Bandaríkin opna sendiráðið á Kúbu aftur eftir 54 ára lokun

Barack Obama, Banda­ríkja­for­seti, sagði á blaða­manna­fundi í Hvíta hús­inu í Washington í dag að Banda­ríkin hyggð­ust end­ur­nýja diplómat­ísk sam­skipti við stjórn­völd á Kúbu síðar í sumar. Banda­ríski fán­inn mun því blakta í Havana í fyrsta sinn síðan 1961. Reuters-frétta­stofan greinir frá.

Sendi­ráði Banda­ríkj­anna í Havana var lokað fyrir rúm­lega 54 árum en hafði þá aðeins starfað í 62 ár. Um leið var form­legum stjórn­mála­sam­skiptum milli land­anna slitið. Banda­ríkin hafa síðan 1977 rekið sendi­skrif­stofu í hús­næði sviss­neska sendi­ráðs­ins.

„Fyrir ári síðan þótti það lang­sótt að Banda­ríkin gætu ein­hvern­tíma híft fána okkar að húni í Havana,“ sagði Obma í Hvíta hús­inu í morgun. „Þetta er sögu­legt skref framá­við að mark­miði okkar um að gera sam­skipti okkar við Kúbu eðli­legri.“

Banda­ríkja­þing hefur enn ekki sam­þykkt til­lögur Obama um að aflétta við­skipta­bann­inu á Kúbu og for­set­inn nýtti tæki­færði og brýndi fyrir þing­inu að gera það sem fyrst. Hann sagði jafn­framt að þrátt fyrir form­leg sam­skipti myndu stjórn­völd í Washington ekki hætta að minna Kúbverja á mann­rétt­inda­brot þeirra.

Stjórn­völd á Kúbu hafa hins vegar farið fram á það við stjórn Obama að banda­ríski her­inn skili land­inu við Guant­anamo-flóa þar sem her­inn rekur her­stöð og fanga­búðir. Þá óskaði Kúbu­stjórn eftir því í dag, mið­viku­dag, að Banda­ríkin hætti sjón­varps- og útvarps­út­send­ingum sínum á Kúbu sem þeir segja vera í áróð­urs­skyni.

[caption id="" align="alignnone" width="997"] Stjórn­mála­sam­bandi við Kúbu var slitið árið 1961 þegar Kúbu­deilan stóð sem hæst og bar­átta Banda­ríkj­anna og Johns F. Kennedy, Banda­ríkja­for­seta, gegn komm­ún­isma var í algleym­ingi.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár