Breytt heimsmynd

Ákvörðun Breta um að ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu er mikil heim­spóli­tísk tíð­indi. Fjár­festar hafa brugð­ist við tíð­ind­unum með nei­kvæðum hætti. Óvissan um hvað sé framundan er algjör.

„Hvað eru Bretar að hugsa?“ sagði einn pabb­inn, þegar við feðgar vorum að koma í skól­ann í morgun, við 109. stræti, milli Broadway og Amster­dam, vest­an­megin á Man­hattan. Nemendur í skól­anum þar koma frá yfir 90 löndum. Skóla­sam­fé­lagið í PS 165 er því eins og þver­skurður af alþjóða­væddum heimi.

Pabbinn, sem sjálfur kemur frá Egypta­landi, var að velta fyrir sér nið­ur­stöð­unni úr Brexit-kosn­ing­unum svo­nefndu, en eins og kunn­ugt er, og fjallað hefur verið um ítar­lega í dag á vef Kjarnans og ann­ars staðar, þá kusu Bretar gegn áfram­hald­andi veru í Evr­ópu­sam­band­inu (ESB) í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Leið­togar ESB hafa þrýst á Breta um að flýta form­legri útgöngu og eyða óvissu um hvernig staðið verður að því. David Cameron, for­sæt­is­ráð­herra, hefur þegar til­kynnt um afsögn sína.

„Ég fæ í mag­ann. Sáu þið töl­urnar frá mörk­uð­unum í morgun?“ sagði annar pabb­inn, þegar við gengum til baka frá stof­unni þar sem börnin hitt­ast í Pre-K. Sá kemur frá Hollandi, og hefur oft í vetur minnst á það, hversu slæmt er að finna fyrir upp­gangi for­dóma, bæði í Evrópu og Banda­ríkj­unum. Honum finnst þetta sýni­legra, en áður. Hann er ekki einn um það.

Sögulegir tímar

Stutt sam­töl sem þessi, hafa örugg­lega verið mörg hjá fólki víða um heim í dag. Hvað þýðir Brexit fyrir póli­tísk lands­lag í heim­inum, og þar með talið Ísland? Engin skýr svör liggja fyrir, en sé mið tekið af fyrstu við­brögðum á fjár­magns­mörk­uðum, hér í hjarta hinnar kapa­tal­ísku ver­aldar í New York, þá virð­ist sem nið­ur­staðan í kosn­ing­unum hafi komið mörgum fjár­festum á óvart. Það er eitt að vita af mögu­leik­anum, en annað að reikna með því í fjár­fest­ingum. Strax við opnun fyrstu mark­aða var ljóst að það stefndi í svartan föstu­dag. Í Asíu opn­uðu mark­aðir með bólgnum rauðum tölum lækk­unar. Nikkei vístalan í Japan féll um 7,8 pró­sent, og hluta­bréf skráð í kaup­höll­inni í Shanghai féllu um þrjú pró­sent. Þá var aug­ljóst á fyrstu merkjum frá mark­aðnum, að fjár­munir voru að fær­ast hratt yfir í banda­rísk rík­is­skulda­bréf og gull, að því er fram kom í morg­un­pósti Bloomberg í morgun.



Á Íslandi sást þetta meðal ann­ars á því, að gengi punds­ins veikt­ist um 6,16 pró­sent gagn­vart krón­unni, og kost­aði pundið tæp­lega 170 krónur eftir lokun mark­aða. Á sama tíma styrkt­ist gengi Banda­ríkja­dals gagn­vart krón­unni um 1,9 pró­sent, og kost­aði dal­ur­inn um 125 krónur við lokun.

Mikil áhrif, en hvaða áhrif?

Fleira mætti telja til, sem sýnir glögg­lega við­brögð fjár­festa við þessum tíð­indum. Þannig lækk­aði verð á hrá­olíu í verði um tæp­lega fimm pró­sent. Tunnan kostar nú 48 Banda­ríkja­dali á mark­aði í Banda­ríkjum. Hluta­bréf hafa fallið mikið í verði um nær allan heim. Hluta­bréf í bönkum hafa lækkað enn meira, eða um allt að 30 pró­sent. Mesta lækk­unin var hjá Royal Bank of Scotland, sem breska ríkið á meiri­hluta í, og Barclays, en þessi bresku bankar lækk­uðu um ríf­lega 20 pró­sent að mark­aðsvirði í dag.

Aðeins á dög­unum æsi­legu, haustið 2008, hafa sést við­líka tölur á mörk­uðum. Í Þýska­landi hafa hluta­bréf fallið um tæp­lega sjö pró­sent og vísi­tala Nasdaq í Banda­ríkj­unum hefur fallið um þrjú pró­sent, sem telst mikil dags­lækkun.

Van­traustið, sem fjár­festar sýna breskum mark­aði, er því algjört í dag, og það sem verra er þá virð­ast ekki vera nein svör uppi um hvað sé framundan. Ein­hverra hluta vegna, er ekk­ert plan um hvernig standa skuli að útleið Bret­lands úr ESB. Hvað þýðir þetta fram­vegis fyrir atvinnu­frelsi, frjálsa för fólks og sam­eig­in­lega rann­sókn­ar­starf ESB-landa? Svörin við þessu eru engin, enn sem komið er, en aðlög­un­ar­tími að þessi ákvörðun er tvö ár sam­kvæmt lögum og reglum ESB.

Talar fyrir samvinnu

Frá póli­tíska svið­inu héðan í Banda­ríkj­unum, óma ólíkar raddir, þegar Brexit-nið­ur­staðan er ann­ars vegar. Á sama tíma og Donald J. Trump, sem allt stefnir í að verði full­trúi Repúblik­ana í for­seta­kosn­ing­unum í nóv­em­ber, fagnar nið­ur­stöð­unni – meira að segja í Bret­landi – þá hefur Barack Obama, Banda­ríkja­for­seti, talað fyrir mik­il­vægi þess að Evrópa sé í nánu póli­tísku sam­starfi og að Bretland sé hluti af ESB. Þetta hefur hann raunar marg­ít­rekað, og gerði sér sér­stak­lega far um að fara til Bret­lands og ítreka þessa skoðun sína, í aðdrag­anda kosn­ing­anna. En það hafði ekki áhrif, frekar en varn­að­ar­orð fjöl­margra ann­arra þjóð­ar­leið­toga og tals­manna alþjóða­sam­starfs. Ein þeirra sem eyddi púðri í að skýra það fyrir umheim­inum, að útganga Breta myndi hafa mikil alþjóða­póli­tísk og efna­hags­leg áhrif, var Christine Lagarde, fram­kvæmd­stjóri Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins. Hún og allir aðrir, sem tjáðu sig í aðdrag­anda kosn­ing­anna, eiga það sam­eig­in­legt að geta ekki svarað því með neinni vissu hver áhrifin verða til lengri tíma, á efna­hag Breta.

Einangrunarhagkerfið?

Breska hag­kerfið er ólíkt flestum öðrum ESB-ríkjum að því leyti að það er með breska pundið og sjálf­stæðan seðla­banka, Eng­lands­banka, sem bak­bein, ef svo má að orði kom­ast. Evran er ekki gjald­mið­ill þess, og í því liggur mik­ill munur, sé mið tekið af efna­hag ríkja eins og Þýska­lands, Frakk­lands og Ítalíu. Úrsögn Bret­lands mun hins vegar aug­ljós­lega veikja efna­hags­lega umgjörð á Evr­ópu­sam­bands­svæð­inu, að mati álit­gjafa helstu álits­gjafa hér vestra. Meðal ann­ars þess vegna virð­ast stærstu fjár­mála­fyr­ir­tæki Banda­ríkj­anna hafa verið búin að búa sig undir mögu­lega úrsagn­ar­nið­ur­stöðu. Þannig bár­ust fréttir af því í dag að Morgan Stanley væri þegar far­inn að und­ir­búa flutn­ing á starf­semi, sem væri með tvö þús­und störf undir, til Frank­furt og Dublin.

Staða efna­hags­mála í Bret­landi hefur farið batn­andi und­an­farin miss­eri. Atvinnu­leysi er um fimm pró­sent, en hag­vöxtur hefur verið lít­ill, eins og er víð­tækt vanda­mál í allri Evrópu.

Eitt af því sem Brexit-nið­ur­staðan sýnir glögg­lega er mik­ill skoð­ana­munur ungra og gam­alla kjól­senda. Þannig vildu 73 pró­sent þeirra sem eru í yngsta kjós­enda­hópnum, 18 til 24 ára, að Bretland yrði áfram í ESB, en 60 pró­sent 45 ára og eldri vildu að Bretland færi úr sam­band­inu.

Bretland er þjón­ustu­stór­veldi, sem hag­kerfi, en um 78 pró­sent af störfum í land­inu eru tengd þjón­ustu af ýmsum toga. Í höf­uð­borg­inni London hefur fjár­mála­þjón­usta – í City hverf­inu svo­nefnda – vaxið hratt á und­an­förnum árum, en blikur eru nú á lofti, þar sem stærstu fjá­mála­stofn­anir heims­ins þurfa að spyrja sig að því, hvort sé rétt að stýra starf­semi frá landi sem hefur valið að ein­angra sig póli­tískt frá innri mark­aði Evrópu. Svo virð­ist sem Morgan Stanley hafi svarað þessu neit­andi, en ekki er víst að allir geri það. Með útgöngu Bret­lands fer þriðja fjöl­menn­asta ríki ESB úr sam­band­inu, og þar með 65 millj­ónir manna. Þýska­land er fjöl­menn­ast með 81 milljón íbúa og Frakk­land er álíka stórt og Bretland, með 66 millj­ónir. Ítalía er með tæp­lega 61 milljón íbúa. Þessi ríki hafa verið hryggjar­stykkið í Evr­ópu­sam­band­inu ára­tugum saman, og úrsögn Bret­lands er ein­stök og sögu­leg, á nán­ast alla mæli­kvarða.

Vita það ekki sjálfir

Pabbinn frá Egypta­landi spurði í morgun, hvað Bretar væru að hugsa, og þó hann hafi gert þetta á hlaupum, þá er þetta lyk­il­spurn­ing, sem þeir virð­ast ekki vera með svarið við sjálfir. Í það minnsta ekki strax. Staða Banda­ríkj­anna, sem efna­hags­veldis, gæti styrkst við þetta, en það gæti verið á kostnað póli­tískrar sam­vinnu, þvert á landa­mæri. Það eru svörin sem flestir álits­gjafar hafa komið með fram í umræð­una, á þessum örlaga­ríka degi.

Hvað Ísland varðar, eru miklir hags­munir í húfi. Um 19 pró­sent erlendra ferða­manna koma frá Bret­landi, og hefur vöxt­ur­inn í ferðum þaðan verið með ólík­indum síð­ustu ár. Þá seljum við vörur og þjón­ustu fyrir um 120 millj­arða á ári til Bret­lands, og flytjum inn vörur og þjón­ustu fyrir um 90 millj­arða. Við­skipta­sam­bandið er sterkt og byggir á ára­tuga­sögu, ekki síst þegar kemur að við­skiptum með þorsk. Þessa hags­muni þurfa íslensk stjórn­völd að leggj­ast yfir, og reyna að finna leiðir til að verja þá, og hugs­an­lega nýta tæki­færi sem geta falist í því að Bretar hafi valið að standa utan ESB eins og Ísland, Noregur og Sviss gera. Ein­hvers­konar hags­muna­banda­lag ríkja, sem eru utan ESB, gæti orðið sterkara við þetta, þó erfitt sé að segja til um það. Innviðir Bret­lands gætu líka tekið breyt­ingum, einkum ef Skotland end­ur­metur stöðu sína og stendur sjálf­stætt eftir.

Margir fá vafa­lítið „í mag­ann“, eins og hol­lenski pabb­inn, en nú mun reyna á að ný rík­is­stjórn í Bret­landi, sem tekur við stjórn­ar­taumunum á næstu mán­uðum, leiði landið inn í nýjan veru­leika sem í augna­blik­inu er hul­inn óvissu­skýi. Heims­myndin er breytt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár