Listafólk kallar eftir tilslökunum

Lista­fólk kallar nú eftir und­an­þágum frá nálægð­ar­tak­mörk­unum, sam­bæri­legum þeim sem veittar hafa verið vegna íþrótta, til að geta haldið áfram æfingum og und­ir­búið menn­ing­ar­vet­ur­inn. Tak­mark­anir hafa sett svip sinn á æfingar hjá stóru leik­hús­unum tveimur.

Kórónuveirufaraldurinn lamaði starfsemi leikhúsa í vor.
Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn lam­aði starf­semi leik­húsa í vor. Mynd: Mynd samsett

Fólk sem starfar innan sviðs­lista kallar eftir sam­bæri­legum til­slök­unum á nálægð­ar­tak­mörk­unum og leyfðar hafa verið í íþróttum. Í gær­kvöldi sendi Bandalag íslenskra lista­manna frá sér opið bréf þar sem slíkar und­an­þágur eru sagðar for­senda vinnu margra lista­manna, sér­stak­lega tón­list­ar­manna og lista­manna í sviðs­listum.

Í bréfi BÍL segir að það ætti að vera jafn sjálf­sagt að veita lista­mönnum slíkar und­an­þágur líkt og íþrótta­mönnum. Lista­menn hafi hingað til ekki farið fram á slíkar und­an­þágur heldur „ein­fald­lega beðið þol­in­móðir og treyst því að með skyn­semi munum við kom­ast sem fyrst fyrir vind og geta tekið upp fyrri störf,“ eins og það er orðað í bréf­inu.

Þá sendu Samtök atvinnu­veit­enda í sviðs­listum og tón­list, SAVÍST, frá sér sams konar opið bréf í gær þar sem lagt er til að skoðað verði hvort mögu­legt sé að nálg­ast menn­ing­ar­starf­semi með svip­uðum hætti og íþrótta­starf­semi. „Að sjálf­sögðu vilja menn­ing­ar­stofn­anir geta tekið á móti gestum eins fljótt og auðið er en mik­il­væg­ast er þó að æfingar og annar und­ir­bún­ingur við­burða geti haf­ist hið fyrsta og farið fram með eins eðli­legum hætti og unnt er,“ segir í álykt­un­inni.

Tveggja metra reglan hefur hamlað æfingum

Upphaf seinni bylgj­unnar hafði tölu­verð áhrif á starf Þjóð­leik­húss­ins. „Við viljum auð­vitað nálg­ast þetta allt saman af ábyrgð og fara að öllu með gát þannig að við frest­uðum upp­hafi leik­árs­ins og æfingum á stóru sýn­ing­unum. Ákveðið var að gera það fyrst um sinn með því að fresta öllu um tvær vikur. Á sama tíma erum við auð­vitað mjög með­vituð um að nýta tím­ann sem allra, allra best. Við und­ir­búum sýn­ing­arnar bara enn betur, vinnum að fram­leiðslu leik­mynda og und­ir­bún­ings leik­árs­ins þannig að við séum enn betur í stakk búin þegar við getum farið af stað. Hér er allt kraum­andi og við getum varla beðið eftir því að draga tjöldin frá og hrífa leik­hús­gesti með,“ segir Magnús Geir Þórð­ar­son, Þjóð­leik­hús­stjóri, í sam­tali við Kjarnann.

Hann von­ast til þess að menn­ingin fái að njóta sömu til­slak­ana og íþrótt­irnar. „Það sem myndi skipta allt lista­lífið miklu máli væri að lista­menn­irnir mættu æfa og vinna á svið­inu. Í dag er það okkur mik­il­væg­ast. Við þurfum að geta farið að skapa verkin og svo í fram­hald­inu von­andi að opna og taka á móti gestum. Nú er búið að opna fyrir íþrótta­iðkun og ef til vill getur það sama gilt um lista­menn sem mæt­ast á sviði. Við vonum inni­lega að þarna finn­ist góð og örugg leið.“

Mik­il­vægt sé að lands­menn geti nært and­ann. „Að sjálf­sögðu erum við öll sam­stíga í því að fara að öllu með gát og fylgja ítr­ustu fyr­ir­mælum. Hins vegar þurfum við öll á því að halda að lífið haldi áfram og lands­menn þurfa á and­legri nær­ingu að halda, nú sem endra nær. Við í lista­geir­anum getum auð­vitað ekki beðið eftir því að hrífa gesti með okkur og okkur finnst að nú sé rétt að allir legg­ist á eitt með það að mark­miði að koma lista- og menn­ing­ar­lífi lands­ins í gang sem fyrst,“ segir Magnús Geir.

Tvær sýningar tilbúnar hjá Borgarleikhúsinu

Und­ir­bún­ingur fyrir kom­andi leikár hefur gengið vel að sögn Bryn­hildar Guð­jóns­dóttur Borgleik­hús­stjóra. Nú þegar séu tvær sýn­ingar sem stefnt var að að sýna á kom­andi leik­ári til­búnar, enda hafi þær verið í sýn­ingu á síð­asta leik­ári. „En svona er þetta bara heim­ur­inn er allur undir. Við erum í miðjum heims­far­aldri sem því miður tók sig hér upp aftur. Auðvitað viljum við öll koma menn­ing­ar­líf­inu í gang og við sem störfum við sviðs­listir, við höfum tekið þyngstu höggin,“ segir Bryn­hildur.

„Und­ir­bún­ingur gengur vel. Við komum öll til starfa fyrr en áætlað var af því að við hættum fyrr í vor og það er verið að æfa sýn­ingar innan þeirra tak­mark­ana sem okkur eru settar,“ segir Bryn­hildur. Hún segir að leik­arar í sýn­ing­unni Veislu sem sýna á á stóra svið­inu hafi æft með tak­mörk­unum í ein­hvern tíma auk þess sem æfingar á tveggja manna sýn­ingu standi yfir.

Hún seg­ist ekki geta beðið eftir því að hefja sýn­ingar. Tveggja metra reglan geri það að verkum að leik­húsið sé algjör­lega væng­stýft en það sé lítið annað hægt að gera en að bíða. „Því við gerum ekk­ert sem er lýð­heilsu­lega hættu­legt. En að sama skapi er ég nátt­úr­lega algjör tals­maður þess að því fyrr sem við komumst af stað, því betra, vegna þess að þetta er líka lýð­heilsu­sjón­ar­mið. Geð­heil­brigði lands­manna og gleði er gríð­ar­mik­il­væg. Og gleymum því ekki að haust­lægð­irnar fara að koma – við þráum sam­veru og ljós.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár