Tveggja metra reglan mun gilda um allt land

Rík­is­stjórnin sam­þykkti á fundi sínum að láta hertar aðgerðir gilda með svip­uðum hætti næstu 2-3 vik­urnar, en unnið er að end­an­legri útfærslu. Tveggja metra reglan mun taka gildi um land allt og til­mæli um íþrótta­starf munu taka ein­hverjum breyt­ingum.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson er starfandi heilbrigðisráðherra í fjarveru Svandísar Svavarsdóttur.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son er starf­andi heil­brigð­is­ráð­herra í fjar­veru Svan­dísar Svav­ars­dóttur. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að þess megi vænta að heil­brigð­is­ráð­herra muni fram­lengja þær aðgerðir sem hafa verið í gildi und­an­farna 10 daga, þannig að þær standi næstu tvær til þrjár vikur.

Þetta kemur fram í Facebook-færslu for­sæt­is­ráð­herra, þar sem hún segir einnig að hátt hlut­fall þeirra sem voru í sótt­kví er þeir greindust með COVID-19 í gær (50 af alls 67) von­andi merki um að hertar aðgerðar séu byrj­aðar að skila árangri.

Ögn verður skerpt á þeim reglum sem hafa verið í gildi. Tveggja metra-reglan mun gilda um allt land og til­mælum um íþrótta­starf með snert­ingu verður breytt í reglur og sömu reglur verða látnar gilda um íþróttir utandyra og inn­an­húss, sam­kvæmt því sem Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, starf­andi heil­brigð­is­ráð­herra, sagði við Vísi eftir rík­is­stjórn­ar­fund í dag.

Hann sagði að unnið væri að nákvæmri útfærslu aðgerð­anna í ráðu­neyt­inu í sam­starfi við sótt­varna­lækni og að þær ættu að liggja ljósar fyrir á morgun og taka gildi eftir helgi.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir skil­aði minn­is­blaði með til­lögum sínum til heil­brigð­is­ráð­herra í gær og sagði einnig á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna að það væri ekki mikið rúm fyrir til­slak­anir næstu vik­urnar, en þó þyrfti að skýra ýmis til­mæli sem almenn­ingur hefur fengið betur.

Guð­mundur Ingi sagði við Vísi að það væri full sam­staða innan rík­is­stjórn­ar­innar um að halda hertum aðgerðum til streitu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár