Ekki nóg að eiga byssur ef engin eru skotfærin

Um ára­tuga­skeið mátti danski her­inn sæta nið­ur­skurði á fjár­lögum, þing­menn töldu ástandið í heim­inum ekki kalla á öfl­ugan og vel búinn danskan her. Nú er öryggi heims­ins ógnað en danski her­inn van­bú­inn.

Mette Frederiksen skoðar birgðir danska hersins í Eistlandi árið 2020.
Mette Frederik­sen skoðar birgðir danska hers­ins í Eist­landi árið 2020. Mynd: EPA

Í þekktu ljóði Krist­jáns fjalla­skálds Þorra­þræl, (nú er frost á Fróni) frá árinu 1866, er lýst ástand­inu á íslenskum bóndabæ þar sem allt mat­ar­kyns er brátt uppurið

„brátt er búrið autt

búið snautt“.

Hjá danska hernum er annað búr þar sem tóm­legt er um að lit­ast og hefur reyndar lengi verið. Þetta er vopna­búrið, einkum og sér­ílagi skot­færa­geymslan.

[adspot]Danskir fjöl­miðlar, ekki síst tíma­ritið OLFI hafa að und­an­förnu fjallað ítar­lega um danska her­inn. Í pistli sem birt­ist hér í Kjarn­anum 20. febr­úar sl. var fjallað um tól og tæki danska hers­ins og þar kom fram að tækja­kost­ur­inn er ekki upp á marga fiska. Þar kom líka fram að danskir þing­menn hefðu haustið 2017 ákveðið að breyta um kúrs, í stað nið­ur­skurðar skyldu árlegar fjár­veit­ingar til hers­ins auknar og tækja­kostur end­ur­nýj­aður og bættur. Sú áætlun átti að gilda til fimm ára, frá árs­byrjun 2018. Skrið­dreka, orustu­þotur og annað af því tagi þarf að panta með löngum fyr­ir­vara, sem dæmi um það kom­ast fyrstu nýju orustu­þot­urnar (banda­rískar F-35) ekki í gagnið fyrr en á næsta ári. Alls kaupir danski her­inn 27 slíkar, þær síð­ustu fær her­inn afhentar árið 2027.

Kosningar 1. júní

Átökin í Úkraínu hafa orðið til þess að beina sjónum Dana að eigin varnar- og örygg­is­málum. Þingið, Fol­ket­inget, hefur ákveðið að stór­auka fram­lög til varn­ar­mála og enn­fremur að efna til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um fyr­ir­vara (for­svars­for­behold) varð­andi varn­ar­sam­starf Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna. Sá fyr­ir­vari er frá árinu 1993 og í honum felst að Danir taki ekki þátt í hern­að­ar­að­gerðum á vegum ESB og eigi ekki aðild að her­mála­stofn­unum banda­lags­ins. Danskir stjórn­mála­skýrendur telja ástæðu þess­arar stefnu­breyt­ingar og hve hratt danska þingið hefur brugð­ist við til marks um hve alvar­legum augum þing­menn líti inn­rás Rússa í Úkraínu. Skoð­ana­kann­anir benda til að meiri­hluti Dana styðji afnám fyr­ir­var­ans og Danir ger­ist full­gildir aðilar að varn­ar­sam­starfi ESB ríkj­anna.

Kúlnaskortur

Fyrir nokkrum dögum greindi dag­blaðið Berl­ingske frá grein sem byggð var á upp­lýs­ingum úr nokk­urra mán­aða gömlum „inn­an­hús­s­pósti“ hers­ins. Útvarps­stöðin 24syv hafði óskað eftir, og fengið, aðgang að þessum upp­lýs­ingum. Þar kom fram að fram­vegis yrðu her­menn að not­ast við púð­ur­skot (løst krudt) á æfingum. Í slíkum skotum er engin kúla þannig að sá sem hleypir af getur ekki vitað hvort hann hefur miðað rétt. Í sept­em­ber í fyrra fengu her­menn til­kynn­ingu um þetta nýja fyr­ir­komu­lag, án þess að nán­ari útskýr­ingar fylgdu.
Berl­ingske fór í kjöl­farið að kanna málið nánar og fékk stað­fest að skot­færa­birgðir hers­ins væru í algjöru lág­marki og þannig hefði ástandið verið all­lengi. Vegna nið­ur­skurðar í fjár­veit­ingum hefur her­inn um ára­bil haldið skot­færa­birgðum í lág­marki og keypt inn „eftir hend­inni“ eins og það er kallað. Eina her­deildin sem ræður yfir umtals­verðum skot­færa­birgðum er sú sem stað­sett er í Slagelse á Sjálandi. Sú deild er ætíð í við­bragðs­stöðu og getur haldið af stað með mjög skömmum fyr­ir­vara ef þörf krefur.

Blaða­menn Berl­ingske komust að því að síðan í fyrra­haust hefur her­inn nokkrum sinnum óskað eftir til­boðum í skot­færi, smáar og stórar kúlur, hand­sprengjur og fleira af því tagi, frá fram­leið­endum utan danskra land­steina. Þetta þótti blaða­mönnum ein­kenni­legt því fram til þessa höfðu nær öll skot­færi hers­ins, og lög­regl­unnar, verið fram­leidd í verk­smiðju á Norður-Jótlandi.

Verksmiðjan í Elling

Kannski þekkja fáir smá­bæ­inn Elling á Norður-Jótlandi, skammt frá Frederiks­havn. Enn færri vita lík­lega að í þessum litla bæ er verk­smiðja sem öldum saman hefur séð danska hernum fyrir öllum þeim skot­færum sem hann þarf á að halda. Verk­smiðjan er sú eina sinnar teg­undar í Danmörku.

Krudten, eins og verk­smiðjan hefur ætíð verið kölluð, á sér langa sögu. Hún tók til starfa árið 1676 og hafði verið í eigu danska rík­is­ins allar götur fram til árs­ins 2008. Sögu­sagnir eru um að Kristján IV hafi ákveðið að koma þess­ari verk­smiðju á fót til þess að skjóta Svíum skelk í bringu. Kristján IV lést árið 1648 og hafði því hvílt í steinkistu sinni í Hró­arskeldu­kirkju í ára­tugi þegar verk­smiðjan tók til starfa.

Einkavæðingin, Expal og lokun

Á árunum eftir 1980 var þungt fyrir fæti í dönsku efna­hags­lífi. Ein afleið­ing þess var að ákveðið var að selja mörg fyr­ir­tæki, ýmist að hluta eða öllu leyti. Þessari einka­væð­ingu hefur verið haldið áfram allt til þessa dags.

Árið 2006 ákvað Søren Gade, þáver­andi varn­ar­mála­ráð­herra, að loka Krudten. Ráð­herr­ann taldi að eng­inn myndi vilja kaupa verk­smiðj­una en ákvað þó á end­anum að kanna hvort kaup­andi fynd­ist. Spænskt fyr­ir­tæki, Expal, hafði sýnt áhuga á að kaupa verk­smiðj­una og samn­ingur þess efnis var und­ir­rit­aður árið 2008. Þá voru starfs­menn um 300. Með í kaup­unum fylgdi sam­komu­lag um að her­inn og lög­reglan myndu kaupa öll sín skot­færi hjá Expal. Þótt sá samn­ingur hafi ekki verið gerður opin­ber telja blaða­menn Berl­ingske og fleiri sem fjallað hafa um Krudten sig vita að hann hafi ekki verið bund­inn við til­tek­inn ára­fjölda. Vegna ástands­ins í heim­inum á síð­ast­liðnum ára­tug minnk­aði eft­ir­spurn eftir skot­færum, þá jókst fram­boðið og verð fór lækk­andi. Það varð til þess að danski her­inn, og lög­reglan fóru að líta til ann­arra landa eftir skot­færum. Verk­smiðjan í Elling var lítil, sam­an­borið við margar aðrar og gat ekki keppt við verð sem aðrir buðu. Árið 2020 til­kynnti Expal að verk­smiðj­unni í Elling yrði lokað og öllum starfs­mönnum, sem þá voru 63, yrði sagt upp. Og sú varð raunin.

Samkomulag eða ekki samkomulag

Í umfjöllun danskra fjöl­miðla síð­ustu daga hefur komið fram að danski her­inn, lög­reglan og Expal hafi árið 2017 gert sam­komu­lag, til næstu fimm ára, um skot­færa­kaup. Þessu sam­komu­lagi rifti Expal, eins og áður sagði, árið 2020 og sagði ástæð­una þá að her­inn og lög­reglan hafi ekki staðið við lof­orðið um inn­kaup. Inn­kaupa­deild hers­ins segir að með því að segja samn­ingnum upp hafi Expal gerst brot­legt og það mál fari fyrir dóm­stóla.

Best að búa að sínu

Þegar ákveðið var að selja skot­færa­verk­smiðj­una Krudten bentu sumir úr hópi þing­manna á að vara­samt væri að selja verk­smiðj­una. Ekki væri gott að þurfa að treysta á einka­fyr­ir­tæki, hvort sem það væri í Danmörku eða ann­ars staðar. Aðrir sögðu feyk­inóg fram­boð af skot­færum og ástæðu­laust að hafa áhyggjur í þeim efnum. Í dag er staðan sú að fram­boð skot­færa er tak­markað og verðið hefur rokið upp úr öllu valdi. Danskur þing­maður, sem ekki vildi láta nafns síns getið í við­tali við Berl­ingske, sagð­ist hafa stutt söl­una á Krudten á sínum tíma en hann sæi eftir því í dag. „Ég hef kom­ist að því að í þessu efnum, eins og mörgum öðrum, er best að búa að sínu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vopn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár