Ellefu börn greindust með COVID-19 í gær

Af þeim sautján sem greindust með smit inn­an­lands í gær eru ell­efu börn á aldr­inum 6-12 ára. Smit kom upp í Laug­ar­nes­skóla og eru nú allir nem­endur skól­ans í svo­kall­aðri úrvinnslu­sótt­kví sem og allir nem­endur Lauga­lækj­ar­skóla.

Ekki hafa fleiri greinst innanlands með veiruna á einum degi síðan í byrjun desember.
Ekki hafa fleiri greinst inn­an­lands með veiruna á einum degi síðan í byrjun des­em­ber. Mynd: EPA

Sautján inn­an­lands­smit greindust í land­inu í gær. Fjórtán þeirra sem greindust voru í sótt­kví. Fjórtán manns greindust í svoköll­uðum ein­kenna­sýnum, þ.e. hjá fólki sem fór í sýna­töku vegna ein­kenna, en fjórtán í handa­hófs- og sótt­kví­ar­skimunum. 454 eru í sótt­kví á land­inu og 75 í ein­angrun – með virkt smit af kór­ónu­veirunni sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum, sam­kvæmt upp­lýs­ingum á covid.is.

Fimm þeirra sem greindust með sjúk­dóm­inn í gær eru á aldr­inum 30-39 ára og eru nú 26 í þeim ald­urs­hópi með virkt smit. Þá greindust ell­efu börn á aldr­inum 6-12 ára og eru nú 12 í þeim ald­urs­hópi í ein­angrun með virkt smit.

Í gær voru tekin 1.557 sýni inn­an­lands, lang­flest þeirra voru vegna ein­kenna sem fólk hafði.

Þrír greindust með virkt smit á landa­mær­unum í gær.

Aðeins 19.887 ein­stak­lingar á Íslandi eru full­bólu­settir. Tæplega 18.255 til við­bótar hafa fengið fyrri skammt bólu­efnis. Í upp­færðu bólu­setn­ing­ar­daga­tali stjórn­valda er gengið út frá því að þjóðin verði full­bólu­sett í lok júlí í stað júníloka. Um 79 pró­sent 90 ára og eldri eru full­bólu­settir nú þegar og um 74 pró­sent fólks á aldr­inum 80-89 ára. Aðeins 8 pró­sent fólks aldr­inum 70-79 er hins vegar full­bólu­sett.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár