Bjarni Ben svarar ekki hvort hann styður Hönnu Birnu sem varaformann

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins svarar því ekki hvort hann styður Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur sem vara­for­mann flokks­ins. „Mér finnst að ég eigi ekki að blanda mér í það,“ sagði Bjarni í þætt­inum á Sprengisandi á Bylgj­unni.

Bjarni var spurður um lands­fund­inn sem er framundan hjá Sjálf­stæð­is­flokknum. Hann sagð­ist ekki telja að það væri nein hefð fyrir því að for­maður hlut­að­ist til um kjör vara­for­manns, en hann sagð­ist treysta Hönnu Birnu til góðra verka.

Þá sagð­ist Bjarni ekki eiga von á því að hann sjálfur fengi mót­fram­boð á fund­inum.

Bjarni var einnig spurður út í stöðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem mælist minni í skoð­ana­könn­unum en Píratar. „Ég hef sagt við okkar fólk að þetta er lík­lega dýpsta krísan sem við höfum verið í,“ sagði Bjarni. „En ég veit að við erum að gera góða hluti í lands­mál­unum [...] ég er sann­færður um að við munum bæta við okkur fylgi.“

Ungt fólk leitandi og Píratar með grunna hugmyndafræði


Hann sagði ungt fólk vera leit­andi í stjórn­málum, þannig læsi hann í skoð­ana­kann­anir. Hann sagði að komin væri upp sú staða að menn megi ekki hafa skoðun á Pírötum án þess að vera sagðir vera hræddir við þá og að verj­ast þeim.

„Ég ætla bara að leyfa mér að hafa skoðun á Pírötum eins og öðrum flokkum. Mér finnst hug­mynda­fræðin grunn, mér finnst ekki skýrt hvað þeir eru að berj­ast fyrir.“ Hann sagði jafn­framt að í þeim málum sem hann væri að fást við, í stórum efna­hags­málum, finnd­ist honum Píratar skila auðu.

Borgarfulltrúum flokksins ekki að takast nógu vel upp


Bjarni var einnig spurður um stöð­una á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er í meiri­hluta í mörgum litlum sveit­ar­fé­lögum en gengur ekki mjög vel í Reykja­vík. Um borg­ar­full­trú­ana í Reykja­vík sagði hann: „þeim er ekki að takast nægj­an­lega vel upp í augna­blik­inu.“ Hann sagð­ist samt styðja borg­ar­stjórn­ar­flokk­inn og ætl­aði ekki að bregða fyrir þau fæti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár