Unglingsstúlkur upplifa helst þvinganir í samskiptum á netinu

Tæpur fjórð­ungur ung­lings­stúlkna á aldr­inum 15-17 ára sögð­ust hafa upp­lifað þving­anir um að senda myndir eða aðrar per­sónu­legar upp­lýs­ingar yfir netið, sam­kvæmt könnun fjöl­miðla­nefndar.

Að upplifa þvingun varðandi það að senda myndir eða aðrar persónulegar upplýsingar yfir netið er helst bundið við yngstu aldurshópana, samkvæmt nýrri könnun fjölmiðlanefndar.
Að upp­lifa þvingun varð­andi það að senda myndir eða aðrar per­sónu­legar upp­lýs­ingar yfir netið er helst bundið við yngstu ald­urs­hópana, sam­kvæmt nýrri könnun fjöl­miðla­nefndar. Mynd: Bára Huld Beck

Tæpur fjórð­ungur ung­lings­stúlkna á aldr­inum 15-17 ára seg­ist nýlega hafa upp­lifað að vera þving­aðar til þess að senda myndir af sér eða aðrar per­sónu­legar upp­lýs­ingar yfir netið. Samkvæmt spurn­inga­könnun sem fjöl­miðla­nefnd lagði fyrir í febr­úar og mars á þessu ári höfðu 23,9 pró­sent stúlkna á þessum aldri upp­lifað slíkt á síð­ustu 12 mán­uðum þar á undan.

Þetta er á meðal nið­ur­staðna í nýrri skýrslu sem fjöl­miðla­nefnd hefur unnið um nið­ur­stöður könn­un­ar­innar og varpar ljósi á „óvið­un­andi ástand“ og sýnir „grafal­var­lega mynd af því umhverfi sem ungt fólk og þá sér­stak­lega ungar konur búa við á net­inu í dag,“ að mati Skúla Braga Geirdal, sem er verk­efna­stjóri miðla­læsis hjá fjöl­miðla­nefnd.

Í skýrslu fjöl­miðla­nefndar segir að 6,3 pró­sent ung­lings­stráka á aldr­inum 15-17 ára hafi að sama skapi upp­lifað þvingun um að senda af sér myndir eða aðrar per­sónu­legar upp­lýs­ingar yfir netið, en ein­ungis 0,6 pró­sent allra þeirra sem voru 18 ára og eldri.

Að upp­lifa þvingun í þessu til­liti var því helst bundið við yngstu ald­urs­hópana.

Hið sama átti við um það að hafa lent í því að upp­lifa að myndum eða mynd­skeiðum af við­kom­andi á netið í óþökk þeirra, en 17,9 pró­sent ung­lings­stúlkna á aldr­inum 15-17 ára hafði lent í því og 13,8 pró­sent 15-17 ára stráka. Meðaltal í öðrum ald­urs­hópum, 18 ára og eldri, var tvö pró­sent.

Yfir 20 prósent hættu að taka þátt í umræðum á netinu eftir háðung eða ögrun

Í skýrslu fjöl­miðla­nefndar kemur einnig fram að sam­kvæmt könn­un­inni hafi þriðj­ungur Íslend­inga upp­lifað að lend í netsvindli, þar sem reynt var að hafa af þeim fé. Þá hafði tæpur fjórð­ungur upp­lifað hat­urs­full ummæli í umræðum á net­inu og 11,5 pró­sent sögð­ust hafa upp­lifað að ein­hver hefði hæðst að þeim eða ögrað í umræðum á net­inu.

[adspot]

Þeir sem höfðu upp­lifað ögrun eða háð­ung á net­inu voru spurðir hvort það hefði haft áhrif á þátt­töku þeirra í umræðum.

Einungis 27 pró­sent sögðu að það hefði ekki haft nein áhrif á þá, en helm­ingur aðspurðra sögðu að þeir væru orðnir var­kár­ari við að lýsa skoðun sinni í umræðum á net­inu.

Tæp 33 pró­sent sögð­ust hafa brugð­ist við með því að taka frekar þátt í umræðum í lok­uðum hópum og 20,6 pró­sent sögðu við­bragðið hafa verið það að hætta að taka þátt í umræðum á net­inu.

Rúm 15 pró­sent þeirra sem höfðu orðið fyrir ögrun sögð­ust hins vegar hafa brugð­ist við með því að ræða frekar við fólk sem væri sam­mála þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár