Danska innflytjendalöggjöfin kærð til Mannréttindadómstóls Evrópu

Helle Thorning Shcmidt, fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur, og Inger Stöjberg, ráðherra innflytjendamála.
Helle Thorning Shcmidt, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur, og Inger Stöjberg, ráð­herra inn­flytj­enda­mála. Mynd: EPA

Dönsk sam­tök lög­fræð­inga sem gæta hags­muna útlend­inga hyggj­ast leita til dóm­stóla í Danmörku og, ef nauð­syn­legt reyn­ist, til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu, verði sýr­lenskum manni neitað um að fá fjöl­skyldu sína til lands­ins. Maðurinn fékk fyrir tæpu ári síðan tíma­bundið land­vist­ar­leyfi og hyggst nú sækja um að fá fjöl­skyldu sína til Dan­merkur. Núgild­andi lög­gjöf mið­ast við eitt ár en verði frum­varp sem nú er til með­ferðar í danska þing­inu að lögum verður ekki hægt að sækja um slíkt leyfi fyrir fjöl­skyld­una fyrr en eftir þrjú ár. 

Umdeildustu ákvæðin

Ákvæðið um þriggja ára bið­tíma er, ásamt ákvæð­inu um eigna­upp­töku verð­mæta, hið umdeildasta í nýrri inn­flytj­enda­lög­gjöf sem danska rík­is­stjórnin kynnti fyrir skömmu. Frum­varpið er í 34 liðum og sam­kvæmt því verða hertar til muna reglur sem gilda og skil­yrði sem hæl­is­leit­endur þurfa að upp­fylla ætli þeir að setj­ast að í Danmörku. Rík­is­stjórnin hefur ekki farið leynt með til­gang­inn sem er að draga úr aðdrátt­ar­afli Dan­merkur sem nýs heima­lands flótta­fólks. Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn, næst fjöl­menn­asti flokk­ur­inn á danska þing­inu, og sem segja má að hafi líf rík­is­stjórn­ar­innar í hendi sér þótt hann standi utan stjórnar, hefur þrýst mjög á um hertar reglur og sumir þing­menn flokks­ins jafn­vel talað um að loka land­inu algjör­lega fyrir flótta­fólki. Skil­ríkja­skoðun var tekin upp á landa­mærum Þýska­lands og Dan­merkur 4. jan­úar síð­ast­lið­inn, sama dag og slík skoðun hófst, að frum­kvæði Svía, á landa­mærum Sví­þjóðar og Dan­merkur.

Ógætilegar yfirlýsingar ráðherra

Þegar danska rík­is­stjórnin kynnti fyr­ir­ætl­anir sínar vöktu yfir­lýs­ingar Inger Stöjberg ráð­herra inn­flytj­enda­mála athygli fjöl­miðla um allan heim. Ráð­herr­ann sagði að lög­reglu og toll­vörðum yrði heim­ilt að taka af flótta­fólki reiðufé umfram þrjú þús­und krónur danskar (tæpl. 60 þús. íslenskar) og það sem enn meiri athygli vakti: heim­ilt yrði að gera upp­tæka skart­gripi sem fólk hefði með sér. Þegar spurt var hvort þessi heim­ild gilti til dæmis um gift­ingar-og trú­lof­un­ar­hringa kvað ráð­herr­ann já við. Þetta svar fór eins og eldur í sinu um víða ver­öld og sumir fjöl­miðlar líktu þessu við aðfarir nas­ista í síð­ari heims­styrj­öld. Þegar ráð­herr­ann og rík­is­stjórnin átt­uðu sig á við­brögð­unum var strax farið að draga í land. Ráð­herr­ann til­kynnti að fólk gæti haldið hringum og öðru, sem teld­ist „innan eðli­legra marka” en eng­inn skyldi almenni­lega hvað átt var við með því orða­lagi. Síðar var svo til­kynnt að fólk gæti, og mætti, halda öllum per­sónu­legum eigum, svo fremi að ekki væri um að ræða eitt­hvað sem væri úr hófi fram (asnar klyfj­aðir gulli voru nefndir sem óhóf) og pen­inga­upp­hæð sem heim­ilt væri að hafa með sér til lands­ins mætti nema tíu þús­und dönskum krónum (ca 190 þús. ísl).

Útskýringar komu fyrir lítið

Þótt ráð­herrar reyndu að útskýra sína hlið máls­ins og bentu á að í Danmörku væri fylgt sömu reglum og í Þýska­landi, Sviss og fleiri löndum (þær dönsku reyndar rýmri) hlust­uðu fáir á það og gagn­rýnin dundi á dönsku stjórn­inni úr öllum áttum. Eitt dönsku dag­blað­anna orð­aði það svo að Danmörk hefði þarna orðið að eins konar sam­nefn­ara fyrir þá óvild og andúð sem flótta­fólk mætti víða í Evrópu.

Er þriggja ára reglan mannréttindabrot?

Þótt ákvæðin um hald­lagn­ingu eigna hafi vakið sterk­ustu við­brögðin og fengið mesta umfjöllun í upp­hafi hefur athyglin í auknum mæli beinst að þriggja ára regl­unni áður­nefndu um sam­ein­ingu fjöl­skyldna.

Dönsku lög­fræð­inga­sam­tökin um rétt­indi útlend­inga telja að verði þriggja ára reglan að lögum, sé það brot á mann­rétt­indum og á slíkt verði látið reyna fyrir dóm­stólum. Samtökin ætla, ef til þess kemur, að reka málið fyrir hönd sýr­lenska flótta­manns­ins sem getið var í upp­hafi þessa pistils og dönsku mann­rétt­inda­sam­tökin ætla að styða Sýr­lend­ing­inn, bæði fyrir dönskum dóm­stólum og Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu ger­ist þess þörf Inger Stöjberg ráð­herra inn­flytj­enda­mála hefur sagt að Danmörk haldi sig innan þeirra marka sem landið hafi skuld­bundið sig til á alþjóða­vett­vangi.

Ráðherrar á þönum

Í rauða­bítið 5. jan­úar, dag­inn eftir að landa­mær­eft­ir­litið var tekið upp, flaug Inger Stöjberg ráð­herra inn­flytj­enda­mála til Brussel. Erindi hennar var að útskýra fyrir ráða­mönnum þar aðgerðir Dana, hvernig landamæra­gæslan færi fram og ástæður þess að Danir sæju sig knúna til að fara þessa leið. Ekki dugði ein ferð til Brussel til að útskýra málið og svara öllum þeim spurn­ingum sem Evr­ópu­sam­bandið lagði fram og ráð­herr­ann hefur síðan farið nokkrum sinnum til Brussel í sama til­gangi. Lars Lökke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra hefur átt ótal sím­töl við kollega sína víða um lönd og Kristian Jensen utan­rík­is­ráð­herra hefur sömu­leiðis verið á þönum að útskýra stefnu dönsku rík­is­stjórn­ar­innar. Sl. fimmtu­dag (21.jan) sat hann fyrir svörum hjá Mann­réttinda­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna í Genf. Þar var ráð­herr­ann spurður spjör­unum úr um stefnu dönsku stjórn­ar­innar varð­andi flótta­fólk. Danska rík­is­stjórnin hefur und­an­farið sakað fjöl­miðla, bæði danska og útlenda, um að fara offari í umfjöllun sinni um stefnu stjórn­ar­innar en yfir­heyrslan í Genf sýndi danska utan­rík­is­ráð­herr­anum að gagn­rýnin og umfjöllun um flótta­manna­málin er ekki sam­blástur fjöl­miðl­anna.

Á morgun (25.jan) fara Inger Stöjberg og Kristian Jensen einn gang­inn enn til Brussel. Að þessu sinni er erindið að útskýra flótta­manna­stefnu stjórn­ar­innar fyrir einni af nefndum Evr­ópu­þings­ins, en þingið hafði sam­þykkt að óska eftir slíkum fundi. Danskir fjöl­miðlar telja það merki um þann mót­byr sem danska rík­is­stjórnin glímir við á alþjóða­vett­vangi að sendir skulu tveir ráð­herrar á fund nefnd­ar­innar.

Umfjöllun erlendra fjölmiðla kom á óvart

Að mati nokk­urra sér­fræð­inga sem danskir fjöl­miðlar hafa rætt við und­an­farna daga var danska stjórnin alls ekki við­búin við­brögðum erlendra fjöl­miðla og stjórn­mála­manna. Rasmus Boserup sér­fræð­ingur hjá Stofnun alþjóð­legra fræða í Kaup­manna­höfn sagði í við­tali við Kristeligt Dagblad að umfjöllun um aug­lýs­ingar sem Inger Stöjberg ráð­herra inn­flytj­enda­mála lét birta í líbönskum dag­blöðum í sept­em­ber í fyrra hefðu gefið tón­inn. Síðan hefur nei­kvæð umfjöllun í garð Dana auk­ist og minnir um sumt á Múhameð­skrís­una svo­nefndu fyrir tíu árum, í fram­haldi af birt­ingu Múhameð­steikn­ing­anna í Jót­land­s­póst­inum. Ole Wæver pró­fessor í alþjóða­stjórn­málum við Hafn­ar­há­skóla tekur í sama streng; „Þegar fjöl­miðlar víða um heim fjalla um mál, jafn­vel þótt rangt sé farið með þýðir lítt að ætla að leið­rétta. Á það hlustar eng­inn. Umfjöllun af þessu tagi skaðar Dani” Jakob Ellemann- Jensen, þing­maður Venstre og tals­maður flokks­ins um póli­tísk mál­efni, tekur undir það að fréttir og frá­sagnir erlendra miðla skaði Danmörku: „Enginn spyr hvað sé satt og rétt.” Þing­mað­ur­inn segir jafn­framt að danska stjórnin hefði getað und­ir­búið kynn­ingar á stefnu Dan­merkur í mál­efnum flótta­manna mun betur en gert var: „Við í Venstre teljum að tím­inn vinni með Dönum í þessum málum.” Áður­nefndur Ole Wæver dregur í efa að það mat þing­manns­ins reyn­ist rétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár