Mikill munur á viðhorfi Íslendinga til innflytjenda eftir uppruna þeirra

Mikill munur er á stuðn­ingi Íslend­inga við komu inn­flytj­enda til lands­ins eftir því hvaðan inn­flytj­end­urnir koma. Mestur stuðn­ingur er við komu inn­flytj­enda frá Norður- og Vestur-Evrópu en minnstur stuðn­ingur við komu fólks frá Mið-Aust­ur­löndum. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu.

72 pró­sent svar­enda sögð­ust vera hlynntir því að inn­flytj­endur frá Vestur- og Norður-Evrópu sett­ust að á Íslandi. Aðeins fimm pró­sent voru mót­fallin því en 24 pró­sent svör­uðu "í með­al­lagi".


66 pró­sent svar­enda sögð­ust hlynntir því að fá inn­flytj­endur frá Norður-Ameríku og 59 pró­sent frá Eyjaálfu. 58 pró­sent sögð­ust hlynnt inn­flytj­endum frá Suður-Evrópu og 52 pró­sent frá Austur-Evrópu. 51 pró­sent aðspurðra segj­ast hlynnt komu inn­flytj­enda frá Mið- og Suður-Ameríku.

Andstaða við komu inn­flytj­enda frá öllum þessum svæðum til Íslands mæld­ist innan við 20 pró­sent.

Innan við helm­ingur, eða 48 pró­sent, sagð­ist hlynntur því að inn­flytj­endur frá Asíu utan Mið-Aust­ur­landa komi hingað til lands, en jafn­framt eru 22 pró­sent mót­fallin því að inn­flytj­endur þaðan setj­ist hér að. 45 pró­sent eru eru hlynnt inn­flytj­endum frá Afríku en 26 pró­sent mót­fallin.

Minnstur stuðn­ingur mælist við að inn­flytj­endur frá Mið-Aust­ur­löndum setj­ist að á Íslandi, eða 43 pró­sent. Jafn­framt er mest and­staða við það, eða 34 pró­sent.

Mikill munur eftir aldri, búsetu og menntun


Í öllum til­vikum er ungt fólk undir 35 ára aldri hlynnt­ara því að inn­flytj­endur setj­ist að hér á landi. Þá eru íbúar Reykja­víkur hlynnt­ari inn­flytj­endum en íbúar á lands­byggð­inni auk þess sem þeim sem eru hlynntir inn­flytj­endum fjölgar með meiri menntun.

Minnsti stuðn­ing­ur­inn við komu inn­flytj­enda var alltaf meðal kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins. Yfir­leitt voru kjós­endur Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna hlynnt­astir komu inn­flytj­enda til lands­ins, auk stuðn­ings­manna Pírata í mörgum til­vikum. Oft var einnig mark­tækur munur á svörum kvenna og karla, og þá voru konur hlynnt­ari því að inn­flytj­endur sett­ust hér að en karlar.

Könnun Maskínu fór fram dag­ana 4. til 15. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Hún var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu sem er byggð á slembi­úr­taki úr Þjóðskrá og nær til fólks af báðum kynjum á aldr­inum 18 til 75 ára. Svar­endur voru 747 og eru gögnin vigtuð með til­liti til kyns, ald­urs og búsetu í sam­ræmi við hvernig þeir þættir skipt­ast í þjóð­skrá.

Könnuðu líka stuðning við flóttamenn


Maskína kann­aði í sömu könnun við­horf til mót­töku flótta­manna hér á landi. 57 pró­sent aðspurðra voru hlynntir því að tekið yrði á móti flótta­mönnum frá Sýrlandi á næstu mán­uðum en 22 pró­sent sögð­ust því and­víg.

Samkvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar eru konur mun hlynnt­ari því en karlar að taka á móti flótta­mönnum frá Sýrlandi, yngri svar­endur eru mun hlynnt­ari því en þeir sem eldri eru, Reyk­vík­ingar eru mun hlynnt­ari því en aðrir, þeir sem hafa lokið háskóla­prófi eru hlynnt­ari því en þeir sem hafa styttri skóla­göngu að baki og þeir sem hafa litlar eða engar áhyggjur af fjölda inn­flytj­enda á Íslandi eru hlynnt­ari mót­töku flótta­fólks en þeir sem hafa ein­hverjar áhyggjur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár