Fylgdarlaus börn og konur í viðkvæmri stöðu

Börn og ung­menni, sem flýja ofbeldi, skipu­lagða glæp­a­starf­semi og fátækt í Mið-Ameríku, eiga á mik­illi hættu að fest­ast í víta­hring flótta og brott­vís­ana, sam­kvæmt nýrri skýrslu UNICEF.

Fjölskyldumeðlimir í Guatemala bíða eftir börnum sem vísað var burt frá Mexíkó
Fjöl­skyldu­með­limir í Guatemala bíða eftir börnum sem vísað var burt frá Mexíkó Mynd: UNICEF

Börn og ung­menni, sem flýja ofbeldi, skipu­lagða glæp­a­starf­semi og fátækt í Mið-Ameríku, eiga á mik­illi hættu að fest­ast í víta­hring flótta og brott­vís­ana. Þar eru fylgd­ar­laus börn og konur í hvað við­kvæm­astri stöðu og eiga á veru­legri hættu á að verða fyrir ofbeldi og mis­notkun, seld man­sali eða jafn­vel drepin á leið sinni.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um börn og ung­menni á flótta og far­alds­fæti frá Mið-Ameríku og Mexíkó sem kom út í dag á vegum UNICEF, Barna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Jafn­framt kemur fram að ofbeldi, glæpir og gengja­stríð, fátækt og skortur á tæki­færum til mennt­unar séu helstu ástæður þess að börn og fjöl­skyldur í Mið-Ameríku, sem sam­anstendur af El Salvador, Gvatemala og Hondúras, og Mexíkó leggi af stað í hættu­legt ferða­lag í leit að betra lífi, yfir­leitt með stefn­una á Banda­ríkin. Mörg þeirra hafi borgað smygl­urum í upp­hafi ferð­ar­innar, standa í mik­illi skuld, og séu lík­legri til að upp­lifa enn meiri fátækt, ofbeldi, hót­anir og félags­lega ein­angrun ef þeim er vísað aftur til heima­lands síns.

Strangara landamæraeftirlit gerir illt verra

Marita Perceval, svæð­is­stjóri UNICEF fyrir Mið-Ameríku og Karí­ba­haf, segir að millj­ónir barna á svæð­inu séu sér­lega við­kvæm sökum fátæktar, mis­mun­unar, ofbeldis og ótta við brott­vís­anir. Í mörgum til­vikum eigi börnin, sem send eru aftur til upp­runa­lands­ins, ekk­ert heim­ili til að snúa aftur til, séu með miklar skuldir á bak­inu eða verði skot­mörk glæpa­gengja. „Að senda þau aftur í svo ómögu­lega stöðu gerir það enn lík­legra að þau legg­ist á flótta á ný,“ segir hún.

---

„Strang­ara landamæra­eft­ir­lit kemur í raun ekki í veg fyrir það að börn og fjöl­skyldur í við­kvæmri stöðu freisti þess að kom­ast yfir landa­mærin, en eykur þess í stað óþarfa þján­ingu fólks á flótta. Barn er fyrst og fremst barn, hverjar svo sem aðstæður hans eða hennar eru. Það þarf að ráð­ast að rót vand­ans og tryggja um leið öryggi barn­anna á ferð sinni,“ segir Berg­steinn Jónsson, fram­kvæmda­stjóri UNICEF á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár