Sigmundur svarar ekki hvort hann vill selja hlut ríkisins í Landsbankanum

For­sæt­is­ráð­herra lagði áherslu á að það væri Banka­sýsl­unnar að taka ákvörðun um að selja bank­ann. Banka­sýslan segir hins vegar að það sé fjár­mála­ráð­herra að ákveða.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra svarar því ekki hvort hann styðji það að hlutur rík­is­ins í Lands­bank­anum verði seldur á yfir­stand­andi ári eða ekki eða hvort honum þyki það skyn­sam­leg hug­mynd. Þetta kom fram í svari hans við fyr­ir­spurn Helga Hjörvar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag.

Helgi spurði Sigmund hvers vegna lægi „svona óskap­lega á að selja hlut rík­is­ins í Lands­bank­anum.“ Það væri óút­skýrt en margt benti til þess að ríkið græddi á því að eiga hlut­inn áfram frekar en að selja hann.

„Stutta svarið er: það liggur ekk­ert á að selja bank­ann fyrr en menn eru ásáttir um að það sé æski­legt fyrir eig­and­ann,“ sagði Sig­mundur Davíð. Hann lagði hins vegar áherslu á það að það væri ekki hann eða þingið sem myndi taka ákvörðun um sölu á Lands­bank­anum, heldur kæmi það í hlut Banka­sýslu rík­is­ins. „Ég efast ekki um að Banka­sýslan muni meta það hvenær og með hvaða hætti æski­legt kann að vera að selja hlut í bank­anum.“

Helgi vitn­aði einnig til orða Frosta Sig­ur­jóns­sonar, þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­manns efna­hags- og við­skipta­nefndar þings­ins, um að bank­inn eigi að vera sam­fé­lags­banki og ekki ætti að selja hlut rík­is­ins í honum, og spurði hvort for­sæt­is­ráð­herra væri á sömu skoðun og Frosti. Því svar­aði Sig­mundur Davíð ekki, en lagði áfram áherslu á það að hann myndi ekki koma til með að selja hlut­inn í bank­anum, heldur Banka­sýslan. 

Samfélagsbanki samþykktur af flokksþingi Framsóknar

Samkvæmt sam­þykkt flokks­þings Fram­sókn­ar­flokks­ins frá því í apríl á bank­inn að vera sam­fé­lags­banki. „Lands­bank­inn verði sam­fé­lags­banki í eigu þjóð­ar­innar með það mark­miði að þjóna sam­fé­lag­inu í stað þess að hámarka hagnað. Til að bregð­ast við fákeppni á banka­mark­aði er nauð­syn­legt að Lands­bank­inn hafi þann til­gang að bjóða góða þjón­ustu á bestu kjörum til að efla sam­keppni í banka­þjón­ustu á lands­vísu. Lands­bank­inn verði bak­hjarl spari­sjóða­kerf­is­ins.“

Sig­mundur Davíð hefur áður sagt að vert sé að skoða hug­myndir Frosta.

Bankasýslan telur skilyrði til staðar til að hefja sölu

Það er hins vegar þannig að stjórn­völd taka ákvörðun um hvenær hefja eigi sölu­ferlið, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá Banka­sýsl­unni frá því fyrr í þessum mán­uði. Þá sendi stofn­unin frá sér stöðu­skýrslu um sölu­ferlið þann 8. jan­úar síð­ast­lið­inn, þar sem fram kom að hún telur að þau skil­yrði sem stofn­unin setur fyrir því að hefja sölu­ferli á eign­ar­hlut rík­is­ins í Lands­bank­anum séu til staðar. Það sé ákvörðun Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra að hefja sölu­ferlið. Í kjöl­far stöðu­skýrsl­unnar ætlar Banka­sýslan að óska eftir yfir­lýs­ingum um áhuga af hálfu aðila sem vilja starfa með stofn­un­inni sem ráð­gjafar í fyr­ir­hug­uðu sölu­ferli. Banka­sýslan býst við því að hægt verði að ljúka sölu á allt að 28,2 pró­sent hlut í Lands­bank­anum á síð­ari hluta árs­ins ef ákvörðun verður tekin í vor.

Heimild til þess að selja hlut af hluta rík­is­ins í Lands­bank­anum hefur verið í lögum frá árinu 2011. Í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2016 kemur fram að ríkið geri ráð fyrir því að um 71 millj­arður króna fáist fyrir 30 pró­senta hlut og að ágóð­inn verði greiddur inn á skulda­bréf sem voru gefin út til að fjár­magna fallnar fjár­mála­stofn­anir árið 2008.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár