Staðan á Suðurnesjum „ógnvænleg“

Þær 250 millj­ónir sem sveit­ar­fé­lögin á Suð­ur­nesjum fengu í fram­lag frá rík­inu í vor munu duga skammt að mati fram­kvæmda­stjóra Sambands sveit­ar­fé­laga á Suð­ur­nesjum. Hún gerir ráð fyrir því að atvinnu­leysi nálgist 19 pró­sent í sept­em­ber á svæð­inu.

Reykjanesbær er fjölmennasta sveitarfélag Suðurnesja.
Reykja­nes­bær er fjöl­menn­asta sveit­ar­fé­lag Suð­ur­nesja. Mynd: Wikimedia

Staðan á Suð­ur­nesjum er ógn­væn­leg segir Berglind Krist­ins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Sambands sveit­ar­fé­laga á Suð­ur­nesjum, í sam­tali við Kjarnann um horfur á svæð­inu. Kjarninn hafði sam­band við Berg­lindi vegna þess að í vik­unni var til­kynnt um styrk frá sveita­stjórna- og sam­göngu­ráðu­neyti til sex sveit­ar­fé­laga vegna hruns í ferða­þjón­ustu í kjöl­far COVID-19. Sveit­ar­fé­lögin eru Mýr­dals­hreppur, Skaft­ár­hreppur, Skútu­staða­hreppur, Blá­skóga­byggð, Rangár­þing eystra og Sveit­ar­fé­lagið Horna­fjörður.

Byggða­stofnun gerði sam­an­tekt fyrr í ár á áhrifum nið­ur­sveiflu í ferða­þjón­ustu á atvinnu­á­stand á lands­byggð­inni. Nið­ur­stöð­urnar leiddu í ljós að mörg sveit­ar­fé­lög yrðu fyrir miklum búsifjum vegna ástands­ins og þá sér­stak­lega níu sveit­ar­fé­lög, þau sex sem áður voru upp talin og þrjú sveit­ar­fé­lög á Suð­ur­nesjum; Reykja­nes­bær, Suð­ur­nesja­bær og Sveit­ar­fé­lagið Vogar.

Fengu 250 milljónir í vor

Spurð að því hvort henni finn­ist að litið hafi verið fram hjá sveit­ar­fé­lögum á Suð­ur­nesjum við styrkút­hlut­un­ina bendir Berglind á að sveit­ar­fé­lögin hafi fengið styrk í vor. „Við fengum COVID fram­lag í vor, 250 millj­ónir. Það er styrkur sem fór í 17 verk­efni sem við erum að vinna að hérna á svæð­inu. En það nátt­úr­lega liggur í augum uppi að það mun ekki vega mjög þungt í því ástandi sem við erum að horfa upp á í dag,“ segir Berglind.

[adspot]

Hún segir að von­ast hafi verið til þess á Suð­ur­nesjum að ferða­þjón­ustan myndi rétta úr kútnum og að aukn­ing hafi orðið í flugi eftir miðjan júní. „En nú blasa við ný sjón­ar­horn á þetta verk­efni. Við erum nátt­úr­lega áhyggju­full því það er byrjað að segja aftur upp fólki eða fólk er að fara út af hluta­bóta­leið­inni þannig að það má gera ráð fyrir því að þá fjölgi á atvinnu­leys­is­skránni,“ segir Berglind.

42 prósent tekna úr greinum tengdum ferðaþjónustu

Von er á því að atvinnu­leysi nálgist 19 pró­sent í sept­em­ber að sögn Berg­lindar. Þar að auki sé lang­tíma­at­vinnu­leysi tölu­vert en fjöldi þeirra sem hafa verið á atvinnu­leys­is­skrá lengur en í tólf mán­uði sé um 450. Hún segir stöð­una ógn­væn­lega og að ástandið hafi eðli máls­ins sam­kvæmt bæði áhrif á ríki og sveit­ar­fé­lög.

Að hennar sögn koma um 42 pró­sent tekna sveit­ar­fé­laga á svæð­inu úr greinum sem tengdar eru ferða­þjón­ustu með einum eða öðrum hætti. En aðrir atvinnu­vegir vega mis­jafn­lega upp á móti hruni ferða­þjón­ust­unnar. „Við sjáum eins og í Grinda­vík þar sem sjáv­ar­út­veg­ur­inn er meiri en ferða­þjón­usta. Þar af leið­andi hefur atvinnu­leysi verið minna þar, það er rétt um níu pró­sent,“ segir Berglind.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár