SÁÁ sagðist vanta 450 milljónir til að þjónusta verði ekki skert 2023 en fær 120 milljónir

Í fjár­laga­frum­varp­inu átti að skerða fram­lög til SÁÁ um 98 millj­ónir króna. Í umsögn sam­tak­anna kom fram að það myndi fela í sér að 270 færri gætu lagst inn á Vog og minnst 160 sjúk­lingar myndu ekki fá lyfja­með­ferð á göngu­deild við ópíóða­fíkn.

Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður SÁÁ, skrifaði undir umsögn samtakanna í haust.
Anna Hildur Guð­munds­dóttir, for­maður SÁÁ, skrif­aði undir umsögn sam­tak­anna í haust. Mynd: Samsett

Í breyt­ing­ar­til­lögum meiri­hluta fjár­laga­nefndar, sem sam­anstendur af nefnd­ar­mönnum stjórn­ar­flokk­anna, er lagt til að SÁÁ fái 120 milljón króna tíma­bundið við­bótar fram­lag til almenns rekst­urs á árinu 2023.

Það dugar ekki til að við­halda þeim rekstri sem stund­aður er á með­ferð­ar­sviði SÁÁ miðað við umsögn sam­tak­anna um fjár­laga­frum­varpið sem lögð var fram í haust. Þar kom fram að halla­rekstur á rekstr­inum verði 450 millj­ónir króna á næsta ári, 100 millj­ónum meiri en áætlað er í ár, miðað við þá áætluð fram­lög frá hinu opin­bera. Þær 120 millj­ónir króna sem bæta á við skilja enn eftir 330 millj­óna króna halla­rekstur hjá SÁÁ á næsta ári miðað við þessar for­sendur.

Í fjár­laga­frum­varp­inu kom fram að fjár­fram­lög til SÁÁ, sem sinna stærstum hluta fíkni­með­ferða á Íslandi, áttu að lækka um 98 millj­ónir króna milli ára og verða 1.331 millj­ónir króna á árinu 2023. Samkvæmt fjár­mála­á­ætlun á jafn há upp­hæð að renna til sam­tak­anna úr rík­is­sjóði á árunum 2024 og 2025.

Með­ferð­ar­svið SÁÁ hefur áður óskað eftir leið­rétt­ingu á rekstr­ar­grunni samn­ingu um heil­brigð­is­þjón­ustu sem með­ferð­ar­svið SÁÁ sinn­ir. Í umsögn SÁÁ um fjár­laga­frum­varpið í haust sagði að rekstr­ar­grunn­ur­inn væri nú þegar van­fjár­magn­aður um 300 millj­ónir króna. Hallinn stefndi í að verða 350 millj­ónir króna fyrir árið í ár og 450 millj­ónir króna á næsta ári.

[adspot]Í umsögn­inni, sem Anna Hildur Guð­munds­dóttir for­maður SÁÁ, skrif­aði undir, sagði að ef ekk­ert myndi breyt­ast gæti „slíkur halli ekki annað en leitt til umfangs­mik­illar skerð­ingar á þjón­ust­u.“

160 sjúklingar myndu ekki fá meðferð við ópíópafíkn

Skerð­ingar á þjón­ustu myndi, miðað við þá fjár­muni sem áttu að renna til SÁÁ sam­kvæmt upp­haf­legu fjár­laga­frum­varpi, meðal ann­ars fel­ast í 270 færri inn­lögnum á Sjúkra­húsið Vog og minnst 160 sjúk­lingar myndu ekki fá lyfja­með­ferð á göngu­deild við ópíóða­fíkn. Núgild­andi samn­ingur um lyfja­með­ferð við ópíóíða­fíkn er tak­mark­aður við 90 ein­stak­linga og í umsögn­inni sagði SÁÁ nauð­syn­legt að bregð­ast við með­ferð­ar­þörf­inni sem telur um 250 ein­stak­linga.

Yfir 200 manns voru í haust í gagn­reyndri lyfja­með­ferð við ópíóða­fíkn, með­ferð sem dregur úr fíkn og frá­hvörfum og er lífs­bjarg­andi fyrir alvar­legri ópíóða­fíkn, að því er fram kom í við­tali við Val­gerði Rún­ars­dótt­ur, for­stjóra Vogs og fram­kvæmda­stjóra lækn­inga, í Lækna­blað­inu í októ­ber.

Sumarlokanir mögulegar

Í umsögn SÁÁ í haust sagði að skerð­ingin myndi einnig leiða til sum­ar­lokanna að nýju. Síð­ast­liðið sumar voru 2.800 komur á göngu­deild í 14 mis­mun­andi með­ferð­ar­úr­ræði auk 752 við­tala. Auk þess fengu 193 inniliggj­andi sál­fé­lags­lega með­ferð á Vík en sér­stak­lega var safnað fyrir því að geta haldið með­ferð­ar­stöð­inni í Vík opinni í sumar til að tryggja með­ferð­ar­sam­fellu út árið.

Heils­árs opnun göngu­deildar í ár byggir einnig á sér­stakri fjár­öflun þar sem núgild­andi samn­ingar duga ekki til þess. Göngu­deildin er fyrsti við­komu­staður í með­ferð við fíkni­sjúk­dómum og þar er boðið upp á sam­bæri­lega með­ferð og fram fer á Vogi fyrir þá sem hent­ar.

Efl­ing göngu­deild­ar­þjón­ustu er hluti af aðgerðum sem SÁÁ hefur gripið til í þeim til­gangi að vernda núver­andi þjón­ustu og mæta sívax­andi þjón­ustu­þörf með fíkni­sjúk­dóm. Í umsögn SÁÁ sagði að þróa þurfi úrræði sem miða að því að mæta betur þörfum ein­stak­linga eftir fyrsta mánuð í með­ferð. Einnig er mik­il­vægt að hægt sé að sinna fjöl­breytt­ari þjón­ustu í göngu­deild sem stuðlar að betri geð­heilsu og heild­rænum bakslags­vörnum með fjöl­breyttu teymi heil­brigð­is­starfs­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár