Lögfræðingur í forsætisráðuneytinu sagðist ekki telja vafa um lagaheimild vegna sóttvarnahúsa

Lög­fræð­ingur í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu sagði í minn­is­blaði til for­sæt­is­ráð­herra 29. mars að það léki ekki vafi á því að laga­heim­ild væri til staðar til þess að gera það sem Hér­aðs­dómur Reykja­víkur sagði svo að mætti ekki.

Lög­fræð­ingur í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu sagði í minn­is­blaði til for­sæt­is­ráð­herra, dag­settu 29. mars, að ekki léki vafi á um hvort laga­heim­ild væri til staðar til þess að skylda til­tekna komu­far­þega hingað til lands til þess að vera í sótt­kví í hús­næði þar sem hægt væri að hafa með þeim eft­ir­lit.

„Það leikur því ekki vafi á því að laga­heim­ild er til staðar að kveða á um að ferða­menn skuli við komu til lands­ins vera í sótt­kví í hús­næði þar sem hægt er að hafa með þeim eft­ir­lit og sem upp­fyllir sótt­varn­ar­kröfur. Það breytir ekki þeirri nið­ur­stöðu þótt skil­grein­ing sótt­varna­húss sé full­þröng í 3. mgr. 1. gr. [sótt­varna­laga]. Þar virð­ist nefni­lega ekki gert ráð fyrir þeim mögu­leika að sótt­varna­hús sé notað fyrir alla ferða­menn sem koma til lands­ins frá til­teknum svæðum,“ segir í minn­is­blað­inu, sem er eitt þeirra gagna sem nefnd­ar­menn í vel­ferð­ar­nefnd fengu afhent frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu í gær.

Það liggur því fyrir að áður en aðgerð­irnar tóku gildi var komið fram lög­fræði­á­lit þar sem stjórn­völd fengu þau skila­boð að aðgerð­irnar sem boð­aðar voru með reglu­gerð, en Hér­aðs­dómur Reykja­víkur taldi síðar ekki hafa laga­stoð, hefðu stoð í sótt­varna­lögum.

Seint og lítið spáð í lögmætinu

Nefnd­ar­mönnum í vel­ferð­ar­nefnd sem Kjarninn hefur rætt við í morgun þykir þó sumum seint hafa verið farið af stað í þann leið­angur að kanna hvort aðgerð­irnar, sem sam­þykktar voru á rík­is­stjórn­ar­fundi 23. mars og útfærðar í reglu­gerð Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra, væru lög­legar.

Bæði Halldóra Mogensen þing­maður Pírata og Vil­hjálmur Árnason þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks eru á þeirri skoðun að yfir­völd hefðu þurft að kanna bæði fyrr og nánar hvort skot­helt væri að það stæð­ist lögin að skikka alla þá sem hingað til lands komu frá ákveðnum svæðum þar sem far­ald­ur­inn hefur verið í hvað öru­stum vexti, til þess að vera í sótt­varna­húsi í sótt­kví.

Halldóra seg­ist í raun ekki skilja af hverju það hafi ekki verið betur kannað. Ef önnur gögn sem vel­ferð­ar­nefnd hafi fengið afhent í gær séu skoðuð sjá­ist að innan stjórn­sýsl­unnar hafi und­ir­bún­ingur aðgerð­anna verið í fullum gangi. Athyglin hafi verið á útfærsl­unni, hvar skyldi leigja hótel og hvernig skyldi skipu­leggja það mikla verk­efni sem hin nýja útfærsla sótt­varna­hús­anna var.

„Það virð­ist vera rör­sýn,“ segir Halldóra. „Þau gleyma sér í útfærslu fram­kvæmd­ar­innar og stoppa ekk­ert,“ en hún segir af gögn­unum að dæma hafi verkið verið unnið í nánu sam­starfi þriggja ráðu­neyta; heil­brigð­is­ráðu­neytis, dóms­mála­ráðu­neytis og for­sæt­is­ráðu­neytis.

„Verk­stjórnin virð­ist dálítið hafa brugð­ist hjá öllum þessum þremur ráð­herrum. Þetta er sam­eig­in­legt klúður og mér þykir per­sónu­lega dálítið skrítið að fyrir svona risa­stórt verk­efni og svona frels­is­skerð­ingu að þau hafi bara fengið álit frá einum lög­fræð­ingi í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu,“ segir Halldóra og nefnir að ef hún sjálf hefði verið að útfæra aðgerð sem þessa hefði hún viljað hafa ítar­legri laga­lega bak­trygg­ingu en eitt álit sem komið hafi fram ein­ungis tveimur dögum áður en aðgerð­irnar tóku gildi.

Vil­hjálmur tekur í svip­aðan streng, en tekur reyndar fram að hann sé ekki búinn að lesa sig í gegnum öll gögnin sem nefnd­ar­menn­irnir fengu sem áður segir frá ráðu­neyt­inu í gær eftir tölu­vert japl, jaml og fuður.

„Það er ekki mikið verið að pæla hvort þetta stand­ist lög,“ segir Vil­hjálmur og lýsir reyndar rök­stuðn­ingi yfir­valda fyrir nauð­syn þeirrar aðgerðar að skylda hluta ferða­langa í sótt­varn­ar­hús sem svo að þær séu í „véfrétta­stíl“. Hann saknar þess að ítar­legri rök­stuðn­ingur hafi verið færður fram um það hverjir hafi verið að brjóta sótt­kví og hversu lík­legt sé að ein­hverjir ákveðnir hópar brjóti sótt­kví.

Kalla eftir frekari gögnum

Vil­hjálmur segir að hann telji að ein­hver frek­ari gögn um und­ir­bún­ing þess­arar aðgerðar liggi fyrir í dóms­mála­ráðu­neyt­inu og for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og hefur kallað eftir því að þau verði lögð fram. Hann seg­ist þó ekki viss um á hvaða stigi máls þau ráðu­neyti hafi farið yfir málið.

Hann reiknar með því að vel­ferð­ar­nefnd muni birta þessi gögn á ein­hvern hátt, en nefnd­ar­menn fengu gögnin í hendur í gær og virð­ast sumir vera eitt­hvað óvissir um hverju þeir nákvæm­lega megi deila með blaða­mönnum sem hringja for­vitnir og spyrja spurn­inga, enda ekki með aðgang að þessum sömu gögnum, sem njóta und­an­þágu frá upp­lýs­inga­lögum þar sem þau voru tekin saman fyrir fund rík­is­stjórn­ar­innar.

Helga Vala Helga­dóttir, for­maður nefnd­ar­innar og þing­maður Sam­fylk­ingar, segir að beðið sé eftir leyfi til þess að birta gögnin sem um ræðir á opin­berum vett­vangi, en auk þessa minn­is­blaðs lög­fræð­ings í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu sem áður hefur verið vísað til er um að ræða minn­is­blað frá heil­brigð­is­ráð­herra til rík­is­stjórnar og sam­eig­in­legt minn­is­blað þriggja ráð­herra til rík­is­stjórnar um opin­berar sótt­varna­ráð­staf­anir á landa­mærum.

Í gögn­unum eru sam­kvæmt því sem nefnd­ar­menn segja við Kjarnann ein­hver tölvu­póst­sam­skipti frá emb­ætt­is­mönnum sem eru að vinna sína vinnu og segir Halldóra Mogensen að hún telji að það þurfi ein­fald­lega að afmá nöfn emb­ætt­is­manna úr gögn­unum áður en þau sé hægt að birta að fullu opin­ber­lega.

Ólafi óraði ekki fyrir því að lagastoð myndi skorta

Ólafur Þór Gunn­ar­son þing­maður Vinstri grænna segir að hann hafi ekki lesið í gegnum gögnin, en að honum sjálfum hafi ekki órað fyrir öðru en að sótt­varn­ar­lögin, sem hann mælti fyrir breyt­ingum á fyrr í vetur, fælu í sér heim­ildir til þess að ráð­ast í aðgerðir eins og þær sem farið var í 1. apríl en hafa nú verið aðlag­aðar að nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms Reykja­víkur.

Hann segir að í 12., 13. og 14. gr. sótt­varn­ar­lag­anna komi fram að sótt­varna­læknir og þar með yfir­völd hafi ríkar heim­ildir til að grípa til þeirra aðgerða sem nauð­syn­legt er talið að grípa varð­andi sótt­varnir hverju sinni.

Í úrskurði Hér­aðs­dóms Reykja­víkur hafi skil­grein­ing lag­anna á því hvað telj­ist sótt­varn­ar­hús og fyrir hverja þau séu, verið „túlkuð þröngt.“

„Mig óraði ekki fyrir því að þetta gæti orðið túlk­unin,“ segir Ólafur Þór og segir miður að ekki haf­ist fengið efni­leg nið­ur­staða um málið í Lands­rétti, en þar var kæru yfir­valda vísað frá.

„Það er nátt­úr­lega aldrei hægt að spyrja dóm­stóla álits fyr­ir­fram,“ segir Ólafur Þór en bætir við að hann hafi verið „með nefið mikið í sótt­varna­málum“ sem fram­sögu­maður nefnd­ar­innar. Hann hafi talið að reglu­gerð­ar­heim­ildir ráð­herra sam­kvæmt lög­unum væru það ríku­legar að laga­stoð hefði átt að vera til staðar.

Athuga­semd rit­stjórnar: Í upp­haf­legri útgáfu frétt­ar­innar sagði að minn­is­blaðið frá 29. mars hefði verið sett fram af hálfu skrif­stofu lög­gjaf­ar­mála í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Það er ekki rétt og hefur verið leið­rétt. Minn­is­blaðið var sett fram í nafni eins lög­fræð­ings sem starfar fyrir for­sæt­is­ráðu­neytið. Fyr­ir­sögn frétt­ar­innar, und­ir­fyr­ir­sögn og texta í meg­in­máli eftir því sem á við hefur verið breytt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár