Nú má nota LEGO í pólitískum tilgangi

Danska leik­fanga­fyr­ir­tækið LEGO hefur breytt skil­málum sínum svo það skiptir sér ekki lengur að því hvernig kub­b­arnir eru not­aðir.

Ai Weiwei hefur birt nokkrar myndir af sér á Instagram-síðu sinni þar sem barn sést kubba á honum andlitið.
Ai Weiwei hefur birt nokkrar myndir af sér á Instagram-síðu sinni þar sem barn sést kubba á honum and­litið. Mynd: Instagram/aiww

LEGO-kubba má nú nota í póli­tískum til­gangi því danska fyr­ir­tækið hefur breytt skil­málum sínum í kjöl­far ónægju­öldu í garð fyr­ir­tæk­is­ins eftir að það hafn­aði kín­verskum lista­manni um kubba sem hann ætl­aði að nota til að und­ir­strika mann­rétt­indi.

Kín­verski mann­rétt­inda­fröm­uð­ur­inn og lista­mað­ur­inn Ai Weiwei ætl­aði að nota LEGO-kubba til að búa til lista­verk um tján­ing­ar­frelsi sem stilla átti upp í lista­safni í Ástralíu. Hann pant­aði því tölu­vert magn af kubbum frá LEGO. Það hefur verið vinnu­regla hjá LEGO að krefj­ast skýr­inga fyrir öllum stórum pönt­unum á kubbum og þegar skýr­ingin fyrir pöntun Ai barst var send­ingin á tveimur millj­ónum leik­fangakubba stöðvuð.

Frá þessu er meðal ann­ars greint á vef Quartz. Ai kall­aði þetta mis­munun og rit­skoðun. Í kjöl­farið bár­ust honum gríð­ar­margar send­ingar af kubbum frá fólki hvaðanæva að úr heim­inum. Ai Weiwei er í hópi þekkt­ustu núlif­andi mynd­list­ar­manna heims. Á lista breska tíma­rits­ins Artreview yfir hund­rað áhrifa­mestu per­sónur sam­tím­ans í mynd­list­ar­heim­inum skipar Ai Weiwei annað sætið. Til gam­ans má geta að hann hefur meðal ann­ars unnið með Ólafi Elí­assyni.

Borgþór Arn­gríms­son vann umfjöllun um málið í Kjarn­anum þegar það kom upp í vetur. Þar segir að LEGO hafi ekki getað styrkt verk­efni sem bæru póli­tískt yfir­bragð. Þó bent hafi verið á að verið væri að kaupa kubba en ekki að biðja um þá gef­ins end­ur­tók LEGO sömu svör en sagði jafn­framt að hver sem er geti keypt kubba og gert við þá hvað sem við­kom­andi sýn­ist.

Þegar blaða­maður Politi­kens sendi tölvu­póst til LEGO og spurði hvort hann gæti keypt milljón LEGO-kubba, í ýmsum litum, var spurt hvað hann hygð­ist gera við þá. „Kemur LEGO það eitt­hvað við?“ spurði blaða­maður en fékk engin svör. Blaða­mað­ur­inn hafði líka sam­band við danskar leik­fanga­versl­anir og spurð­ist fyrir um kaup á milljón kubbum. Versl­an­irnar vís­uðu á LEGO því þær seldu ekki kubba í lausu í millj­ón­a­tali.

Danskir fjöl­miðlar og fjöl­margir aðrir töldu að ástæða þessa væri að LEGO væri ein­fald­lega hrætt um að styggja kín­verska ráða­menn. For­svars­mönnum LEGO hafi verið sagt að það mundi bitna harka­lega á LEGO að selja þessum póli­tíska and­ófs­manni kubba. LEGO er að und­ir­búa opnun Legol­ands í Sjanghaí og hefur þegar opnað stóra kaupa­verk­smiðju í Jiaxing.

Um ára­mótin breytti LEGO skil­málum sínum. Fyr­ir­tækið mun ekki spurja í fram­tíð­inni til hvers stórar pant­anir verða not­aðar eins og það hefur gert. „Þetta hefur verið gert vegna þess að til­gangur LEGO Group er að veita börnum inn­blástur með skap­andi leik­föngum, ekki að styðja ákveðnar skoð­anir ein­stak­linga eða stofn­anna,“ segir í til­kynn­ingu sem birt­ist á vef LEGO í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár