Menntamálaráðherra tapaði í Héraðsdómi Reykjavíkur

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur féllst ekki á kröfu Lilju Alfreðs­dóttur mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra um að úrskurði kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála yrði hnekkt. Úrskurð­ur­inn í kæru­máli Hafdísar Helgu Ólafs­dóttur, skrif­stofu­stjóra í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, stendur.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra laut í lægra haldi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Lilja Dögg Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra laut í lægra haldi í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag. Mynd: Bára Huld Beck

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra braut gegn jafn­rétt­islögum er hún skip­aði Pál Magn­ús­son sem ráðu­neyt­is­stjóra í ráðu­neyti sínu síðla árs 2019. Þessi nið­ur­staða kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála stendur, en Hér­aðs­dómur Reykja­víkur féllst ekki á kröfu ráð­herra um að ógilda úrskurð kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála í mál­inu.

Dómur í mál­inu var kveð­inn upp á tólfta tím­anum og sagt er frá nið­ur­stöð­unni á vef RÚV. Samkvæmt frétt­inni þarf íslenska ríkið að greiða 4,5 millj­ónir króna vegna máls­kostn­aðar Hafdísar Helgu Ólafs­dóttur, skrif­stofu­stjóra í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, sem kærði ráðn­ingu Páls til kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála.

Greint var frá því í júní í fyrra að kæru­nefndin hefði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Lilja hefði brotið jafn­rétt­islög er hún skip­aði Pál Magn­ús­son í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra árið 2019. Hún hefði van­­metið Haf­­dísi Helgu í sam­an­burði við Pál. Hæf­is­nefnd hafði ekki talið Haf­dísi Helgu í hópi þeirra fjög­urra sem hæfust voru talin í starf­ið.

Til þess að fá þessum úrskurði hnekkt þurfti ráð­herra að höfða mál gegn Hafdísi Helgu per­sónu­lega. Það vakti nokkra furðu. Lögmaður Hafdísar Helgu, Áslaug Árna­dóttir, sagði að sú ákvörðun hefði komið á óvart. „Ég veit ekki til þess að þetta hafi verið gert áður, að ráð­herra hafi höfðað mál per­sónu­lega gegn aðila sem kærir ákvörðun ráð­herra til kæru­nefnd­ar­inn­ar,“ sagði hún við RÚV þann 24. júní.

Ákvörðun Lilju um að stefna Hafdísi Helgu til að fá úrskurð­inum hnekkt byggð­ist á lög­fræði­á­litum sem ráð­herr­ann afl­aði sér eftir að nið­ur­staða kæru­nefnd­ar­innar lá fyrir. Þau voru sögð benda til laga­legra ann­marka í úrskurði kæru­nefnd­ar­innar. Kjarninn óskaði eftir þessum lög­fræði­á­litum frá ráðu­neyt­inu sama dag og ljóst var að málið stefndi fyrir dóm­stóla, en þau reynd­ist ómögu­legt að fá.[links]

Úrskurð­ar­nefnd upp­lýs­inga­mála stað­festi synjun ráðu­neyt­is­ins á gagna­beiðni Kjarnans í lok sum­ars, en nið­ur­staðan var sú að bréfa­skipti hins opin­bera við sér­fróða aðila í tengslum við rétt­ará­grein­ing eða til afnota í dóms­máli eða við athugun á því hvort slíkt mál skuli höfðað skuli und­an­þegin upp­lýs­inga­lögum.

Blæbrigðamunur á umfjöllunum hæfisnefndar

Málið var tekið til aðal­með­ferðar í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í lok jan­ú­ar­mán­aðar. Í umfjöllun Frétta­blaðs­ins úr dóm­sal kom fram að lög­maður íslenska rík­is­ins hefði sagt Pál hafa staðið sig betur í atvinnu­við­tali sínu og ekki væri hægt að líta fram hjá hug­lægu mati hæf­is­nefndar og ráð­herra um leið­toga­hæfni hans.

Hafdís taldi hins­vegar að hæf­is­nefndin hefði gert lítið úr reynslu hennar í opin­berri stjórn­sýslu og rangt hefði verið farið með hversu lengi hún starf­aði hjá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Hafdís Helga hefur starfað í opin­berri stjórn­sýslu í 25 ár, verið for­stöðu­maður nefnd­ar­sviðs Alþingis, skrif­stofu­stjóri í tveimur ráðu­neytum og aðal­lög­fræð­ingur bæði Alþingis og Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

„Hún starf­aði við opin­bera stjórn­sýslu,“ sagði um Hafdísi í umsögn hæf­is­nefndar. Um Pál sagði nefndin: „Hann hefur langa reynslu við ábyrgð­ar­mikil stjórn­sýslu­verk­efni,“ en Páll er með meist­ara­próf í opin­berri stjórn­sýslu og hefur starfað sem bæj­ar­rit­ari hjá Kópa­vogsbæ og sem aðstoð­ar­maður ráð­herra. Hafdís Helga taldi þetta mik­inn blæ­brigða­mun, sam­kvæmt frétt Frétta­blaðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár