Ármann Kr.: „Gríðarleg óvissa“ ef þinglýst eignarhald heldur ekki

Ármann Kr. Ólafsson, bæj­ar­stjóri í Kópavogi, segir að „gríð­ar­leg óvissa“ skap­ist ef ekki sé hægt að reiða sig á upp­lýs­ingar úr þing­lýs­inga­bók, þegar kemur að eign­ar­haldi á landi. Eign­ar­nám bæj­ar­ins í landi Vatns­enda hafi byggt á þing­lýs­inga­bók og heim­ildum frá opin­berum stofn­unum og ráð­herra.

Þetta kemur fram í svari Ármanns við fyr­ir­spurn Kjarnans um mál­efni sem tengj­ast landi Vatns­enda, en Hæsti­réttur hefur nú stað­fest að Þor­steinn Hjalte­sted var ekki rétt­mætur eig­andi Vatns­enda þegar bær­inn greiddi millj­arða til hans í eign­ar­náms­bætur, vegna upp­bygg­ingar bæj­ar­ins á landi Vatns­enda, heldur fimmtán erf­ingjar dán­ars­bús Sigurðar K. Hjalte­sted. Erf­ingj­arnir telja sig eiga rúm­lega tíu millj­arða inni hjá Kópa­vogsbæ þar sem eign­ar­náms­bæt­urnar hafi verið greiddar til ólög­mæts eig­anda Vatns­enda, líkt og Hæsti­réttur hefur nú stað­fest með dómum. Kópa­vogs­bær greiddi Þor­steini rúm­lega tvo millj­arða króna árið 2007 í eign­ar­náms­bætur, en það er upp­hæð sem nemur 3,7 millj­örðum að núvirði.

Er hætta á frekari fjárútlátum úr sjóðum bæjarins?


Fyr­ir­spurin til Ármanns var eft­ir­far­andi; Telur þú hættu á því að Kópa­vogs­bær muni þurfi að greiða meira en hann hefur þegar gert, vegna upp­bygg­ingar í Vatns­enda, og þeirra deilna sem eru í gangi varð­andi eign­ar­hald á jörð­inni?

Í svari Ármanns kemur meðal ann­ars fram að bær­inn muni krefj­ast sýknu í þeim dóms­málum sem hluti erf­ingja í dán­ar­búið hefur höfðað á hendur bænum. „Hluti erf­ingja dán­ar­bús Sigurðar K. Hjalte­sted hefur þegar höfðað dóms­mál á hendur Kópa­vogsbæ með kröfu um að bær­inn greiði dán­ar­bú­inu bætur vegna þess lands sem tekið var eign­ar­námi árin 1992 til 2007. Kópa­vogs­bær mun krefj­ast sýknu af öllum kröfum stefn­enda en varnir bæj­ar­ins munu koma fram í grein­ar­gerð sem lögð verður fyrir hér­aðs­dóm. Rétt er þó að taka fram að eign­ar­nám Kópa­vogs­bæjar fóru í öllum til­fellum fram á grund­velli eign­ar­náms­heim­ildar frá opin­berum stofn­unum og ráð­herra. Eðli máls­ins sam­kvæmt ráð­staf­aði Kópa­vogs­bær eign­ar­náms­bótum til þing­lýsts eig­anda Vatns­enda sem jafn­framt var ábú­andi jarð­ar­innar,“ segir Ármann í svari sínu. Þá segir hann að aðrir opin­berir aðilar sem hafi fram­kvæmt eign­ar­nám í landi Vatns­enda hafi ráð­stafað eign­ar­náms­bótum til ábú­enda jarð­ar­innar á hverjum tíma. „Þeir aðilar eru íslenska ríkið, Reykja­vík­ur­borg og Lands­virkjun. Áréttað er að öll aðila­skipti með mann­virki, land og stærra lausafé eru háð þeirri grund­vall­ar­for­sendu að aðilar megi treysta á rétt­mæti upp­lýs­inga úr þing­lýs­ing­ar­bók. Önnur regla myndi leiða til gríð­ar­legrar óvissu um það kerfi sem gildir um skrán­ingu eign­ar­halds að umræddum eignum,“ segir í svari Ármanns.


Neita að afhenda lögfræðiálit


Kjarninn óskaði eftir því að fá lög­fræði­á­lit, sem unnin hafa verið fyrir bæinn vegna máls­ins, afhent. Bærinn neit­aði að afhenda gögnin, og vís­aði í upp­lýs­inga­lög. „Hluti af lög­erf­ingjum dán­ar­bús Sigurðar K. Hjalte­sted hefur þegar stefnt Kópa­vogsbæ fyrir dóm með kröfu um bætur fyrir eign­ar­nám bæj­ar­ins á landi Vatns­enda á árunum 1992-2007. Með vísan til 3. tl. 6. gr. upp­lýs­inga­laga nr. 140/2012 afhendir bær­inn ekki þau lög­fræði­á­lit sem unnin hafa verið fyrir bæinn og tengj­ast umræddum rétt­ará­grein­ingi,“ segir í svari bæj­ar­ins.

kjarninn_vatnsendi_vef
kjarn­inn_vatns­endi_vef

Rit­stjórn Kjarnans hyggst kæra neit­un­ina til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál, og vísa þar öðru fremur til þess, að upp­lýs­ingar er varði mikla fjár­hags­lega hags­muni Kópa­vogs­bæjar og íbúa bæj­ar­ins, og eftir atvikum ann­arra opin­bera aðila, varði almanna­hag og því sé eðli­legt að gögnin í dóms­málum sem bein­ast að bænum vegna eign­ar­náms í Vatns­enda séu opin­ber og aðgengi­leg blaða­mönnum.

Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands, bjuggu rúm­lega 32 þús­und manns í Kópavogi í 1. jan­úar 2014, eða nærri tíu pró­sent íbúa Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár