Skriðdrekar og skrifræði

Það er ekki nóg að eiga nýleg tæki og tól. Slíkur bún­aður þarf að vera í lagi þegar til á að taka. Stór hluti skrið­dreka danska hers­ins er úr leik, vegna seina­gangs og skrifræðis.

Nýi Leopard A7 skriðdrekinn, sem danski herinn hefur pantað frá Þýskalandi.
Nýi Leopard A7 skrið­drek­inn, sem danski her­inn hefur pantað frá Þýska­landi. Mynd: KMW

Fyrir rúmri viku til­kynnti Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur um vænt­an­legan samn­ing við Banda­ríkja­stjórn. Samn­ing­ur­inn snýr að sam­vinnu herja land­anna og heim­ild Banda­ríkja­hers til að hafa her­menn og búnað á danskri grund, um lengri eða skemmri tíma. Vinna við þetta sam­komu­lag er á byrj­un­ar­reit og nokkur tími í að það verði frá­gengið. Meira um það síðar í þessum pistli, fyrst skrið­drekar.

Strangir kúrar

Á tíunda ára­tug síð­ustu aldar, eftir lok kalda stríðs­ins, hófst það sem danskir hern­að­ar­sér­fræð­ingar hafa kalla „lang­tíma megr­un­ar­kúr“. Einn orð­aði það svo að her­inn væri eins og sviss­neskur ostur „virð­ist vera prýði­legur biti en er svo lítið annað en göt“. Danski her­inn var ekki sá eini sem var í langa megr­un­ar­kúrnum, margar þjóðir skáru árum saman veru­lega niður í fjár­veit­ingum til her­mála, þrátt fyrir að for­svars­menn NATO vör­uðu ítrekað við nið­ur­skurð­inum. Í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske 9. apríl 2015 sagði Anders Fogh Rasmus­sen, sem hafði hálfu ári fyrr látið af störfum sem fram­kvæmda­stjóri NATO, að Banda­ríkin gætu ekki enda­laust dregið hest­inn, eins og hann komst að orði. Þegar Anders Fogh lét þessi orð falla var í gildi fimm ára sam­komu­lag (for­svars­for­lig) sem danska þingið, Fol­ket­inget, hafði gert og átti að gilda til árs­loka 2017. Þar var gert ráð fyrir árlegum nið­ur­skurði í fjár­veit­ingum til hers­ins. Við und­ir­bún­ing næstu „fimm ára áætl­unar“ lýstu margir þing­menn áhyggjum vegna hers­ins, og sam­komu­lag náð­ist um að frá og með árs­byrjun 2018 skyldu árlegar fjár­veit­ingar til hers­ins auknar.

Tækjakosturinn kominn til ára sinna

Í umfjöllun eins dönsku dag­blað­anna árið 2015 kom fram að öku­tækja­floti hers­ins væri orð­inn „hálf­gerður forn­bíla­klúbbur“.

Yngsti hluti flot­ans, flutn­inga­bíl­arnir voru, og eru, frá árunum í kringum 1990. Herinn réði (árið 2015) yfir 65 bryn­vörðum bílum, kall­aðir PMV, þeir eru frá sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar, þá voru ein­ungis 5 þeirra nokkurn veg­inn í lagi. Á bíl­ana hafði verið sett mikil og þung bryn­vörn sem þeir voru ekki gerðir fyrir að bera og bil­ana­tíðnin því há.

Árið 2015 átti danski her­inn 24 skrið­dreka, þeir voru allir sömu gerðar, Haubits M109. Einungis 6 skrið­drek­anna voru gang­færir, hinir stóðu í skemmum hers­ins. Byss­urnar á þessum 6, sem töld­ust í lagi, voru svo gam­al­dags að þær voru vart not­hæfar. Mið­un­ar­bún­að­ur­inn svo óná­kvæmur að mjög ólík­legt væri að kúla myndi hitta skot­markið. Herinn átti líka árið 2015 nokkra gamla bryn­varða Leopard „létta skrið­dreka“. Á her­æf­ingu sem haldin var í Póllandi árið 2014 bil­uðu nær allir Leopard drek­arnir. Flestir , venju­legir“ bílar hers­ins voru líka orðnir gamlir og kröfð­ust mik­ils við­halds. Mörgum stjórn­mála­mönnum var brugðið þegar þeir lásu áður­nefnda umfjöllun og lýstu flestir yfir að þeir hefðu ekki gert sér grein fyrir að ástandið væri svona bág­borið, og bættu við að ekki yrði við þetta unað.

Pöntuðu 44 nýja skriðdreka

Árið 2019 pant­aði danski her­inn 44 nýja skrið­dreka af gerð­inni Leopard A7. Þeir eru þýskir, fram­leiddir hjá fyr­ir­tæk­inu Krauss-Maffei Wegmann. Skrið­drekar eru ekki lag­ervara, og þá þarf að panta með löngum fyr­ir­vara. Danski her­inn hefur nú fengið afhenta 32, þá 12 sem upp á vantar á her­inn að fá á þessu ári og því næsta. Nýju drek­unum fylgir verk­smiðju­á­byrgð en henni fylgja skil­yrði. Afleið­ing þess­arar ábyrgð­ar­klásúlu í kaup­samn­ingnum er ástæða þess að stór hluti skrið­dreka­flot­ans er úr leik, í bili að minnsta kosti.

Seinagangur og skrifræði

Í nýrri grein í danska veftíma­rit­inu OLFI er fjallað um nýju skrið­drek­ana og birtar frá­sagnir her­manna sem þekkja vel til, en koma ekki fram undir nafni. Her­menn­irnir lýsa ótrú­legum seina­gangi og skrifræði sem hefur orðið til þess að stundum hafa ein­ungis örfáir skrið­drekar verið „öku­hæfir“. Ef eitt­hvað bilar, skiptir ekki máli hvort bil­unin er smá­vægi­leg eða alvar­leg, ber að til­kynna bil­un­ina til inn­kaupa­deildar hers­ins. Til­kynn­ingin getur svo beðið lon og don þar áður en hún er send áfram til fram­leið­and­ans, sem svo þarf að senda full­trúa til að meta bil­un­ina og kveða upp úr með hvort bil­unin sé innan ábyrgðar eða ekki. Einn við­mæl­enda OLFI sagði að á einum drek­anna hefði brotnað loft­net, eins­konar auka loft­net. Það var til­kynnt en í milli­tíð­inni, meðan beðið var eftir full­trúa fram­leið­and­ans, bil­aði mælir í stjórn­borði drek­ans. Þegar mað­ur­inn frá fram­leið­and­anum kom skoð­aði hann bara loft­netið, sem tók hann svo 10 mín­útur að skipta um, en hann hafði ekki fengið fyr­ir­mæli um að skoða mæl­inn (til­kynn­ingin enn í bunk­anum í inn­kaupa­deild­inni) og þar við sat. Þessi umræddi dreki var úr leik í rúma fjóra mán­uði. Flestar þeirra bil­ana sem verða í nýju drek­unum geta við­gerð­ar­menn hers­ins lagað en mega ekki. Þetta breyt­ist þegar ábyrgðin fellur úr gildi og við­gerð­ar­menn hers­ins ann­ast við­gerð­irnar. Þegar greinin í OLFI birt­ist voru 14 drekar öku­færir af þeim 32 sem her­inn hefur fengið afhenta.

Samstarfssamningur

Eins og nefnt var í upp­hafi þessa pistils greindi Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur nýlega frá fyr­ir­hug­uðum sam­starfs­samn­ingi við Banda­ríkin, um varn­ar­mál. Samn­ing­ur­inn er ein­göngu milli Dan­merkur og Banda­ríkj­anna, það er utan við NATO. Á frétta­manna­fund­inum þar sem greint var frá sam­komu­lag­inu voru sömu­leiðis Morten Bødskov varn­ar­mála­ráð­herra og Jeppe Kofod utan­rík­is­ráð­herra. Fram kom að und­ir­bún­ingur sé á byrj­un­ar­reit og teng­ist á engan hátt Úkra­ínu­deil­unni.

Frumkvæði Bandaríkjamanna

Á áður­nefndum frétta­manna­fundi kom fram að frum­kvæðið að sam­starfs­samn­ingnum kom frá Banda­ríkja­mönnum. Mette Frederik­sen sagði Dani reiðu­búna að taka auk­inn þátt í að tryggja öryggi Evrópu og þar væri hlut­verk Banda­ríkj­anna í senn mik­il­vægt og nauð­syn­legt.

Mikil breyting og andstaða Rússa

Fyrir 70 árum mörk­uðu dönsk stjórn­völd þá stefnu að aldrei skyldi erlendur her vera á danskri grund, að Græn­landi und­an­skildu. Mette Frederik­sen sagði þennan sam­starfs­samn­ing sem nú er í und­ir­bún­ingi mikla breyt­ingu. „Við gerum þetta vegna þess að við lifum á breyt­inga­tímum. Við þurfum, og erum, til­búin til að fara nýjar leiðir til að tryggja öryggi þjóðar okkar. Aukin við­vera Banda­ríkja­manna hér í Danmörku styrkir sam­vinn­una á hern­að­ar­svið­inu.“

Samn­ingnum sem nú er í und­ir­bún­ingi, svipar sam­kvæmt lýs­ingum danska for­sæt­is­ráð­herr­ans til samn­inga sem Banda­ríkja­menn hafa gert við nokkur önnur NATO ríki, meðal ann­ars Noreg og Eystra­salts­ríkin. Þar geta Banda­ríkja­menn komið og farið eins og þeim sýn­ist og banda­rísk stjórn­völd hafa lög­sögu yfir löndum sínum, her­mönnum það er að segja, þótt þeir dvelj­ist í öðrum löndum.

Rússar hafa harð­lega gagn­rýnt hinn fyr­ir­hug­aða samn­ing og það er einkum eitt sem er þeim þyrnir í augum. Borg­und­ar­hólmur. „Ef Danir heim­ila Banda­ríkja­mönnum að koma upp ein­hvers­konar aðstöðu á Borg­und­ar­hólmi verða Rússar að meta hvaða afleið­ingar það hefur á sam­skipti Dana og Rússa“ sagði sendi­herra Rússa í Danmörku í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske. Það yrði, að mati sendi­herr­ans, klárt brot á sam­komu­lagi Dana og Rússa frá árinu 1946 sem gert var þegar rúss­neski her­inn fór frá Borg­und­ar­hómi. Morten Bødskov varn­ar­mála­ráð­herra Dan­merkur sagði aðspurður ekki úti­loka að banda­rískur her gæti fengið ein­hvers­konar aðstöðu á Borg­und­ar­hólmi „það ákveðum við en ekki Rússar.“

Engin kjarnorkuvopn

Á frétta­manna­fund­inum áður­nefnda sagði Morten Bødskov að varð­andi eitt atriði í vænt­an­legu sam­komu­lagi myndu dönsk stjórn­völd setja skil­yrði sem ekki yrði hvikað frá: ef Banda­ríkja­menn segja að þeir vilji fá leyfi til að koma fyrir kjarn­orku­vopnum hér í Danmörku, þá er svarið nei. Það gildir líka um banda­rísk her­skip sem koma til hafnar í Danmörku.

Að mörgu er að hyggja

Samn­ingur eins og sá sem nú er í und­ir­bún­ingi milli Dan­merkur og Banda­ríkj­anna er flók­inn. Þar koma til fjöl­mörg laga­leg álita­mál, samn­ing­ur­inn verður að rúm­ast innan dönsku stjórn­ar­skrár­innar. Danska þingið verður sömu­leiðis að vera upp­lýst um öll atriði svo fátt eitt sé nefnt. Það virð­ist því ljóst að tím­inn fram að und­ir­ritun samn­ings­ins verði fremur tal­inn í mán­uðum en vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár