Sumarbúðir ungliða aftur í Útey í fyrsta sinn síðan 2011

Sum­ar­búðir ung­liða­hreyf­ingar norska jafn­að­ar­manna­flokks­ins í Útey verða haldnar á ný um kom­andi helgi. Það er í fyrsta sinn sem slík ferð er farin síðan Anders Behring Breivik myrti 69 manns, flesta á tán­ings­aldri, í eyj­unni 22. júlí 2011.

Ole Martin Juul Slyngsta­dli er einn þeirra sem komust lífs af úr Útey árið 2011. Hann segir mik­il­vægt að eyjan verði aftur þeirra. „Fyrir mér er mik­il­vægt að við eign­umst eyj­una aftur,“ sagði hann í sam­tali við AFP-frétta­stof­una en hann er nú orð­inn 22 ára.

Slyngsta­dli bjarg­aði lífi konu sem hafði verið skotin þrisvar og missti tvo af sínum bestu vinum. „Það hefur áhrif á mann,“ segir hann. „Ég var mjög virkur í stjórn­mála­starf­inu fyrir árás­irnar en nú brenn ég fyrir mál­stað­inn sem aldrei fyrr.“

[caption id="attachment_35902" align="alignnone" width="978"] Ole Martin Juul Slyngsta­dli[/caption]

600 manns voru í Útey fyrir fjórum árum en nú ætla meira en þús­und manns að mæta, meðal þeirra ein­hverjir sem komust undan árás Breivik. Nú hafa búð­irnar í eynni verið end­ur­byggðar og und­ir­búnar undir komu ung­menn­anna. Slingsta­dli er meðal hund­rað sjálf­boða­liða sem hjálpað hafa til en hefur sjálfur komið nokkrum sinnum í Útey eftir árás­irnar. „Það eru margar til­finn­ingar tengdar þessum stað en ég reyni að knýja fram þær jákvæðu,“ segir hann.

Þegar árásin var gerð bjarg­aði hann lífi Inu Libak sem hafði orðið fyrir skotum Breiviks. Slyngsta­dli bar hana inn í þykkan gróður eyj­unnar og hlúði að henni ásamt öðrum þar til þeim var bjargað og siglt í skjól. Libak var þungt haldin en hefur náð heilsu, hann eðli­lega í áfalli. „Ég hef aldrei séð nokkurn mann hlaupa jafn hratt og vera jafn sterkan,“ sagði Libak um bjarg­vætt sinn í vitna­leiðslum við rétt­ar­höldin yfir Breivik.

Síð­ast­liðin fjögur ár hefur fjöldi með­lima í ung­liða­hreyf­ingu jafn­að­ar­manna í Noregi auk­ist um 50 pró­sent. Ung­liða­hreyf­ingin heldur áfram að berj­ast fyrir jafn­rétti og fjöl­menn­ingu í Noregi, það sem Breivik seg­ist hafa sem ástæðu fyrir árásinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár