Segja Hvít-Rússa ætla að senda hermenn inn í Úkraínu

Áform stjórn­valda í Hvíta-Rúss­landi að senda her­menn inn í Úkraínu til stuðn­ings rúss­neskum her­sveitum gætu sett fyr­ir­ætl­anir um við­ræður milli Rússa og Úkra­ínu­manna í upp­nám. „Það er full­ljóst að stjórnin í Minsk er orðin fram­leng­ing af Kreml.“

Sprengju var varpað á olíubirgðastöð rétt utan við Kænugarð í gær.
Sprengju var varpað á olíu­birgða­stöð rétt utan við Kænugarð í gær. Mynd: EPA

Stjórn­völd í Hvíta-Rúss­landi eru að und­ir­búa sig fyrir að senda her­menn til Úkraínu til stuðn­ings rúss­neska inn­rás­ar­lið­inu. Í frétt Washington Post segir að inn­rás Hvít-Rússa gæti jafn­vel haf­ist í dag, mánu­dag. Þetta hefur dag­blaðið eftir banda­rískum emb­ætt­is­manni. Áformin ógna fyr­ir­hug­uðum við­ræðum stjórn­valda í Úkraínu og Rúss­landi sem til stendur að eigi sér stað skammt frá landa­mær­unum að Hvíta-Rúss­landi. Volody­myr Zelensky, for­seti Úkraínu féllst á við­ræður í gær, þ.e.a.s. að senda sendi­nefnd á fund rúss­neskrar sendi­nefndar.

[adspot]

„Það er núna full­ljóst að stjórnin í Minsk er orðin fram­leng­ing af stjórn­inni í Kreml,“ hefur Washington Post eftir emb­ætt­is­mann­inum.

Fjöl­mið­ill í Kænu­garði var fyrstur til að greina frá áformum Hvít-Rússa og í frétt hans kom fram að flug­vél sem notuð er til her­flutn­inga eigi að flytja fall­hlífa­sveit til Úkraínu.

Alex­ander Lúk­asjenkó, for­seti Hvíta-Rúss­lands, er náinn banda­maður Vla­dimírs Pútín Rúss­lands­for­seta.

„Við verðum ánægð ef nið­ur­staða þess­ara við­ræðna verður friður og lok stríðs­ins,“ sagði Sergei Kyslytsya, sendi­herra Úkraínu gagn­vart Sam­ein­uðu þjóð­unum, í yfir­lýs­ingu í gær­kvöldi. „En ég legg áfram áherslu á að við munum ekki gef­ast upp. Við munum ekki gefa tommu af land­svæði okkar eftir.“

Rúss­neski her­inn gerði eld­flauga­árásir víða í Úkraínu í nótt að sögn for­seta­skrif­stofu lands­ins. Árásir voru gerðar í höf­uð­borg­inni Kænu­garði sem og að minnsta kosti þremur öðrum borgum. New York Times greinir frá þessu en í frétt blaðs­ins klukkan 6.30 í morgun að íslenskum tíma voru ekki frek­ari upp­lýs­ingar fram komnar um árás­irnar.

Úkra­ínski her­inn seg­ist þó hafa náð að hægja á sókn rúss­neskra her­sveita í morgun. Yfir­maður hers­ins sakar Rússa um að ráð­ast á borg­ara­leg skot­mörk, s.s. flug­velli og aðra mik­il­væga inn­viði sem sé brot á alþjóða­lögum. „Á sama tíma hafa allar til­raunir rúss­nesku inn­rás­armann­anna til að ná hern­að­ar­legum mark­miðum sínum mis­tek­ist,“ sagði í til­kynn­ingu frá úkra­ínska hernum nú í morgun.

Úkraína er eitt af okkur

„Úkraína er eitt af okkur og við viljum þau inn í sam­bandið,“ segir Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópus­bands­ins. Stjórnin ákvað í gær að senda vopn til Úkraínu og að banna rúss­neskum loft­förum að koma inn fyrir landa­mæri ríkja ESB.

Í gær höfðu að minnsta kosti 350 almennir borg­arar í Úkraínu fallið að sögn yfir­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár