræði. Agnar sat einnig um tíma sem full­trúi stúd­enta­ráðs Háskóla Íslands í stjórn LÍN.

Hann segir á Facebook-síðu sinni að breyt­ing­arnar legg­ist ákaf­lega illa í hann. „Þær munu vissu­lega koma ákveðnum hópum vel og þá sér­stak­lega náms­fólki sem hefur enga þörf fyrir náms­lán (það mun nú fá mán­að­ar­legan styrk í stað þess að fá ekk­ert áður). Á móti kemur að breyt­ing­arnar muna auka greiðslu­byrði ákveð­inna hópa umtals­vert, m.a. þeirra sem eru fyrir í við­kvæmri stöðu. Þannig geta ein­stak­lingar sem taka mikil náms­lán (t.d. vegna fram­færslu barna), eru tekju­lágir að námi loknu eða hefja náms­fer­il­inn seint á ævinni búist við því að bera skarðan hlut frá borði.“

Þingmenn hafa einnig gagn­rýnt frum­varpið. Katrín Júl­í­us­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ingar, sagði fram­setn­ingu þess vera syk­ur­húð­aða og að mörgum spurn­ingum væri ósvarað. Þá sagði Drífa Snædal, fram­kvæmda­stjóri Starfs­greina­sam­bands­ins, við RÚV að breyt­ing­arnar myndu draga úr jöfn­uði til náms. Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, telur úti­lokað að frum­varpið verði afgreitt fyrir þing­hlé, sem fyr­ir­hugað er á næstu dögum.

Því er enn nokkuð í land að mikla breyt­ing á náms­fjár­mögnun Íslend­inga sem Illugi Gunn­ars­son hefur lagt fram verði að veru­leika. Og óljóst hvort sam­staða náist um það fyrir kosn­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menntun

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár