Lilja og Svandís vinna saman að bætti sálfræðiþjónustu í framhaldsskólum

Nýjar tölur um brott­fall úr fram­halds­skóla þykja „svaka­legar“.

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, og Svandís Svav­ars­dóttir, heil­brigð­is­ráð­herra, hafa þegar fundað um það hvernig megi bæta sál­fræð­is­þjón­ustu í fram­halds­skólum.

Nýjar tölur sýna mikið brott­fall úr fram­halds­skóla vegna and­legra veik­inda nem­enda.

Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Haft er eftir Davíð Snæ Jónssyni, for­manni Sambands íslenskra fram­halds­skóla, að nýjar tölur um brott­fall nem­enda séu svaka­legar. „Við sjáum að töl­urnar eru svaka­legar. 141 sem hættir í námi vegna and­legra veik­inda,“ segir Davíð Snær og vísar í nýja skýrslu Mennta­mála­stofn­unar um brott­hvarf í fram­halds­skólum.

Talan sem Davíð vísar til nær yfir síð­ustu haustönn en í heild­ina hættu rúm­lega 750 nem­endur í fram­halds­skóla í haust, að því er fram kemur í Frétta­blað­inu.

SÍF stendur um þessar mundir fyrir her­ferð á sam­fé­lags­miðlum og reynir þannig að þrýsta á stjórn­völd um að boðið verði upp á gjald­frjálsa sál­fræði­þjón­ustu í fram­halds­skólum.

Davíð segir í sam­tali við Frétta­blaðið þátt­tök­una hafa sýnt að and­legi þátt­ur­inn sé mik­il­vægur, en alþjóð­legar mæl­ingar hafa sýnt að Ísland er eft­ir­bátur flestra þjóða í Evrópu, þegar kemur að brott­falli úr fram­halds­skóla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár