Það er einhver með aðgang að fjármunum Dekhill Advisors

Aflands­fé­lag sem fékk tæp­lega þrjá millj­arða króna greidda vegna leyni­samn­inga sem gerðir voru við sölu á hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum er enn í virkt. Félagið, Dekhill Advisors Limited, er með banka­reikn­ing í sviss­neskum banka.

Dekhill Advisors Limited, aflands­fé­lagið sem fékk 2,9 millj­arða króna greidda inn á reikn­ing sinn vegna „Lunda-flétt­unnar“ í kringum kaup S-hóps­ins á ráð­andi hlut í Bún­að­ar­banka Íslands í jan­úar 2003, er virkt félag.

Í des­em­ber 2009 gerði félagið hand­veðs­samn­ing við sviss­neska bank­ann Julius Bäer vegna fjár­mála­gjörn­ings sem það var að taka þátt í. Kjarninn og RÚV hafa undir höndum gögn sem sýna þetta. Þau gögn inni­halda einnig skjal sem stað­festir að Dekhill Advisors var enn til og í virkni í lok sept­em­ber 2016, fyrir rúmu hálfu ári síðan.

Það er því skýrt að ein­hverjir hafa haft aðgang að og notað fjár­mun­ina sem greiddir voru inn í Dekhill Advisors í jan­úar 2006, á árunum eftir hrun. Og félagið var enn í starf­semi í fyrra­haust. Hverjir það eru sem nota fjár­muni Dekhill Advisors er þó enn sem komið er ráð­gáta. En fyrir liggur að sviss­neski bank­inn Julius Bäer veit svarið við henni.

Sagðir hafa blekkt stjórnvöld og almenning

Í mars var birt skýrsla rann­sókn­ar­nefndar um aðkomu þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser að kaupum á 45,8 pró­sent hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum. Í henni var opin­berað að stjórn­völd, fjöl­miðlar og almenn­ingur hafi verið blekkt til að halda að þýski bank­inn hafi raun­veru­lega verið að kaupa hlut í Bún­að­ar­bank­anum fyrir eigin reikn­ing. Svo var ekki.

Með vísun í ítar­leg gögn sýndi rann­sókn­ar­nefndin fram á að íslenski bank­inn Kaupþing, sem sam­ein­að­ist Bún­að­ar­bank­anum skömmu eftir söl­una, hafi fjár­magnað kaup Hauck & Auf­häuser að hluta í bank­anum að fullu, að baki lágu bak­samn­ingar sem tryggðu Hauck & Auf­häuser fullt skað­leysi, þókn­ana­tekjur upp á eina milljón evra fyrir að leppa og sölu­rétt á hlutnum eftir að þýski lepp­bank­inn var búinn að halda á honum í tæp tvö ár.

Til við­bótar lá fyrir í flétt­unni, sem var kölluð „Puffin“ (sem þýðir lundi á íslensku), að hagn­aður sem gæti skap­ast hjá réttum eig­enda hlut­ar­ins, aflands­fé­lags­ins Welling & Partners á Bresku Jóm­frú­areyj­unum, myndi renna til tveggja aflands­fé­laga, skráð á sama stað, sem áttu það félag. Annað þeirra aflands­fé­laga var Marine Choice Limited, í eigu Ólafs Ólafs­sonar. Hann hagn­að­ist um 3,8 millj­arða króna á flétt­unni.

Hitt félagið, Dekhill Advisors, hagn­að­ist um 2,9 millj­arða króna á „Puffin“ verk­efn­inu og fékk þá fjár­muni greidda inn á reikn­ing sinn á árinu 2006. Á núvirði er sam­eig­in­legur hagn­aður félag­anna tveggja rúm­lega 11 millj­arðar króna.

Spurningunni sem var ekki svarað

Þau gögn sem rann­sókn­ar­nefndin var með undir höndum í vinnu sinni sýndu ekki fram á það með óyggj­andi hætti hver eig­andi, eða eig­endur, Dekhill Advisors, væru. Þau sýndu heldur ekki hvort ein­hverjir aðrir en skráðir eig­endur félags­ins væru með aðgang að þeim fjár­munum sem runnu inn í það.

Rann­sókn­ar­nefndin ályktaði að aðilar tengdir Kaup­þingi hafi verið eig­endur þess. Þar er átt við að mögu­lega hafi stjórn­endur Kaup­þings átt það, eða að minnsta kosti notið þeirra fjár­muna sem flæddu inn í félagið. En það hefur líka öðrum mögu­leikum verið velt upp. Í samn­ings­drögum sem birt eru í skýrsl­unni kom á einum tíma til greina að Ágúst og Lýður Guð­munds­synir myndu eiga hlut í Welling & Partners.

Allir þeir sem komu að „Lunda­flétt­unni“ og voru kall­aðir fyrir rann­sókn­ar­nefnd­ina gátu ekki svarað því hverjir eig­endur Dekhill væru. Þeim var síðan sent bréf frá nefnd­inni þann 13. mars þar sem þeim bauðst að svara spurn­ingum nefnd­ar­innar í ljósi þeirra gagna sem hún hafði aflað sér og þeirrar nið­ur­stöðu sem hún hafði kom­ist að. Svörin bár­ust flest 20. og 21. mars en skýrsla nefnd­ar­innar var ekki birt fyrr en 29. mars.

Rannsóknarnefndin gat ekki svarað því með óyggjandi hætti hver eigandi Dekhill Advisors Limited væri.
Rann­sókn­ar­nefndin gat ekki svarað því með óyggj­andi hætti hver eig­andi Dekhill Advisors Limited væri.

Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, sagði í svar­bréfi sínu við spurn­ingum nefnd­ar­innar að hann teldi „óhætt að full­yrða að ég hafi aldrei heyrt minnst á félagið Dekhill Advisors Limited fyrr en í bréfi nefnd­ar­innar“. Ólafur Ólafsson sagð­ist í svar­bréfi sínu til nefnd­ar­innar ekki minn­ast þess „að hafa heyrt minnst á félagið Dekhill Advisors Limited.“ Sigurður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, sagð­ist í sínu bréfi ekki geta „aðstoðað nefnd­ina við að svara þeim spurn­ingum sem að mér er beint“. Bræð­urnir Ágúst og Lýður sögðu í sam­hljóma svar­bréfum að þeim reki ekki minni til þeirra atriða sem nefnd voru í bréfi rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar.

Finnur Ing­ólfs­son, fyrr­ver­andi vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, for­stjóri VÍS, ráð­herra og seðla­banka­stjóri, var hluti af S-hópnum. Hann sendi frá sér yfir­lýs­ingu 31. mars þar sem hann sagði að „hvorki ég né nokkur sem mér teng­ist er eig­andi að félag­inu Dekhill Advisors“.

Verið að skoða gögn og upplýsingar

Hægt er að leggja fram beiðni um rétt­ar­að­stoð milli landa. Til þess að gera það þarf við­kom­andi stjórn­vald þó að gera grein fyrir hvaða mál sé til rann­sóknar. Málið þarf auk þess að vera refsi­vert í báðum lönd­unum sem um ræðir.

Mögulegt er að þeir fjár­munir sem runnu til Dekhill Advisors hafi átt að skatt­leggja hér­lendis. Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til emb­ættis skatt­rann­sókn­ar­stjóra um hvort það hefði hafið rann­sókn á félag­inu og hvort það hefði sent fyr­ir­spurnir til fjár­mála­stofn­ana erlendis sem vitað er að Dekhill var með banka­reikn­inga hjá til að óska eftir upp­lýs­ingum um end­an­lega eig­endur félags­ins eða þá sem nutu hags­bóta af þeim fjár­munum sem greiddir voru til Dekhill Advisors.

Í svari Bryn­dísar Krist­jáns­dóttur skatt­rann­sókn­ar­stjóra segir að emb­ættið hafi yfir­farið skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar. „Það er verið að skoða frek­ari gögn og upp­lýs­ingar. Það liggur ekki fyrir hvort sú skoðun leiði til frek­ari aðgerða af hálfu emb­ætt­is­ins og eftir atvikum form­legrar rann­sóknar.“

Sú rann­sókn­ar­nefnd sem skipuð var um aðkomu þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser að kaupum á 45,8 pró­sent hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum hefur ekki lengur neitt laga­legt umboð til aðgerða og getur því ekki leitað eftir frek­ari upp­lýs­ingum. Nið­ur­staða hennar er hins vegar til með­ferðar hjá stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, sem fékk starfs­menn rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar á sinn fund í dag. Á morgun, mið­viku­dag, mun Ólafur Ólafsson svo koma fyrir nefnd­ina, segja sína hlið á mál­inu og svara spurn­ingum nefnd­ar­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hauck&Aufhäuser

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Að opin­bera Ólaf Ólafsson er ekki mann­rétt­inda­brot

Ólafur Ólafsson hefur kært íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu fyrir það að Alþingi hafi skipað rann­sókn­ar­nefnd til að upp­lýsa um það að hann og sam­starfs­fé­lagar hans hefðu beitt ríkið, fjöl­miðla og almenn­ing allan stór­kost­legum blekk­ingum til að kom­ast yfir Bún­að­ar­bank­ann árið 2003. Ólafur telur að vinna og birt­ing á skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar hafi vegið „alvar­lega að orð­spori og æru“ hans án...

Mest lesið undanfarið ár