Dularfull dauðsföll auðmanna sem tengdust Pútín

Einn féll út um glugga. Annar lést í með­ferð hjá græð­ara. Sá þriðji (og reyndar sjá fjórði líka) fannst hengdur. Sá fimmti á að hafa stungið fjöl­skyld­una og svo sjálfan sig. Und­ar­legar kring­um­stæður hafa ein­kennt and­lát þekktra Rússa und­an­farið.

Rúss­neskir vald­hafar hafa í gegnum tíð­ina verið sak­aðir af vest­ur­veld­unum um van­traust og að þola illa gagn­rýni. Eftir að Vladimír Pútín for­seti lands­ins hóf að und­ir­búa inn­rás í Úkraínu hefur staða þeirra sem áður nutu góðs af fylgi sínu við hann en hafa leyft sér að efast um til­efnið eða ekki stutt hann með ráðum og dáð veikst veru­lega. Og spurn­ingar hafa vaknað um hvort að dauðs­föll auð­manna, svo­nefndra ólíg­arka, síð­ustu mán­uði séu aðeins til­viljun. Þetta er ekki eins­leitur hópur nýlegra gagn­rýnenda Pútíns, svo vitað sé. Sumir voru enn hlið­hollir honum, höfðu að minnsta kosti ekki opin­ber­lega gagn­rýnt hann. En aðrir höfðu sagt, jafn­vel hátt og skýrt og opin­ber­lega, að það væri rangt að ráð­ast inn í Úkraínu.

[adspot]

Þannig var því farið með Ravil Maganov, stjórn­ar­for­mann Lukoil, stærsta olíu- og gas­fyr­ir­tækis Rúss­lands sem ekki er lengur í rík­i­s­eigu. Maganov og aðrir stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins gagn­rýndu inn­rás­ina og kröfð­ust þess opin­ber­lega að endir yrði bund­inn á stríðs­rekst­ur­inn.

Maganov lést í síð­ustu viku. Tvennum sögum fer af and­láti hans. Í yfir­lýs­ingu Lukoil segir að hann hafi lát­ist eftir „alvar­leg veik­indi“ en rík­is­rekna frétta­stofan TASS segir hann hafa fallið út um glugga á sjúkra­húsi í Moskvu. Nánar til­tekið af sjöttu hæð. Því var einnig haldið fram að hann hefði hrasað og fallið er hann ætl­aði að fá sér sígar­ettu. Sígar­ettu­pakki í glugga­kist­unni er sagður styðja þá kenn­ingu. Einnig hefur komið fram að lög­reglan telji að um sjálfs­víg hafi verið að ræða.

Maganov er átt­undi rúss­neski kaup­sýslu­mað­ur­inn sem hefur lát­ist við dul­ar­fullar kring­um­stæður frá því í jan­úar og sjötti valda­mað­ur­inn sem tengd­ist tveimur stærstu orku­fyr­ir­tækjum Rúss­lands, rík­is­fyr­ir­tækið Gazprom, sem miklar spill­ing­ar­sögur fara af, og Lukoil.

Maganov er ekki fyrsti yfir­maður Lukoil sem hefur dáið nýverið með svip­legum hætti. Aleksandr Subbotin, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, fannst lát­inn í kjall­ara húss í úthverfi Moskvu í maí. Fjöl­miðlar sögðu húsið hafa verið í eigu græð­ara sem kall­aði sig Shaman Magua. Magua bauð fólki ein­hvers konar hreins­un­ar­með­feðrir.

Magua, sem heitir réttu nafni Aleksei Pindurin, er sam­kvæmt fjöl­miðlum sagður hafa upp­lýst við skýrslu­tökur að Subbotin hefði verið undir áhrifum fíkni­efna og áfengis er hann kom að heim­ili hans og hefði kraf­ist þess að fá hreins­un­ar­með­ferð við þynnku.

Lög­reglan sagði að Subbotin, sem var millj­arða­mær­ingur og áhrifa­maður mik­ill, hefði lát­ist úr hjarta­bilun.

Í lok jan­úar fannst Leonid Shulman, yfir­maður inn­viða­fjár­fest­inga hjá Gazprom Invest, örendur á bað­her­berg­is­gólfi sveita­set­urs í nágrenni St. Pét­urs­borgar. Rík­is­rekna frétta­stofan RIA sagði lög­regl­una segja að um sjálfs­víg hefði verið að ræða. Bréf hefði fund­ist hjá lík­inu þar sem Shulman er sagður hafa skrifað að þján­ingar vegna meiðsla á fæti hafi orðið honum off­viða. Miklar efa­semdir hafa vaknað um þessar útskýr­ingar og bent hefur verið á að Shulman hafi vegna starfa sinna fyrir Gazprom búið yfir mik­il­vægum upp­lýs­ingum um vafa­sama við­skipta­hætti fyr­ir­tæk­is­ins.

Alex­ander Tyulakov, fjár­mála­stjóri hjá Gazprom, fannst hengdur í bíl­skúr við heim­ili sitt í St. Pét­urs­borg 25. febr­úar, dag­inn eftir að rúss­neskar her­sveitir rudd­ust inn í Úkraínu. Einka­rekna dag­blaðið Novaya Gazeta hafði eftir heim­ild­ar­mönnum innan lög­regl­unnar að örygg­is­sveit á vegum Gazprom hefði mætt á vett­vang á sama tíma og lög­reglan.

Morð og sjálfsvíg

Vla­d­is­lav Avayev, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­for­stjóri Gazprom-banka, stærsta einka­rekna banka Rúss­lands og þriðja stærsta banka lands­ins, fannst lát­inn í apríl í íbúð sinni í Moskvu ásamt eig­in­konu sinni og dóttur. Önnur dóttir Avayev kom að fjöl­skyldu sinni lát­inni. Opin­berir aðilar héldu því fram að hann hefði myrt mæðgurnar og svo tekið eigið líf og sögðu þeirri kenn­ingu til stuðn­ings að byssa hefði fund­ist í hönd Avayev. Um þetta hafa fyrr­ver­andi sam­starfs­menn hann efast og minna á að Avayev hafi áður verið ráð­gjafi Pútíns.

„Hans starf fólst í einka­banka­þjón­ustu sem þýddi að hann átti í sam­skiptum við mjög mik­il­væga við­skipta­vini,“ sagði Igor Volobuev, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­for­stjóri Gazprombank við CNN. „Hann var ábyrgur fyrir gríð­ar­legum pen­inga­fjár­hæðum. Þannig að, drap hann sig? Ég held ekki. Ég held að hann hafi vitað eitt­hvað og þess vegna hafi hann verið ógn.“

Sergei Protos­enya, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri hjá Novatek, stærsta gas­fram­leið­anda Rúss­lands, fannst lát­inn í sum­ar­húsi sínu á Spáni um miðjan apríl. Lík eig­in­konu hans og dóttur voru einnig í hús­inu. Málið er sann­ar­lega óhugn­an­legt því mæðgurnar höfðu verið stungnar til bana og Protos­enya var hengdur.

Rúss­lensk yfir­völd sögð­ust telja að um morð og sjálfs­víg hafi verið að ræða en því hefur sonur hjón­anna og vinir þeirra hafnað og segj­ast telja að morð­vett­vang­ur­inn hafi verið svið­settur.

Lög­reglan í Kata­lóníu er enn að rann­saka dauðs­föllin.

[adspot]

Vladimir Lyakis­hev, eig­andi Bratya Kara­vayevi-veit­inga­húsa­keðj­unnar, fannst lát­inn 4. maí. Rúss­lenski rík­is­fjöl­mið­ill­inn RBC segir að hann hafi lát­ist af skotsári úti á svölum íbúðar sinnar.

Júrí Voronov, stofn­andi og stjórn­ar­for­maður skipa­fé­lags­ins Astra-Shipping, sem er með rík við­skipta­tengsl við Gazprom, fannst lát­inn í sund­laug. Rúss­neskir fjöl­miðlar segja skotsár hafa verið á líki hans og að byssa hafi fund­ist á staðnum.

Við­skipta­jöf­ur­inn Mikhail Watford, sem fæddur var í Úkraínu, fannst lát­inn í Surrey í Bret­landi aðeins nokkrum dögum eftir að Rússar gerðu inn­rás­ina. Hann stund­aði við­skipti með olíu og gas í Rúss­landi og hafði einnig komið sér upp veg­legu fast­eigna­safni í London. Yfirvöld sögðu dán­ar­or­sök vera heng­ingu.

Rannsókn á and­láti hans stendur enn yfir.

Varhugaverðir gluggar

Eftir lát Maganovs fóru líka margir að velta fyrir sér hvers vegna það gerð­ist reglu­lega að rúss­neskir mektar- og emb­ætt­is­menn féllu til bana út um glugga.

Nokkur dæmi:

Í októ­ber í fyrra féll rúss­neskur erind­reki út um glugga á rúss­neska sendi­ráð­inu í Berlín og lést. Þýskum fjöl­miðlum reynd­ist erfitt að kom­ast að því hver hann var en rann­sókn­ar­fjöl­mið­ill­inn Bellingcat taldi að um hefði verið að ræða Kirill Zhalo, son Alexei Zhalo sem var yfir­maður hjá FSB, stofnun sem var að miklu leyti arf­taki leyni­þjón­ust­unnar KGB.

Í des­em­ber í fyrra féll Yegor Prosvirnin, sem stofn­aði þekktar blogg­síður um rúss­nesk stjórn­mál, til bana út um glugga á fjöl­býl­is­húsi í Moskvu. Prosvirnin hafði stutt Pútín í því að inn­lima Krím­skaga árið 2014 en hóf síð­ustu ár að gagn­rýna hann harð­lega og spá því að borg­ara­styrj­öld væri í upp­sigl­ingu í Rúss­landi.

Um miðjan ágúst í ár fannst lík Dan Rapoport fyrir framan lúxus-fjöl­býl­is­hús í Washington-borg. Hann var lett­neskur og banda­rískur rík­is­borg­ari, hafði starfað hjá fyr­ir­tækjum í eigu Rússa og verið fjár­mála­ráð­gjafi í sam­eig­in­legu olíu­verk­efni Rússa og Banda­ríkj­anna í Síberíu.

Rapoport hafði efn­ast gríð­ar­lega og verið í náum tengslum við stjórn­völd í Kremlin en féll úr náð­inni hjá Pútín er hann hóf að styðja stjórn­ar­and­stæð­ing­inn Alexei Navalní.

Lög­reglan í Washington er enn að rann­saka and­lát hans.

Læknar hrapa

Við­skipta­fé­lagi Rapoports lést einnig eftir fall út um glugga á fjöl­býl­is­húsi í Moskvu árið 2017.

Í COVID-far­aldr­inum féllu að minnsta kosti fjórir heil­brigð­is­starfs­menn, þar af þrír læknar, út um glugga í Rúss­landi á stuttu tíma­bili, frá apríl til maí árið 2020. Aðeins einn þeirra lifði af. Stjórn­völd í Rúss­landi héldu þétt að sér spil­unum varð­andi umfang far­ald­urs­ins á þessum tíma en líkt og ann­ars staðar í heim­inum var fyrsta bylgjan mjög skæð og gríð­ar­legt álag á öllu heil­brigð­is­starfs­fólki.

Að end­ingu má nefna and­lát rúss­neska vís­inda­manns­ins Alex­ander Kaganskí í des­em­ber 2020. Á þeim tíma var hann að vinna að þróun bólu­efnis gegn COVID-19. Hann er sagður hafa fallið út um glugga á háhýsi sem hann bjó í í St. Pét­urs­borg. Lög­reglan hélt því fram að hann hefði stungið sjálfan sig og svo stokkið út um glugg­ann.

Að segja frá hvað gengur á í Rúss­landi er ekki ein­falt fyrir þar­lenda blaða­menn. Dæmin sýna að það það getur verið hættu­legt að starfa við það fag að segja fréttir eins og þær eru – fréttir sem stjórn­völd vilja síður að séu sagðar. Nýjasta dæmið er um blaða­mann­inn Ivan Safronov. Hann var nýverið dæmdur til 22 ára vistar í örygg­is­fang­elsi fyrir föð­ur­lands­svik. Hann er sak­aður um að hafa lekið rík­is­leynd­ar­málum en gögnin voru hins vegar dóms­skjöl sem engin leynd hvíldi yfir, segir frétta­rit­ari BBC í Moskvu. Raun­veru­leg ástæða þess að hann var dæmdur í fang­elsi sé aug­ljós: Hann skrif­aði greinar um rúss­neska her­inn. „Þetta er harð­asta refs­ing fyrir land­ráð í nútíma­sögu Rússland,“ sagði í leið­ara eins rús­sensks dag­blaðs. „Ivan myrti engan. Ef hann hefði gert það hefði hann fengið væg­ari dóm.“

Greinin er byggð á fréttum og frétta­skýr­ingum nokk­urra vest­rænna fjöl­miðla: BBC, Reuters, AP, Newsweek o.fl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár