ASÍ segir stjórnvöldum hafa mistekist að standa vörð um orkuinnviði

ASÍ gerir alvar­legar athuga­semdir við frum­varp um breyt­ingu á raf­orku­lögum, þrátt fyrir að hafa ekki verið send umsagn­ar­beiðni. „Sú stað­reynd að skömmtun raf­orku er til umræðu er til marks um að stjórn­völdum hafi mis­tek­ist að standa vörð um orku­inn­viði og þar með hags­muni almenn­ings,“ segir m.a. í umsögn­inni.

Raforkuöryggi
Raf­orku­ör­yggi Alþýðu­sam­band Íslands segir þá stað­reynd að skömmtun raf­orku er til umræðu vera til marks um að stjórn­völdum hafi mis­tek­ist að standa vörð um orku­inn­viði og þar með hags­muni almenn­ings. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alþýðu­sam­band Íslands segir stjórn­völdum hafa mis­tek­ist að standa vörð um orku­inn­viði, og þar með hags­muni almenn­ings. Mistökin fel­ast í því að upp er komin sú staða að lagt hefur verið fram frum­varp sem felur í sér að tryggja almenn­ingi og smærri fyr­ir­tækjum for­gang komi til skömmt­unar vegna óvið­ráð­an­legra atvika, til að mynda vegna fram­boðs­skorts. 

ASÍ gerir alvar­legar athuga­semdir við frum­varp til laga um breyt­ingu á raf­orku­lögum sem felur ekki í sér heild­stæða lausn á þeim vanda sem steðjar að vegna þess að stjórn­völd hafa ekki tryggt orku­ör­yggi fyrir heim­ili og smærri fyr­ir­tæki né vernd fyrir verð­hækk­unum á raf­orku. 

Umsagn­ar­beiðnir voru sendar 14 fyr­ir­tækjum og sam­tökum. ASÍ var ekki í hópi þeirra en hefur engu að síður sent inn umsögn um áform­aðar breyt­ingar. „Umsagn­ar­beiðni var ekki send sam­band­inu þrátt fyrir að efni frum­varps­ins og breyt­ing­ar­til­lögur meiri­hlut­ans varði hags­muni almenn­ings og félags­manna Alþýðu­sam­bands Íslands,“ segir í umsögn ASÍ, sem birt var á vef Alþingis í gær­kvöld. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra mælti fyrir frum­varp­inu um miðjan októ­ber og önnur umræða stendur nú yfir á Alþingi. Í frum­varp­inu er m.a. gerð sú grund­vall­ar­breyt­ing á samn­ingum orku­fyr­ir­tækja við stór­iðj­una, að hún megi áfram­selja orku sem hún ekki nýtir. Nokkuð sem ekki hefur verið heim­ilað hingað til. 

ASÍ telur ástæðu að benda á að þótt breyt­ingin virð­ist lítil geta áhrifin verið veru­leg. „Ef breyt­ing­arnar ná fram að ganga virð­ist ekk­ert koma í veg fyrir að stórnot­endur raf­orku, þ.á m. álver, geri hlé á starf­semi sinni og fram­leiðslu og ákveði að selja raf­ork­una frekar en að nýta hana, ef það reyn­ist þeim hag­stæð­ara,“ segir í umsögn sam­bands­ins. 

Gagnrýni á frum­varpið kemur úr ýmsum áttum. Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri Brims hf, er veru­lega ósáttur við aðgengi að raf­magni til rekst­urs fiski­mjöls­verk­smiðju félags­ins á Vopna­firði. Fjár­fest­ing í raf­væð­ingu nýt­ist ekki þar sem brenna þurfi olíu til að halda bræðsl­unni í drift. „Ekki hvarfl­aði að okkur þegar Brim á sínum tíma fjár­festum í bún­aði til að knýja fisk­mjöls­verk­smiðju okkar með raf­magni að í fram­tíð­inni yrði búið að selja það mikla raf­orku í lang­tíma­samn­inga við stórnot­endur að orkan yrði upp­seld og ófá­an­leg,“ segir Guð­mundur  í til­kynn­ingu til fjár­festa vegna upp­gjörs fyr­ir­tæk­is­ins á fyrsta árs­fjórð­ungi þessa árs.

Grefur undan starfsöryggi launafólks stórnotenda

ASÍ telur jafn­framt að breyt­ing­arnar geti grafið undan starfs­ör­yggi launa­fólks stórnot­enda raf­orku og haft ófyr­ir­séðar afleið­ingar á íslenskan vinnu­markað. „Alþýðu­sam­band Íslands gagn­rýnir harð­lega að stórum breyt­ingum sem þessum sé bætt við frum­varpið á seinni stigum máls án þess að mat hafi verið fram­kvæmt á mögu­legum áhrifum og án und­an­geng­ins sam­ráðs.“

Alþýðu­sam­bandið kallar eftir því að stjórn­völd taki málið í heild sinni til end­ur­skoð­unar þar sem farið verði í „heild­stæð­ari breyt­ingar á lagaum­gjörð raf­orku­mála þar sem áhrif breyt­ing­anna eru metin og tryggt verði að stjórn­sýsla og eft­ir­lits­stofn­anir séu í stakk búnar til að hafa yfir­sýn og eft­ir­lit með raf­orku­mark­aði.“

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Nú ætti að vera lýðum ljóst hvers vegna Guðlaugur Þór valdi að stýra umhverfisráðuneytinu og bæta við það orkumálunum! Þetta ráðuneyti undir hans stjórn er orðið að sannkölluðu auðlindaráðuneyti þar sem vélað er um auðlindir aðrar en í sjó. Og Gulli er á fullu við að einkavinavæða þetta allt.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár