Ferða­þjón­ustan fer í gegnum vaxt­ar­verki Eitt af hverjum þremur störfum á Íslandi eru í ferða­þjón­ustu, en fag­menn innan hennar hafa áhyggjur af áherslum á fjölda­túrisma frekar en gæða­túrisma. Mynd: Shutterstock

Íslenskir leiðsögumenn segja frá kjarabrotum og hættu

Leið­sögumenn lýsa alvarlegum vanda­málum innan ferða­þjónustunnar á Íslandi og áhyggjum á hvaða leið hún er. „Mér fannst þetta vera orðið hættulegt,“ segir leið­sögumaður um vinnu­aðstæður sínar.

Við afhendingu íslensku þekkingar­verð­launanna í lok apríl sagði forseti Íslands að ferða­þjónustan stæði á tímamótum, að hún þyrfti að vera á varðbergi og forðast að taka róttækar ákvarðanir. Þemað í ár var „fagmennska og færni í ferða­þjónustu“; Íslenskir fjalla­leið­sögumenn voru tilnefndir til verð­launanna, en biðu lægri hlut gegn Bláa Lóninu. 

Það eru bara fáein ár síðan litið var á leiðsögn sem sumar­starf fyrir vaska kennara, og því má teljast til stór­frétta að fyrirtæki sem sérhæfir sig í leiðsögn sé tilnefnt til slíkra verðlauna. Uppgangur iðnaðarins virðist aukast á hverju ári og ef spár ganga eftir um að 2,3 milljónir ferða­manna komi til landsins í ár má búast við því að það verði nóg að gera fyrir leið­sögumenn. 

Þrátt fyrir þessa velgengni kraumar undir yfir­borðinu óánægja vegna kjaramála, fljót­færni og skamm­sýnna atvinnu­rekenda, og jafnframt ótti við að vaxtar­verkirnir sem iðnaðurinn er að fara í gegnum séu merki um hvernig …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Réttindabrot á vinnumarkaði

Mest lesið undanfarið ár