Staða forstjóra Samgöngustofu verður auglýst til umsóknar

Samgöngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra hefur til­kynnt for­stjóra Sam­göngu­stofu að staða hans verði aug­lýst til umsóknar. Þórólfur Árnason hefur gegnt stöðu for­stjóra Sam­göngu­stofu síðan ágúst 2014 og fer fimm ára skip­un­ar­tíma hans því senn að ljúka.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, mun auglýsa stöðu forstjóra Samgöngustofu lausa til umsóknar á næstunni. Þórólfur Árnason, forstjóri Samgöngustofu, staðfesti það í svari við fyrirspurn Kjarnans. Þórólfur hefur gegnt starfinu síðan í byrjun ágúst árið 2014 en sam­kvæmt lögum um rétt­indi og skyldur opin­berra starfs­manna skulu þeir skip­aðir tíma­bundið til fimm ára í senn og því fer skipunartíma Þórólfs senn að ljúka.

Opinberir starfsmenn skipaðir í fimm ár í senn

Ævi­ráðn­ingar í stjórn­sýsl­unni voru afnumdar með nýjum lögum um rétt­indi og skyldur opin­berra starfs­manna sem tók gildi um mitt ár 1996. Í 23. grein lag­anna segir að emb­ætt­is­menn séu skip­aðir í fimm ár í senn. Til­kynna þarf þeim sem situr í við­kom­andi emb­ætti um að til standi að aug­lýsa það laust til umsóknar sex mán­uðum áður en að skip­ana­tími rennur út. Ef ráð­herra til­kynnir ekki emb­ætt­is­manni um að staðan verði aug­lýst innan ofan­greinds tíma­frests þá fram­leng­ist skip­ana­tími þeirra sjálf­krafa í önnur fimm ár, nema þeir óski eftir að láta af störf­um.

Samgöngustofa heyrir undir samgöngu - og sveitastjórnarráðuneytið og samkvæmt Þórólfi, forstjóra Samgöngu, hefur Sigurður Ingi upplýst hann um að ákveðið hafi verið að aug­lýsa stöð­una lausa til umsóknar. Sitj­andi for­stjóri þarf því að sækja um stöðuna vilji hann gegna starf­inu áfram. Samgöngustofa fer með stjórnsýslu samgöngumála hér á landi og annast eftirlit er varðar flug, siglingar, umferð og öryggiseftirlit með samgönguvirkjum.

Túristi greindi frá því í dag að ekki fengust svör frá Ingveldi Sæmundsdóttur, aðstoðarkonu Sigurður Inga Jóhannssonar, samgönguráðherra, hvort staðan verði auglýst eða hvort Þórólfur verði sjálfkrafa skipaður forstjóri á ný til ársins 2024.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár