Vill ekki að Ísland missi af tækifærum sem Belti og braut skapi

Jin Zhijian, sendi­herra Kína á Íslandi, segir kín­verska inn­viða- og fjár­fest­inga­verk­efnið Belti og braut geta skapað ný tæki­færi í kín­vers-íslenskri sam­vinnu og aukið verslun á milli land­anna.

Jin Zhijian, sendiherra Kína á Íslandi.
Jin Zhijian, sendi­herra Kína á Íslandi. Mynd: úr safni

Belti og braut getur þjónað sem nýr vett­vangur og veitt kín­versk-íslenskri sam­vinnu ný tæki­færi og myndi þátt­taka Íslands styrkja tengsl á milli land­anna. Hún gæti jafn­framt aukið sam­vinnu í við­skipta­lífi og verslun á milli land­anna tveggja. Þetta segir Jin Zhijian, sendi­herra Kína á Íslandi, í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Innviða- og fjár­vest­inga­verk­efnið Belti og braut (kínv. 一带一路, e. Belt and Road Ini­ti­ative) er verk­efni sem ein­kennt hefur utan­rík­is­stefnu Kína frá árinu 2013 undir stjórn for­seta lands­ins, Xi Jinping. Með Belti og braut er vísað til hinnar fornu Silki­leiðar sem tengdi Kína við umheim­inn og vill Xi Jinping end­ur­vekja hana undir for­merkjum Beltis og brautar. Belti og braut – eða Silki­leið 21. ald­ar­innar – skipt­ist í stuttu máli í svo­kall­aðan silki­veg eða „belti“ á landi, til dæmis í formi lestar­teina og hrað­brauta. Hinn hlut­inn er silki­leið á sjó eða „braut“ – til dæmis í formi hafna sem þar að auki tengir Kína við umheim­inn.

[adspot]Verk­efnið er afar víð­feðmt og nær frá Kína til Evrópu og Austur-Afríku, auk þess sem það nær til fjöl­margra Asíu­ríkja. Að minnsta kosti 68 ríki hafa skrifað undir þátt­töku í verk­efn­inu og saman mynda ríkin um 40 pró­sent lands­fram­leiðslu heims­ins.

Segir íslensk stjórnvöld opin fyrir þátttöku

Jin segir að íslensk stjórn­völd séu opin fyrir þátt­töku í Belti og braut og að með stuðn­ingi Beltis og brautar, AIIB og Silki­vegs­sjóðs­ins gætu Kína og Ísland unnið betur saman með því að byggja tengsla­net á sjó, lofti og á net­inu. Auk þess væri hægt að byggja upp inn­viði fyrir ferða­menn, koma á sigl­inga­leiðum um Silkiveg norð­ur­slóða, beinu flugi og 5G sam­skipta­kerfi.

[links]Íslensk stjórn­völd hafa þó ekki mótað sér end­an­lega afstöðu til verk­efn­is­ins, að því er fram kemur í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans. Í svar­inu segir að ráðu­neytið hafi haft málið til skoð­unar í því augna­miði að greina hvað í fram­tak­inu felist og hvað aðild eða teng­ing við það gæti þýtt fyrir íslenska hags­mun­i.

Sendi­herr­ann segir að þátt­taka Íslands gæti aukið sam­vinnu í við­skipta­lífi og verslun á milli land­anna tveggja. Það sé vegna þess að hag­vöxtur í Kína er stór hluti heims­hag­kerf­is­ins og þurfi kín­verski mark­að­ur­inn nú að mæta auk­inni eft­ir­spurn á vörum, þar á meðal á vörum frá Íslandi.

„Með batn­andi lífs­kjörum kjósa fleiri og fleiri Kín­verjar að ferð­ast utan land­stein­anna. Ísland hefur hlotið auk­inn fjölda kín­verskra ferða­manna árlega sem hefur aukið þjón­ustu­við­skipti á Íslandi. Á sama tíma gæti Belti og braut stutt við frí­versl­un­ar­samn­ing land­anna okkar tveggja sem myndi efla vöxt tví­hliða við­skipta á vörum og þjón­ustu og sam­vinnu í net­verslun og auka tví­hliða fjár­fest­ingar,“ segir sendi­herr­ann.

Sex billjón Bandaríkjadala

Með Belti og braut er lögð áhersla á sam­eig­in­legan ávinn­ing Kína og þeirra ríkja sem taka þátt í Belti og braut, segir Jin. „Belti og braut ein­blínir á sam­hæfða stefnu, inn­viða­tengsl, óhindruð við­skipti, fjár­hags­lega sam­þætt­ingu og sterk­ari tengsl fólks. Verk­efnið leit­ast eftir opinni, grænni og hreinni þróun,“ segir Jin.

Sendi­herr­ann segir að verk­efnið hafi fengið mik­inn með­byr og stuðn­ing alþjóða­sam­fé­lags­ins. „Í dag hefur Kína skrifað undir sam­starfs­samn­inga á grund­velli Beltis og brautar við 127 ríki og 29 alþjóð­legar stofn­anir. Við­skipta­magn á milli Kína og landa sem eru hluti af Belti og braut er meira en sex billjón Banda­ríkja­dala og fjár­fest­ingar meira en 80 millj­arðar Banda­ríkja­dala.“

Rafrænn Silkivegur möguleiki

„Kína og Ísland geta einnig eflt sam­vinnu sína í fram­leiðslu á snjall­tækni, raf­rænum efna­hag og verndun hug­verka­rétt­inda, kannað nýja tækni, ný form og leiðir til við­skipta, ásamt því að styrkja sam­vinnu með stór gagna­sett, skýja­tækni og upp­bygg­ingu snjallra borga,“ segir Jin.

Ísland gæti fengið aukið aðgengi að fleiri mörk­uðum með þátt­töku í Belti og braut, sam­kvæmt sendi­herr­anum. „Að því leyti getur háþróuð tækni Íslands í jarð­varma kom­ist á stærri vett­vang þegar hún er sam­einuð fjár­magni og mark­aði landa í Belti og braut,“ segir hann.

Hver áhrif þátt­taka Íslands í verk­efn­inu yrðu á stjórn­mála­legt sam­band ríkj­anna tveggja telur Jin að þátt­taka Íslands í Belti og braut myndi vissu­lega vera tví­hliða sam­skiptum Kína og Íslands hag­stæð. Ríkin gætu þannig dýpkað sam­vinnu sína með aðstoð Beltis og brautar.

Varðandi hverjar afleið­ing­arnar yrðu fyrir Ísland ef það kysi að taka ekki þátt í Belti og braut segir Jin: „Ég vona og trúi að íslensk stjórn­völd ákveði að taka þátt í Belti og braut í nákominni fram­tíð. Mig langar ekki að sjá Ísland missa af stórum tæki­færum sem Belti og braut skapar.“

Umdeilt framtak

Margir hafa þó gagn­rýnt verk­efnið og telja sumir að kín­versk stjórn­völd vilji nota það til þess að auka stjórn­mála­leg áhrif sín í heim­inum. Banda­ríkin eru eflaust það ríki sem er opin­ber­lega hvað mest mót­fallið verk­efn­inu. Bæði vara­for­seti Banda­ríkj­anna, Mike Pence, og utan­rík­is­ráð­herra, Mike Pompeo, hafa gagn­rýnt fram­takið og sagt það varpa ríkjum í skulda­gildru. Gagn­rýnendur vísa einnig oft til aðstæðna Srí Lanka í því sam­hengi.

Í suð­ur­hluta Srí Lanka hafa kín­versk fyr­ir­tæki einka­leigu­rétt til 99 ára á höfn sem kölluð er Hamban­tota höfnin. Það er vegna þess að stjórn­völd í Srí Lanka gátu ekki greitt skuld sína við kín­versku fyr­ir­tækin sem byggðu höfn­ina.

Banda­ríkja­menn hafa jafn­framt gagn­rýnt skil­mála sem ýmsar þjóðir hafa geng­ist við þar sem kín­versk rík­is­fyr­ir­tæki standi að bygg­ing­unni eða lán undir for­merkjum Beltis og brautar með það að skil­yrði að kaupa vörur frá kín­verskum fyr­ir­tækjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár