Sjö fróðleiksmolar um Borgarlínu

Af hverju er aftur verið að ráð­ast í þetta borg­ar­línu­verk­efni? Hvernig líta næstu áfangar þess út? Og hvað vitum við um væntan kostnað? Kjarninn tók saman nokkra mola um sögu og fram­tíð Borg­ar­línu.

Í upp­hafi mán­að­ar­ins kom úr frum­draga­skýrsla um fyrstu lotu Borg­ar­línu, sem beðið hafði verið eftir í nokkurn tíma. Skýrslan er rúmar 300 blað­síður og inni­heldur fyllri sýn en áður hefur feng­ist á verk­efnið.

Búið er að teikna upp drög að leið­inni sem á að fara og útfærslu hverra ein­ustu gatna­móta á leið­inni. Kjarninn tók saman nokkra mola um það sem framundan er og dregið er upp í skýrsl­unni, en einnig um það af hverju ákveðið var að koma á fót hágæða almenn­ings­sam­göngu­kerfi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

1. Ekki bara samgöngumál heldur líka lykill að þróun byggðar

Borg­ar­lína er sam­vinnu­verk­efni sex sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og rík­is­ins. Frá sjón­ar­hóli sveit­ar­fé­lag­anna sex er verk­efnið ekki ein­ungis sam­göngu­verk­efni, heldur líka byggða­þró­un­ar­verk­efni, en sam­eig­in­leg sýn sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er að borg­ar­svæðið hætti að þenj­ast út og bygg­ist frekar upp inn á við næstu ára­tug­ina.

Borg­ar­línan á að styðja við þessa þróun og sveit­ar­fé­lögin eru þegar farin að teikna upp hverfi og skipu­leggja fram­tíð­ar­upp­bygg­ingu með þeim hætti að Borg­ar­línan (og það að fleira fólk kjósi að nota almenn­ings­sam­göngur) er í reynd orðin nauð­syn­leg for­senda upp­bygg­ing­ar­innar.

Sú er raunin til dæmis á Kárs­nes­inu og Hamra­borg í Kópavogi og einnig í nýju íbúða­hverfi sem verið er að skipu­leggja á Ártúns­höfða og Elliða­ár­vogi í Reykja­vík. Þar er ráð­gert að um það bil jafn margar íbúðir verði byggðar á næsta ára­tug og eru í öllum Graf­ar­vogi í dag.

2. Talin hagkvæmasta leiðin til að koma í veg fyrir að umferðin yrði að stöppu

Borg­ar­línan er þó líka mik­il­væg fyrir umferð­ina í borg­inni til fram­tíðar. Sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sam­mælt­ust um það á síð­asta ára­tug að það væri ekki fýsi­legt að halda áfram á þeirri braut að brjóta nýtt land í stórum stíl undir byggð og byggja alla þá fjár­freku inn­viði fyrir einka­bíla sem slík þróun kall­aði á, heldur þyrfti að breyta um stefnu og reyna að gera borg­ar­svæðið hag­kvæmara og sam­göng­urnar umhverf­is­vænni.

Sam­göngu­sviðs­myndir fyrir höf­uð­borg­ar­svæðið voru teikn­aðar upp í skýrslu frá verk­fræði­stof­unni Mannviti sem kom út í upp­hafi árs 2014.

Í ljós kom að óbreytt stefna um upp­bygg­ingu íbúða hjá sveit­ar­fé­lög­unum gæti skilað því að fjöldi bíl­ferða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu myndi aukast um 377 þús­und á sól­ar­hring á milli áranna 2010 og 2040. Einnig var áætlað að íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins myndu sam­an­lagt verja 62 þús­und fleiri klukku­stundum á bíl­unum sínum árið 2040 en þeir gerðu árið 2010. Búist var við að þeim myndi fjölga um 70 þús­und á tíma­bil­inu.

Það var líka gerður sam­an­burður á því hvað það gæti kostað að feta mis­mun­andi leiðir í þessum efnum. Að byggja áfram upp borg­ar­svæðið með því að brjóta mikið nýtt land undir byggð og verja fé til stofn­vega­fram­kvæmda án þess að stór­bæta almenn­ings­sam­göngur var met­inn lang­sam­lega dýr­asti kost­ur­inn.

Þjóð­hags­legur ábati af því að skipta um kúrs í skipu­lags­málum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var þannig met­inn á tugi millj­arða króna.

Það var því ákveðið að stefna að upp­bygg­ingu hágæða almenn­ings­sam­göngu­kerfis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Þegar talað er um „hágæða almenn­ings­sam­göngu­kerfi“ er átt við kerfi sem ferð­ast um með hraða og áreið­an­leika, að mestu eða öllu leyti óháð annarri umferð. Ákveðið hefur verið að ráð­ast í bygg­ingu hrað­vagna­kerfis í sér­rými í stað þess að byggja upp létt­lest á teinum, sem er dýr­ari kostur.

3. Stærstu vagnarnir eiga að geta borið 160 manns í einu

Ekki er enn búið að kaupa vagna Borg­ar­lín­unnar eða kynna hverrar gerðar þeir verða. Í frum­draga­skýrsl­unni sem gefin var út í upp­hafi mán­aðar kemur þó fram að þeir verði lið­vagnar, ýmist 18 eða 24 metra langir. Lengri vagn­arnir verða með tveimur liðum og eiga að geta borið allt að 160 manns.

Venju­legir stræt­is­vagnar á borð við þá sem nýj­astir eru í flota Strætó í dag eru um það bil 12 metra langir, til sam­an­burðar. Slíkir vagnar kosta nýir um og yfir 60 millj­ónir. Vagna­kaup eru ekki hluti af þeirri kostn­að­ar­á­ætlun sem sett hefur verið fram í tengslum við borg­ar­línu­verk­efnið.

Vagnar Borgarlínunnar verða allt að 24 metra langir.
Vagnar Borg­ar­lín­unnar verða allt að 24 metra langir.

Fyrir liggur sam­an­burður á mögu­legum orku­gjöfum fyrir vagn­ana, en end­an­lega ákvörðun um orku­gjafa á að taka á seinni stigum verk­efn­is­ins. Ákveðið hefur verið að þeir keyri um á inn­lendri, vist­vænni orku.

4. Margar strætóleiðir byrja að nota sérrýmið þegar það verður klárt

Borg­ar­línu­leið­irnar verða tvær í upp­hafi, en þó mun sér­rýmið í fyrstu lot­unni, sem á að ná frá Hamra­borg að mið­borg Reykja­víkur og þaðan upp á Ártúns­höfða, nýt­ast mun fleiri stræt­is­vagna­leiðum. Kort er dregið upp af þessu í frum­draga­skýrsl­unni sem kynnt var í upp­hafi mán­aðar.

Þær strætóleiðir sem hér eru teiknaðar upp munu samkvæmt áætlunum nýta sér sérrými Borgarlínu að einhverjum hluta og geta ferðast eftir því óháð annarri umferð.
Þær strætó­leiðir sem hér eru teikn­aðar upp munu sam­kvæmt áætl­unum nýta sér sér­rými Borg­ar­línu að ein­hverjum hluta og geta ferð­ast eftir því óháð annarri umferð.

5. Ekki bara verið að hanna leiðir fyrir vagna

Auk sér­rýmis sem byggja á upp fyrir vagna Borg­ar­línu verða einnig byggðir upp hjóla­stígar og göngu­stígar.

Samhliða upp­bygg­ingu á fyrstu lotu Borgar­lín­unnar er gert ráð fyrir alls 18 kíló­metrum af nýjum hjóla­stígum og 9 kíló­metrum af göngu­stígum í þeim götu­myndum sem teikn­aðar hafa verið upp í drögum.

6. Enn 40 prósent óvissa um kostnað

Kostn­aður við fyrstu lotu Borg­ar­línu er áætl­aður 24,9 millj­arðar króna, sam­kvæmt frum­draga­skýrsl­unni. Inni í þeirri tölu er kostn­aður við gerð sér­rým­is­ins, hjóla- og göngu­stíga, brú­ar­mann­virkja yfir Fossvog og Elliða­ár­vog og borg­ar­línu­stöðv­anna á leið­inni.

Inni í þess­ari tölu er hins vegar ekki kostn­aður við aðrar fram­kvæmdir eins og veg­stokka á Sæbraut og Miklu­braut sem þó tengj­ast borg­ar­línu­verk­efn­inu náið.

Kostnaðaráætlun Borgarlínu eins og hún er framsett í skýrslunni. Tvær brýr eiga að kosta samanlagt um 5 milljarða króna.
Kostn­að­ar­á­ætlun Borg­ar­línu eins og hún er fram­sett í skýrsl­unni. Tvær brýr eiga að kosta sam­an­lagt um 5 millj­arða króna.

Stokk­arnir tveir eru rétt eins og aðrar stofn­vega­fram­kvæmdir og borg­ar­línu­verk­efnið hluti af alls 120 millj­arða sam­göngu­fjár­fest­ingum sem ráð­ast á í á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á næsta rúma ára­tug, sam­kvæmt sam­göngusátt­mála rík­is­ins og sveit­ar­fé­lag­anna.

Á þessu stigi hönn­unar fyrstu lotu Borg­ar­línu er enn gefin upp 40 pró­sent óvissa um heild­ar­kostn­að­inn. Hann á að skýr­ast frekar á næstu hönn­un­ar­stigum, en þeir sem að verk­efn­inu standa segja eðli­legt að á frum­draga­stigi sé óvissa um kostnað 40 pró­sent.

Óvissan um kostnað er sögð einna mest á þeim kafla sem liggur frá Ártúns­höfða og í gegnum nýtt Voga­hverfi, en þar liggur útfærslan og sam­spilið við Sæbraut­ar­stokk ekki fylli­lega fyrir.

7. Fimm lotur í viðbót á áætlun en þessi fyrsta er lengst

Fyrsta fram­kvæmda­lota Borg­ar­línu hefur nú verið teiknuð upp og kynnt, en það eru fyrstu rúmu 14 kíló­metr­arnir af sér­rým­is­kerf­inu. Þegar er búið að draga upp fimm fram­kvæmda­lotur til við­bótar innan sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sem nær fram til árs­ins 2034 og eru þær lotur í heild­ina um 29,5 kíló­metrar að lengd.

Fimm lotur til viðbótar eru á framkvæmdaáætlun.
Fimm lotur til við­bótar eru á fram­kvæmda­á­ætlun.

Næstu fram­kvæmda­lotur eru:

  • Lota 2 Hamra­borg-Lindir, í gegnum Smárann um 4 km
  • Lota 3 Mjódd-BSÍ, um Voga og Miklu­braut um 4 km
  • Lota 4 Fjörður-Mikla­braut, um Hamra­borg og Kringlu­mýr­ar­braut um 8 km
  • Lota 5 Ártúns­höfði-Spöng um 5 km
  • Lota 6 Ártúns­höfði-Háholt, um Keldur og Blika­staða­land, um 8,5 km

Ekki er þá öllu lokið, sam­kvæmt því sem fram kemur í frum­draga­skýrsl­unni, því þrátt fyrir að sam­göngusátt­máli ríkis og sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu renni út árið 2034 hafa sveit­ar­fé­lögin markað sér stefnu um enn meiri Borg­ar­línu.

Áfangarnir sem áætlað er að standi eftir árið 2034 eru hér merktir með rauðu.
Áfang­arnir sem áætlað er að standi eftir árið 2034 eru hér merktir með rauðu.

Þeir áfangar sem áætlað er að standi eftir árið 2034 eru:

  • Eiðis­torg – HÍ um 2,5 km
  • Hlemmur – Laug­ar­nes um 2,5 km
  • Mjódd – Fell um 2,5 km
  • Lindir – Kórar um 4,0 km
  • Fjörður – Vellir um 3,0 km
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár