Vigdís vill vita hvort „rafrænn útbúnaður“ sé notaður til að mæla fylgi flokka og andstöðu við ESB

Vigdís Hauksdóttir er þingmaður Framsóknarflokksins og formaður fjárlaganefndar Alþingis.
Vigdís Hauks­dóttir er þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður fjár­laga­nefndar Alþingis. Mynd: Anton Brink

Vigdís Hauks­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður fjár­laga­nefndar, vill vita hvort að raf­rænn útbún­aður sé not­aður „við skoð­ana­kann­anir sem varða fylgi stjórn­mála­flokka og önnur álita­efni, svo sem and­stöðu við Evr­ópu­sam­bandið.“ Þetta kemur fram í fyr­ir­spurn hennar til Ragn­heiðar Elínar Árna­dóttur, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, sem lögð var fram á þingi í dag.

Vigdís spyr Ragn­heiði Elínu um raf­rænar mæl­ingar á fjöl­miðla­notkun og um skoð­ana­kann­anir. Hún vill vita á hvaða grunni Capacent ann­ars vegar og fjöl­miðla­fyr­ir­tækin RÚV, 365 og Skjárinn hins vegar, fengu und­an­þágu frá sam­keppn­is­lögum til þess að mæla fjöl­miðla­notkun með raf­rænum útbún­aði og hvort und­an­þágan er enn í gildi.

Þá vill Vigdís vita hvernig mæl­ing­arnar fara fram. „Er val­inn hópur sem er for­kann­aður og ef svo er, hver velur hann?“ Og að lokum vill hún vita hvort þessi sami háttur er hafður á þegar kannað er fylgi stjórn­mála­flokka og önnur álita­efni eins og and­stöðu við Evr­ópu­sam­bandið.

Útvarp Saga kvartaði

Í úrskurði um málið á vef Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins má sjá að Sam­keppn­is­eft­ir­litið veitti sam­starf­inu milli ljós­vaka­miðl­anna og Capacent und­an­þágu frá sam­keppn­is­lögum að upp­fylltum ákveðnum skil­yrðum í des­em­ber 2008. Þar kom fram að und­an­þágan væri bundin við sama tíma og gild­is­tími samn­ings­ins sem fyr­ir­tækin höfðu gert sín á milli, eða til 2. apríl 2013.

Í úrskurð­inum má líka lesa um ástæður þess að und­an­þágan frá sam­keppn­is­lögum var veitt. Þar stendur meðal ann­ars að það séu „neyt­endur af marg­vís­legum toga sem hafa af því mikla hags­muni að fyrir liggi og unnt sé að afla sem áreið­an­leg­astra upp­lýs­inga um hlustun og áhorf á íslenska ljós­vaka­miðla. Verður að telja sam­starf um raf­rænar mæl­ingar með hinni nýju tækni til þess fallið að bæta þjón­ustu, bæði fjöl­miðl­anna og þeirra sem reiða sig á nið­ur­stöður fjöl­miðla­mæl­inga og þar með stuðla að efna­hags­legum fram­förum.“

Í ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um sama mál frá því í maí í fyrra kemur fram að Capacent fall­ist þá á að hlíta enn ítar­legri skil­yrðum við fram­kvæmd mæl­inga til að auð­velda aðkomu nýrra og minni ljós­vaka­miðla. Kvart­anir höfðu borist um málið frá Útvarpi Sögu árið 2010 sem varð til þess að eft­ir­litið fór að skoða málið frekar. Gamla Capacent fór svo í þrot árið 2011 og nýja félagið gerði tví­hliða samn­inga við fjöl­miðl­ana, sem áttu þannig ekki lengur í sam­starfi um mæl­ing­arnar.

Mælarnir eru raftæki sem nema falið hljóðmerki

Í sama úrskurði má einnig lesa svör við spurn­ingum Vigdísar um tækn­ina sem notuð er við mæl­ingar á notkun þess­ara fjöl­miðla og hvernig mæl­ing­arnar fara fram. Mælingin er gerð með svoköll­uðum ppm mælum sem ein­stak­lingar í úrtaki bera á sér. Mælarnir eru lítil raf­tæki sem nema sér­stakt falið hljóð­merki sem er komið fyrir í útsend­ingu þeirra útvarps- og sjón­varps­stöðva sem taka þátt í mæl­ing­unni. Í lok hvers dags eru upp­lýs­ingar sendar í mið­læga tölvu Capacent. Þetta er hinn raf­ræni útbún­aður sem not­ast er við.

Hvað varðar aðferða­fræð­ina byrjar fyr­ir­tækið á því að gera for­könnun hjá stórum hópi almenn­ings á notkun ljós­vaka­miðla. „Í kjöl­farið byggir Capacent upp og við­heldur hópi þátt­tak­enda sem á að end­ur­spegla almenn­ing í land­inu m.t.t. ljós­vaka­miðla­notk­unar. Ýmissa upp­lýs­inga er aflað í for­könnun og upp­færslukönn­unum Capacent m.a. upp­lýs­ingar um fjöl­skyldu­mynstur, áskriftir að fjöl­miðlum, lýð­fræði­legar upp­lýs­ingar o.fl. Með for­könn­un­inni leit­ast Capacent við að tryggja að í úrtak­inu, sem mun bera á sér hina raf­rænu mæla, sé jafnt hlut­fall heim­ila af ákveð­inni gerð og í þýð­inu (þ.e. stað­setn­ing, fjöldi á heim­ili, aldur o.s.frv.).“

Eftir að starfs­menn á rann­sókn­ar­sviði Capacent keyptu þann hluta fyr­ir­tæk­is­ins í byrjun þessa árs var nafni rann­sókn­ar­sviðs­ins breytt í Gallup. Fjöl­miðla­rann­sókn­irnar eru undir þeim hatti nú. Gallup gerir einnig kann­anir á fylgi flokka og ýmsu öðru, og hægt er að lesa um aðferða­fræð­ina við þær kann­anir á heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins. Þar er ekki not­ast við raf­rænan útbúnað, og ekki heldur hjá MMR, sem einnig kannar fylgi flokka reglu­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár