Hætta að veita fjölmiðlaverðlaun á degi íslenskrar náttúru

Algjör spreng­ing hefur orðið í umfjöllun fjöl­miðla um lofts­lags- og umhverf­is­mál og því telur umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytið ekki lengur þörf á að verð­launa miðla sér­stak­lega fyrir slíkan frétta­flutn­ing.

Arnhildur Hálfdánardóttir fékk fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins í fyrra fyrir þáttaröðina Loftslagsþerapían. Hún er þar með síðasti handhafi þeirra verðlauna.
Arn­hildur Hálf­dán­ar­dóttir fékk fjöl­miðla­verð­laun umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins í fyrra fyrir þátta­röð­ina Lofts­lags­þerapían. Hún er þar með síð­asti hand­hafi þeirra verð­launa. Mynd: Umhverfis- og auðlindaráðuneytið

Frá því að farið var að halda dag íslenskrar nátt­úru hátíð­legan fyrir rúmum ára­tug hefur fjöl­miðla­fólki eða fjöl­miðli verið veitt verð­laun fyrir vand­aða og eft­ir­tekt­ar­verða umfjöllun eða fræðslu um nátt­úru Íslands. Í dag, á degi íslenskrar nátt­úru, verða engin slík verð­laun veitt.

Fjöl­miðla­verð­launum umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins var komið á á þeim tíma sem lítið var fjallað um umhverfis- og lofts­lags­mál. Það er mat ráðu­neyt­is­ins að fjöl­miðlar hafi stór­aukið umfjöllun sína um umhverf­is­mál síð­ustu ár, segir í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans. Sú umfjöllun hefur verið mála­flokknum mjög mik­il­væg og haft þau áhrif að auka almennan skiln­ing og vit­und­ar­vakn­ingu í umhverf­is­málum.„Verð­launin hafa verið þáttur í þess­ari þróun, en þeim var ætlað að hvetja til hverskyns umfjöll­unar um lofts­lags- og umhverf­is­mál í fjöl­miðlum. Ráðu­neytið er afar þakk­lát fyrir þá þróun og telur verð­launin hafa þjónað til­gangi sínum að sinni.“

Efnt verður þó til við­burðar vegna dags íslenskrar nátt­úru í ráðu­neyt­inu, þar sem ráð­herra mun und­ir­rita frið­lýs­ingu vatna­sviðs Jök­ul­falls og Hvítár. Þá verður stað­fest að íslensk stjórn­völd hafa tekið svo­nefndri Bonn-áskorun, sem fela í sér það mark­mið að árið 2030 vaxi birki­skógar á 5 pró­sent lands­ins, í stað 1,5 pró­sent nú. Loks verður til­kynnt hver hljóti nátt­úru­vernd­ar­við­ur­kenn­ingu Sigríðar í Bratt­holti þetta árið.

Rík­is­stjórnin ákvað á fundi sínum í byrjun októ­ber árið 2010 að 16. sept­em­ber ár hvert yrði þaðan í frá dagur íslenskrar nátt­úru. Fyrir val­inu varð þessi dag­setn­ing þar sem þetta er afmæl­is­dagur Ómars Ragn­ars­sonar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár