Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka aflýst

Reykja­víku­mara­þoni Íslands­banka, sem fram átti að fara 22. ágúst, hefur verið aflýst. Allar skrán­ingar í hlaupið verða færðar fram um eitt ár, en þeir sem þess óska geta fengið end­ur­greiðslu.

Það verður ekkert Reykjavíkurmaraþon í ár.
Það verður ekk­ert Reykja­vík­ur­mara­þon í ár. Mynd: Íslandsbanki

Reykja­vík­ur­mara­þoni Íslands­banka, sem fram átti að fara 22. ágúst, hefur verið aflýst. Íþrótta­banda­lag Reykja­víkur, sem heldur hlaupið, segir að ekki hafi verið útlit fyrir að mögu­legt yrði að láta hlaupið fara fram og upp­fylla um leið hertar sótt­varna­ráð­staf­anir sem tóku gildi 31. júlí.

„Þar sem að und­an­förnu hafa komið fram sýk­ingar í sam­fé­lag­inu og fram­haldið hvað það varðar mjög óljóst kjósum við að sýna ábyrgð og setja ekki þátt­tak­endur í óþarfa áhættu. Framundan er við­kvæmur tími þar sem skóla­hald er að hefj­ast sem og vetr­ar­í­þrótta­starf að fara í gang og því skyn­sam­legt að auka ekki hættu á smiti með stórum við­burði,“ segir í til­kynn­ingu til þeirra sem ætl­uðu að taka þátt.

Þar segir einnig að leitað verði leiða til þess að halda áheita­söfnun í tengslum við hlaupið áfram og minnka skað­ann fyrir alla, en að það verði kynnt nánar á næstu dögum. Á síð­asta ári var sett áheita­met þar sem söfn­uðu söfn­uðu hlauparar 167.483.404 krónum til 181 góð­gerð­ar­fé­laga.

Allar skrán­ingar í hlaupið verða færðar fram um eitt ár, til 21. ágúst 2021, en hlauparar sem þess óska geta fengið end­ur­greiðslu ef þeir ætla sér ekki að taka þátt að ári.

„Það er vissu­lega von­brigði að geta ekki haldið Reykja­vík­ur­mara­þon Íslands­banka sem hefur farið fram á hverju ári í 36 ár. Við hvetjum ykkur til að halda áfram að æfa og kynna ykkur dag­setn­ingar á hlaupa­við­burðum okkar árið 2021,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár